Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2013, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2013, Qupperneq 4
Rökuðu hárið af konu n Árásarkonurnar huldu andlit sitt á leið í dómsal F jórar konur á aldrinum 19 til 27 ára huldu andlit sitt er þær mættu til þingfestingar á máli gegn þeim í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag. Konurnar eru sakaðar um alvarlega líkams- árás gegn konu í Mosfellsbæ í janú- ar í fyrra. Ríkissaksóknari hefur ákært þær fyrir líkamsárás og ólögmæta nauðung en árás þeirra gegn kon- unni þykir afar hrottaleg. Konunum er gefið að sök að hafa ruðst inn í íbúð konunnar, slegið hana ítrekað í and- litið þar sem hún lá sofandi og síðan rakað af henni mest allt hárið með rafmagnsrakvél sem þær höfðu með sér. Þær þvinguðu síðan konuna með hótunum um frekara ofbeldi til þess að afklæðast og héldu henni nauð- ugri. Við þetta hlaut fórnarlambið glóðarauga á hægra auga og eymsli þar í kring, mar yfir vinstra gagnauga, yfirborðsáverka í andliti og á baki auk þess sem kvarnaðist upp úr tönn og nánast allt hárið var rakað af henni. Málinu var frestað fyrir héraðs- dómi á þriðjudag þar sem öll gögn málsins höfðu ekki borist sakborn- ingum og verjendum þeirra. Fram- haldsákæra hefur verið gefin út sem verjendur kvennanna tóku sér frest til að taka afstöðu til, meðal annars hafði bæst við bótakrafa frá þol- anda árásarinnar upp á eina milljón króna sem ekki hafði fylgt upphaf- legu ákærunni. Sakborningar munu því taka afstöðu til ákærunnar eftir næstu helgi. n viktoria@dv.is Fundaði með Hollande Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundaði með Francois Hollande, forseta Frakklands, í Elysée-forsetahöllinni í París á þriðjudag. Þar ræddu þeir með- al annars um aukna samvinnu á norðurslóðum, nýtingu hreinnar orku, glímuna við fjármálakrepp- una í Evrópu og reynslu Ís- lendinga á undanförnum árum. Í tilkynningu frá embætti forseta Íslands kemur fram að Hollande hafi lýst miklum áhuga á þeim árangri sem Íslendingar hefðu náð í kjölfar bankahruns- ins. Hollande sagði að mikilvægt væri að ræða þá lærdóma sem önnur Evrópuríki gætu dregið af þróun mála á Íslandi en glíman við fjármálakreppuna setur um þessar mundir mjög svip sinn á frönsk þjóðmál og stöðu Evrópu. Þá ítrekaði forseti Frakklands vaxandi áhuga franskra stjórn- valda og vísindasamfélags á þró- un norðurslóða en í fyrra voru undirritaðir samningar um rann- sóknarsamstarf franskra og ís- lenskra háskóla á þessu sviði. Neytendur svartsýnni Svartsýni neytenda jókst lítið eitt í febrúar ef marka má væntingavísi- tölu Capacent Gallup sem birt var á þriðjudag. Vísitalan mælist nú 80,7 stig og lækkar um eitt stig frá janúarmánuði. Eins og kunnugt er mælir vísitalan væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins. Þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri neytendur svartsýnir en bjart- sýnir. Greining Íslandsbanka gerir málið að umtalsefni á vef sínum en þar kemur fram að þessi lækkun komi í kjölfar mikillar hækkunar í janúar en þá hækkaði vísitalan um tólf stig frá desembermánuði. „Reyndar kemur það talsvert á óvart að væntingar neytenda skuli minnka nú en yfirleitt fer bjart- sýni vaxandi milli þessara tveggja mánaða. Þá var niðurstaða EFTA- dómstólsins í hinni þrálátu Icesave- deilu birt í lok janúar og vann Ísland fullnaðarsigur í málinu. Það virð- ist þó hafa haft skammvinn áhrif á bjartsýni landans sem þrátt fyrir þessi góðu tíðindi er svartsýnni nú en í fyrri mánuði,“ segir í umfjöllun á vef Íslandsbanka. Samkvæmt undirvísitölum vísi- tölunnar er það helst mat á atvinnu- ástandi sem dregur vísitöluna niður nú, en sú undirvísitala lækkar um fjögur stig á milli mánaða. Huldu andlit sitt Árásarkonurnar huldu andlit sitt á leið í dómsal. Þær eru ákærðar fyrir hrottafengna árás á konu en þær rökuðu meðal annars af henni hárið. Í slenska útgerðarfélagið Sam- herji hefur átt í viðræðum um að selja útgerð sína í Afríku, Kötlu Seafood. Þetta staðfestir Þor- steinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, aðspurður um málið. Þorsteinn vill ekki greina frá því hver staðan er á viðræðunum um söluna á útgerðinni. Þorsteinn segir aðspurður að áhugsamur aðili, rússneskur auð- maður, hafi sett sig í samband við íslenska útgerðarfélagið og falast eftir útgerðinni. „Við erum ekki að reyna að selja. […] Starfsfólk hjá þessu fyrirtæki hefur hins vegar verið upplýst um að haft hafi verið samband við framkvæmdastjóra félagsins vegna mögulegra kaupa.