Listin að lifa - 01.06.2013, Blaðsíða 16

Listin að lifa - 01.06.2013, Blaðsíða 16
Fræðsluhornið Bryndís Steinþórsdóttir Ágætu lesendur. Látum ekki deigan síga og vinnum að því sem okkur gengur vel við og höfum ánægju af. Leitumst við að vera skemmtileg og sjarmerandi gamalmenni eins og ein leikkona komst að orði í útvarpsviðtali þegar hún var spurð um efri árin. Skrifum hjá okkur helstu við- fangsefni dagsins ef þörf krefur og virðum tíma okkar og annarra. Hér koma nokkrar uppskriftir og leiðbeiningar sem þættinum hafa borist: Gulrótasúpa frá Sigrúnu 1saxaður laukur 500 g gróft rifnar gulrætur 2 tsk rifinn ferskur engifer Vi blaðlaukur í sneiðum 2 msk matarolía 1 tsk karrý 1 Vi 1 vatn eða grænmetissoð 2-3 grænmetisteningar Mýkið lauk og gulrætur i matarolíunni, bætið kryddinu saman við. Sjóðið í 40 mínútur og maukið. Berið súpuna fram með ferskum kori- ander, sýrðum rjóma og nachos flögum eða grófu brauði. Sænskir kartöfluklattar. 4 meðalstórar kartöflur 2msk mjólk 1 msk hveiti eða heilhveiti Vi tsk lyftiduft 20 g smjör 2 þunnar flesksneiðar (smátt saxaðar) eða annað reykt kjöt 1 litil laukur, smátt saxaður 1 meðalstórt epli (afhýtt og rifið eða smátt saxað) 1 msk saxaðar kryddjurtir Salt og pipar eftir bragði 1 msk matarolía Bræðið smjörið og léttsteikið flesk og lauk. Bætið epli og kryddi saman við. Maukið kartöflurnar með mjólkinni. Blandið öllu saman ásamt mjöli og lyftidufti í þykkt deig sem mótað er í 6 flatar kökur (klatta). Látið bíða í kæli í eina klst. þá verða kökurnar þéttari og auðveldara er að steikja þær í matarolíunni. Berið fram með t.d. grænu salati. Heitt rúllubrauð frá Guðrúnu 1 rúllubrauð 1 dós sveppaostur (250 g) 3 msk mayones Vi tsk grænmetiskraftur (leystur upp í dálitlu heitu vatni) 200 g skinka söxuð 1 lítil dós aspas (smækkaður ef þarf) Ollu blandað saman og smurt á brauð- ið sem rúllað er upp með samskeytin niður. Hrærið saman Vi dl af mayonesi og Vi dl af sýrðum rjóma og smyrjið utan á brauðið. Stráið rifnum osti og dálitlu papriku- dufti yfir brauðið. Bakið í ofni við 180° í um 30 mín. Melónur Það er vinsælt að bera fram melónu- bita og ef til vill vinber með kökum á kaffiborðið. Melónur eru einnig góðar í margskonar salöt. Fíflahunang frá Guðlaugu G. 50 nýir fíflahausar (blóm) 2 sítrónur í bitum 300 g sykur Hausarnir eru settir í kalt vatn og hreyfðir svo allar flugur fari örugglega úr þeim. Skiptið um vatn ef þörf er. Vatnið er síað frá og hausarnir soðnir með sykri og sítrónum í 3 klst. Sigtað og safinn pressaður vel úr (hann á að vera tær). Sett síðan í hreinar krukkur með loki. Tehetta frá Rannveigu S. Efni: Þrefaldur plötulopi Hringprjónn og sokkaprjónar nr. 6. Fitjið upp 96 1 og prjónið í hring sl. prj. 7 sm. Þá er prj. mynstur sem hver getur valið eftir sinni ósk og getu. Þegar hólkurinn er orðinn 20 sm frá uppfitjun er tekið úr þannig: Prj. 14 1 og 2 saman alla umf. Prj. 2 umf. án úrtöku. Prj. 13 1 og 2 saman alla umf. Þannig fækkar um 1 1 milli úrtaka. Skiptið yfir í sokkaprj. þegar þörf krefur. Prj. alls 6*2 umf. á milli, 4*1 umf. á milli úrtaka, takið þá úr í hverri umf. þar til 8 1 eru eftir. Þeim skipt á 2 fínni prjóna og prj. „halar“ með öðrum lit þannig að byrjað er allt- af frá sama enda prjónsins. Þá myndast rúlla sem gott er að toga vel í til að brúnirnar falli saman. Þegar „halarnir“ mælast 12 sm er garnið slitið og dregið gegn um 1. Halaendunum stungið ofan í gatið (þannig að myndist 2 hankar), þeir saumaðir fastir og gatið saumað saman. Faldur (4 umf.) brotinn inn á neðri brún og saumaður laust niður. 16

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.