Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2013, Blaðsíða 13
F
angelsið var ógeðslegt. Það
voru sjö manns í hverjum klefa
og rottur úti um allt. Þegar mað-
ur vaknaði að morgni voru bit-
för um allan líkamann, segir 23
ára Breti, Alistair Ross Cameron, sem
dæmdur hefur verið í 10 ára fangelsi
í Dúbaí í Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum fyrir að hafa haft und-
ir höndum efni sem líkist kanna-
bis. Efnið sem um ræðir gengur í
daglegu tali undir nafninu krydd (e.
spice). Fimm félagar hans eru einnig
í haldi lögreglu og bíða nú dóms en
mál þriggja þeirra er nú til meðferð-
ar í dómskerfi Dúbaí. Þeir gætu allir
átt höfði sér þunga fangelsisdóma líkt
og Cameron. Breska blaðið Telegraph
fjallaði um mál þeirra á dögunum en
mennirnir segja að þeir hafi sætt gróf-
um pyntingum eftir að þeir voru gripn-
ir.
„Verstu dagar ævi minnar“
Lyfið sem mennirnir höfðu undir
höndum er einnig þekkt undir nafninu
K2. Eiturefnum er sprautað yfir þurrk-
uð lauf og þegar efnið er reykt koma
fram svipuð áhrif og þegar kannabis-
efni eru reykt. Þremenningarnir sem
komu fyrir dóm á dögunum lýstu því
að þeir hefðu sætt pyntingum innan
veggja fangelsisins. Sjöundi maðurinn
sem var einnig handtekinn en sleppt
nokkru síðar kom einnig fyrir dóm
sem vitni. Þar tók hann undir orð fé-
laga sinna um að þeir hefðu orðið fyr-
ir pyntingum. „Ég var í haldi í 86 daga
og þetta voru verstu dagar ævi minn-
ar. Ég var barinn í höfuðið þegar ég
tæmdi klefann minn og ég var ekki sá
eini sem var laminn,“ segir maðurinn.
Bannað nokkrum dögum áður
Það var þann 10. júlí í fyrrasumar sem
Bretarnir sjö voru handteknir fyrir
utan vinsælan klúbb í Dúbaí, Dubai
Marina Yacht Club, en staðurinn nýtur
nokkurra vinsælda meðal breskra
ferðamanna í Dúbaí. Lögregla fékk
upplýsingar um að mennirnir væru að
selja efnið inni á staðnum. Þegar lög-
regla kom á staðinn fannst samtals eitt
kíló af efninu, meðal annars í bifreið
sem þeir voru með á leigu. Mennirnir
þrír sem komu fyrir dóminn á dögun-
um neituðu þó allir að hafa verið með
efnin á sér og sögðust ekki vita hvernig
þau höfðu komist í bifreiðina. Athygli
vekur að umrætt lyf var bannað í Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum að-
eins nokkrum dögum áður en þeir
voru handteknir, eða þann 1. júlí.
Lyfið hefur notið vaxandi vinsælda að
undanförnu, til dæmis í Bandaríkjun-
um þar sem neysla efnisins hefur stór-
aukist. Lyfið var sett á bannlista í Bret-
landi árið 2009.
Byssu miðað á höfuðið
Samkvæmt upplýsingum frá breska
sendiráðinu í Dúbaí voru í heildina 35
Bretar handteknir á fyrsta sólarhringn-
um eftir að lögin tóku gildi. Einn þeirra
Breta sem eru í haldi, hinn 25 ára Karl
Williams, segir í yfirlýsingu sem hann
sendi til mannréttindasamtakanna
Reprieve að honum hefði verið ekið
út í eyðimörkina stuttu eftir handtök-
una. Þar hefði hann verið pyntaður og
ekið síðan á Media Rotana-hótelið þar
sem hann dvaldi. Þar tók lítið betra við
og lýsir Williams því að hann hafi verið
bundinn við stól inni í herbergi sínu og
handklæði sett yfir höfuð hans. Loks
hefði rafstraumi verið beint að kynfær-
um hans og byssu miðað á höfuð hans.
„Ég hélt að ég myndi deyja,“ bætti
hann við. Yfirvöld í Dúbaí segjast taka
ásakanirnar alvarlega en segja að enn
sem komið er hafi ekkert komið fram
sem styðji þær. Mennirnir gætu átt yfir
höfði sér allt að 10 ára fangelsi verði
þeir fundnir sekir. Fíkniefnalöggjöfin í
Sameinuðu arabísku furstadæmunum
er hörð og hafa fjölmargir breskir ríkis-
borgarar fengið að kynnast því. Þannig
var Nathaniel Lees, 23 ára, dæmdur til
dauða í júní í Abu Dhabi fyrir að selja
kannabisefni. n
Dúbaí Fíkniefnalöggjöf í Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum
er almennt mjög hörð eins og
fjölmargir Bretar hafa fengið að
kynnast. MynD ReuteRs
„Ég hÉlt að Ég
myndi deyja“
n Gripnir með dóp sem var nýlega bannað n Ásakanir um pyntingar
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Í haldi Grant Cameron, Karl
Williams og Suneet Jeerh eiga
allir þunga dóma yfir höfði sér.
„Ég var í haldi í 86
daga og þetta voru
verstu dagar ævi minnar.