“ Með orðum sínum á Þorsteinn Már við að starfsmenn Samherja í Afríku hafi verið látnir vita af því að viðræður við hugsanlegan kaup- anda standi yfir. Öflug útgerð Líkt og DV fjallaði ítarlega um í fyrra á Samherji og rekur átta verk- smiðjutogara sem stunda fiskveiðar við strendur Vestur-Afríku, aðallega úti fyrir ströndum Marokkó, Vestur- Sahara, Máritaníu og Namibíu. Veiðarnar fara fram í gegnum dótturfyrirtæki Samherja á Kanarí- eyjum, Kötlu Seafood. Helstu fisk- tegundirnar sem Samherji veið- ir eru hestamakríll, sardína og sar dínella. Í umfjöllun DV kom fram að 30–40 prósent af tekjum Samherja séu tilkomin vegna fisk- veiðanna við strönd Vestur-Afríku, meira en 22 milljarðar króna miðað við árið 2010. Keyptu útgerðina 2007 Samherji keypti útgerðina á Kanarí- eyjum af eigendum útgerðarfélags- ins Sjóla í Hafnarfirði árið 2007. Út- gerðin hét áður Sjólaskip Canarias SL. Kaupverðið var ekki gefið upp en í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kom fram að það hefði numið nærri 12 milljörðum króna. Meðal þess sem keypt var voru átta verksmiðju- og þjónustuskip sem voru í eigu Sjóla. Í ársbyrjun 2008 skuldaði Katla Seafood Glitni tæplega 13 milljarða króna vegna kaupanna á þessari erlendu starf- semi Sjóla. Við bankahrunið námu skuldir Kötlu Seafood við Glitni rúmlega 20 milljörðum króna. Eignahaldið á útgerð Samherja í Afríku er í gegnum dótturfélagið Polaris Seafood sem aftur á tvö eignarhaldsfélög á Kýpur, Fidelity Bond Investments Ltd. og Miginato Holdings Ltd. Þessi tvö félög halda svo utan um eignarhaldið á Kötlu Seafood á Kanaríeyjum sem aftur heldur utan um Afríkuútgerðina. Í ársreikningum Polaris Seafood voru þessi dótturfélög á Kýpur verðmetin á samtals 80 milljónir dollara, um tíu milljarða króna, í árslok 2009. Veiða í Gíneu-Bissá og Namibíu Líkt og DV greindi frá í septem- ber lokuðust veiðisvæði Samherja við Máritaníu að stóru leyti um mánaðamótin ágúst og september eftir að ríkisstjórnin í landinu færði fiskveiðilögsöguna út í 20 sjómílur. Máritanía hefur verið helsta veiði- svæði Samherja við strendur Afríku síðastliðin ár. Samherji hefur hins vegar fært sig til annarra landa í Vestur-Afríku eftir að veiðistoppið við Máritaníu skall á. Meðal annars hefur Sam- herji stundað veiðar við Namibíu, líkt og DV greindi frá í fyrra en Sam- herji keypti þá um 30 þúsund tonna kvóta þar í landi, auk Gíneu-Bissá. Verksmiðjutogarinn Heinaste mun til dæmis hafa verið við veiðar við Gíneu-Bissá nýlega samkvæmt heimildum DV. n Afríkufloti Samherja Togarar Samherja hafa meðal annars veitt hestamakríl við strendur Vestur- Afríku síðastliðin fimm ár. Rússi vill útgeRð samheRja í afRíku n Auðmaður í viðræðum við Samherja n Veiðir í Gíneu-Bissá Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Rússi ásælist Afríkuútgerð Þorsteinn Már Baldvins- son staðfestir að rússneskur auðmaður hafi ásælst Afríkuútgerð Samherja, Kötlu Seafood. Í flota Samherja í Afríku er meðal annars verksmiðjutogarinn Heinaste sem verið hefur við veiðar við strendur Gíneu-Bissá. „Starfsfólk hjá þessu fyrirtæki hefur hins vegar verið upplýst um að haft hafi verið samband við fram- kvæmdastjóra félagsins vegna mögulegra kaupa. 4 Fréttir 27. febrúar 2013 Miðvikudagur n M/V Alpha n M/V Beta 1 n M/V Geysir n M/V Heinaste n M/V Janus n M/V Kristina n M/S Orion n M/S Sjoli n M/V Sirius

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.