Listin að lifa - 01.06.2013, Blaðsíða 8

Listin að lifa - 01.06.2013, Blaðsíða 8
Kerfi sem eykur þátttöku og bætir lífssgæði Memaxi skipulags- og samskiptakerfi Memaxi er heitið á nýju skipulags- og samskiptakerfi fjölskyldna. „Við höf- um haft það að leiðarljósi í allri hönn- un Memaxi að þjóna sem breiðustum hópi notenda,“ segir Ingunn Ingimars forstjóri fyrirtækisins á Islandi. „Utlit þessa kerfis fer eftir færni og óskum skjánotandans og þannig getur full- virkur einstaklingur haft mánuð í einu á skjánum og slegið sjálfur inn alla atburði og minnismiða beint frá skjánum. Þeim sem þjáist af heilabilun hentar jafnan betur að horfa eingöngu á einn dag í einu og aðstandendur og aðrir umönnunaraðilar aðstoða þá með því að setja inn atburði og miniv ismiða í gegnum læsta vefsíðu Memaxi. Kerfið virkar þannig að Memaxi skjá- forrit er sett inn í tölvu með Windows stýrikerfi og er henni komið fyrir á heimili skjánotandans. Skjáforritið sýnir klukku, tíma dags, vikudag, mán- aðardag og ár. Skjáforritið sýnir einnig dagskrá dagsins og næstu daga og birtir ýmis skilaboð á skjánum. Gestabók er innbyggð í kerfið og því auðvelt fyrir aðstandanda að skrá heimsókn sína í gestabókina beint frá skjánum. I kjöl- farið sendir Memaxi kerfið tilkynningu með SMS eða tölvupósti til annarra aðstandenda svo þeir sjái hver var í heimsókn og hvenær. Skype® mynd- símtöl eru einnig innbyggð í kerfinu svo fjölskylda og vinir geta verið í sam- bandi með myndsímtölum hvort heldur innanlands eða utan.“ -Er flókið að læra að nota kerfið? „Viðtökuprófanir og samtöl við að- standendur hafa kennt okkur að kerfið þykir afar einfalt í notkun og líkast til býr enginn núverandi skjánotandi okk- ar yfir fyrri tölvukunnáttu. Skjánotand- inn sér bjart, einfalt dagatal með upplýs- ingum um daginn í dag og ræður alfarið hvort hann ýti á hnappa á skjánum til að skoða frarn í tímann eða ekki. Mikil vinna hefur verið lögð í hönnun við- mótsins til að hafa það sem einfaldast. Einnig eru margar stillingar í kerfinu Ingunn lngimars forstjóri Memaxi á Islandi í dag 13:00 Sjúkraþjálfun Styrktar- og jafnvægisæfingar Skjámynd úr kerfinu þar sem minnt er á dagskrárlið fjölskyldumeðlims. svo hægt sé að aðlaga skjáinn hverjum og einum, t.d. fela eða birta hnappa o.s.frv., því frá upphafi var ljóst að kerfið þyrfti að vera afar sveigjanlegt til að svara þörfum og getu hvers notanda. Memaxi vefsíðan fyrir aðstandendur er aukinheldur einföld í notkun og eru þar settir inn dagatalsatburðir, upplýsingar og skilaboð. -Hvað kostar uppsetningin/áskrift fyrir heimili? „Kostnaðurinn er þríþættur, hug- búnaðaráskrift, Internet-áskrift og tölvubúnaður. Memaxi hugbúnaðurinn kostar 3.000 kr. á mánuði fyrir einn skjánotanda, óháð því hversu margir að- standendur nota Memaxi vefsíðuna til að færa inn og lesa upplýsingar eða nota Skype til að tala við skjánotandann. ADSL Internet-áskrift er hægt að panta hjá síma- og fjarskiptafyrirtækjum og er mánaðargjald frá um 3.800 kr á mánuði og stærsti kostnaðarliðurinn er svo tölvu- búnaðurinn og býður Memaxi bæði mánaðarleigu á tölvu fyrir 9.500 kr. á mánuði og tölvukaup á bilinu 125.000- 190.000, allt eftir skjástærð og getu tölv- unnar“ segir Ingunn. Fyrirtækið hefur lagt inn formlegt erindi til Sjúkratrygg- inga íslands um að rædd verði möguleg aðkoma þeirra og greiðsluþátttaka til að gera fleirum kleift að nýta Memaxi. 7:30 Vakna og fara á fætur |\/Búið | 9:00 Morgunlyfin N , |XEkki búiö | I miðvikudagur Dagur 12:00 Hádegismatur 13:30 Hringja í Grétu 33 18:30 Þorsteinn kemur Ýta hér til aö sjá viku | 31. ágúst 2011 Fríða og Halldór eru í Berlín og ko MlMAXl ■ 8

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.