Erlent 13Miðvikudagur 27. febrúar 2013
Allt í húsinu
er úr viði
Ítalski listamaðurinn Livio De
Marchi ákvað fyrir nokkrum miss-
erum að byggja sér hús. Það væri
ekki í frásögur færandi nema fyrir
þá hugmynd hans að hafa allt hús-
ið, líka húsgögn og aðra innan-
stokksmuni, úr viði. Nú er hús
þessa 69 ára listamanns tilbúið og
er óhætt að segja að niðurstaðan
sé forvitnileg. Það eru ekki bara
húsgögnin og húsið sjálft sem er
úr viði heldur er allt annað, jafn-
vel hnífapör, diskar, glös og jafn-
vel bókakápurnar í bókahillunni,
úr viði. De Marchi segir í samtali
við ítalska fjölmiðla að hann hafi
íhugað að nota önnur efni, eins
og brons og marmara, við gerð
hússins en á endanum farið aðra
leið. „Viður er uppáhaldshráefnið
mitt til að vinna með. Viðurinn er
lifandi og fullur af orku og færir
mér miklu ánægju að vinna með.“
Glæpsamlegur
glaðningur
Fertugur karlmaður frá Flórída
í Bandaríkjunum gæti verið í
vondum málum eftir að hafa gert
heiðarlega og rómantíska tilraun
til að gleðja sína heittelskuðu á
dögunum. Maðurinn, Anthony
Brasfield, ákvað að sleppa 12
hjartalaga helíumblöðrum upp
í loftið við Dania-ströndina fyrir
konu sína. Það sem Brasfield vissi
væntanlega ekki var, í fyrsta lagi,
að lögreglumaður í nágrenninu
sá til hans og, í öðru lagi, að
sleppa blöðrunum út í loftið var
brot á umhverfisverndarlögum.
Er Brasfield því komin í þá ótrú-
legu stöðu að geta átt yfir höfði
sér fimm ára fangelsi – sem að
vísu er hámarksrefsing.
Fóru í verkfall
– svo í fangelsi
Fjórir strætisvagnabílstjórar í
Singapore hafa verið dæmdir í
sjö vikna fangelsi fyrir að skipu-
leggja fyrsta verkfall í landinu í
um 26 ár. Verkfallið sem um ræðir
stóð yfir í tvo daga en um var að
ræða kínverska innflytjendur sem
höfðu tekið að sér að aka fyrir
ríkisrekna samgöngufyrirtæk-
ið SMRT. Mennirnir voru ósátt-
ir við kaup sitt og kjör og brugðu
því á það ráð að fara í verkfall. Þar
sem ólöglegt er að fara í verkfall í
Singapore voru mennirnir ákærð-
ir og hafa þeir nú hlotið dóm fyrir
brot sitt. Einn úr hópnum fékk
refsiþyngingu fyrir að hvetja aðra
strætisvagnabílstjóra til að taka
þátt í verkfallinu. Mennirnir ját-
uðu allir brot sitt.
Mótfallinn evrópusambandinu
Flokkur gamanleikarans Beppes Grillo
er mótfallinn Evrópusambandinu og
vill að Ítalía taki upp líru á ný.
Útlit fyrir stjórnarkreppu á Ítalíu
n Gamanleikari er ótvíræður sigurvegari kosninganna
M
iðvinstrimenn, undir for-
ystu Piers Luigis Bersani,
unnu meirihluta í full-
trúadeild ítalska þings-
ins þegar gengið var til kosninga
þar í landi í vikunni. Hægriflokkur
Silvios Berlusconi náði hins vegar
meirihluta í öldungadeildinni. Sam-
kvæmt Reuters er þar með kom-
in upp nokkurs konar pattstaða á
þinginu enda verður ekkert frum-
varp að lögum nema báðar deildir
þingsins samþykki það.
Óhætt er að fullyrða að gaman-
leikarinn Beppe Grillo og Fimm-
stjörnuflokkur hans séu sigurvegar-
ar kosninganna, en flokkurinn
hreppti fjórðung atkvæða og er nú
stærsti einstaki flokkurinn í fulltrúa-
deildinni.
Flokkur Grillos er mótfallinn
Evrópusambandinu og niður-
skurðarstefnu og vill Grillo skipta út
evrunni fyrir líru og hægja á endur-
greiðslu opinberra lána. Þótt mið-
vinstrimenn séu með meirihluta
þingsæta þurfa þeir að reiða sig á
stuðning Fimmstjörnuflokksins til
að geta komið málum í gegn. Talið
er ólíklegt að Fimmstjörnuflokk-
urinn gangi til samstarfs við flokk
Berlusconis og að sögn þingmanns
í fyrrnefndum flokki krefðist slíkt
stjórnarsamstarf kraftaverks.
Ótti við stjórnarkreppu á Ítalíu
hefur nú þegar valdið verðfalli á
hlutabréfamörkuðum í Evrópu
og Bandaríkjunum, enda er Ítalía
þriðja stærsta hagkerfið í Evrópu-
sambandinu. Svo virðist sem úr-
slit kosninganna hafi velgt ráða-
mönnum í Evrópu undir uggum.
Til dæmis fullyrti fjármálaráðherra
Frakklands, Pierre Moscovici, að
niðurstöðurnar sköpuðu ákveðin
vandræði. Oliver Bailly, talsmaður
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, telur hins vegar að Ítalía
muni standa við þær skuldbindingar
sem gerðar hafa verið, greiða skuld-
ir sínar og draga úr ríkishallanum.
„Framkvæmdastjórnin hefur fulla
trú á lýðræðinu á Ítalíu og mun
vinna náið með næstu ríkisstjórn til
að auka hagvöxt og atvinnusköpun í
landinu á ný,“ sagði hann. n
johannp@dv.is