Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2013, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2013, Blaðsíða 14
Sandkorn Þ essa dagana keppast stjórn­ málaflokkar á Íslandi við að lofa kjósendum því að ef þeir kom­ ist til valda verði það fyrsta verk þeirra að lækka íbúðaskuldir þeirra landsmanna sem eru með verð­ tryggð íbúðalán. Nú síðast lét Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, þau orð falla í ræðu við setningu landsfundar Sjálfstæðisflokksins að flokkurinn vilji veita fólki sérstakan skattaafslátt til að lækka húsnæðislán sín. Fyrir rúmum tveimur vikum setti Framsóknarflokkurinn fram ályktun um að stökkbreytt verðtryggð húsnæðis­ lán verði leiðrétt. Stjórnmálahreyfingin Dögun vill afnema verðtryggingu á neytendalánum og leiðrétta húsnæð­ islán. Hægri grænir vilja lækka verð­ tryggð íbúðalán um 45 prósent. Björt framtíð vill að á Íslandi ríki efnahagslegt jafnvægi með stöðugum gjaldmiðli og þar með lækki húsnæðisvextir og verð­ trygging verði lögð af. Vinstri græn telja mikilvægt að skoða verðtrygginguna og hugmyndir um að setja tveggja pró­ senta vaxtaþak á hana. Í ályktun Samfylkingarinnar frá landsfundi flokksins fyrir rúmum þremur vikum segir að flokkurinn vilji inngöngu í ERM II­myntsamstarfið og síðan verði tekin upp evra í sam­ vinnu við Evrópusambandið. Aðild að Evrópusambandinu og upptaka evru sé mikilvægasta skrefið fyrir bættum rekstrarskilyrðum heimila. Allar þessar tillögur bera þess merki að stjórnmálaflokkar á Íslandi vilji ekki horfast nægilega mikið í augu við raunveruleikann. Engin stjórnmála­ flokkur leggur fram tölur um það hvað þessar aðgerðir muni kosta íslenska skattgreiðendur. Loforð Samfylkingar­ innar um himnaríki fyrir lántakendur við inngöngu í Evrópusambandið er heldur ekki trúverðugt. Til þess að svo verði þarf flokkurinn að setja fram tíma­ áætlun um mögulega inngöngu sem á sér meiri stoð í raunveruleikanum en þegar frambjóðendur flokksins lofuðu því fyrir síðustu alþingiskosningar vorið 2009 að Evrópusambandið væri tilbúið að semja við okkur um inngöngu á níu til tólf mánuðum. Aðrir flokkar ættu hins vegar að ræða meira um ástæð­ urnar að baki stökkbreytingu verð­ tryggðra íbúðalána. Má þar nefna við­ varandi verðbólgu þar sem ónýt íslensk króna er aðalsökudólgurinn. Staða Íbúðalánasjóðs er þegar skelfi­ leg. Í árslok 2011 munaði 200 milljörð­ um króna á gangvirði eigna og skulda sjóðsins. Ofan á þetta bætist síðan að Íbúðalánasjóður á í dag yfir 2.000 íbúðir auk þess sem um 13 prósent lána sjóðs­ ins eru í vanskilum. Ef sjóðurinn yrði gerður upp í dag þyrfti ríkið því líklega að greiða með honum hundruð millj­ arða króna. Stjórnmálamenn ættu því að byrja á því að leggja fram tillögur að því hvern­ ig bæta eigi þá skelfilegu stöðu sem Íbúðalánasjóður er í í dag áður en þeir ræða um það hvernig á að gera stöðu sjóðsins enn verri. Þannig greindi Við­ skiptablaðið frá því í síðustu viku að uppsafnaðar verðbætur Íbúðalána­ sjóðs frá upphafi árs 2008 væru líklega í kringum 260 milljarðar króna en sumir stjórnmálaflokkar hafa viljað afnema umræddar verðbætur. Fáir hafa hins vegar vakið athygli á því að þeir sem myndu tapa mestu á aðgerðum stjórnvalda til að koma til móts við íbúðaeigendur eru þeir sem búa á landsbyggðinni. Skattgreið­ endur á Norðurlandi eystra myndu tapa mest á slíkum aðgerðum en íbúar í Reykjanesumdæmi hagnast mest. Tillaga Sjálfstæðisflokksins um skattaafslátt til að lækka húsnæðislán landsmanna og ályktun Framsóknar­ flokksins um að stökkbreytt verð­ tryggð húsnæðislán verði leiðrétt eru því tillögur um milljarða króna skatt á landsbyggðina til að niðurgreiða fyrir fasteignabólu höfuðborgarsvæðisins á árunum 2004 til 2008. Hvernig ætlar Sigmundur Davíð að útskýra það fyrir tekjuháum sjómanni á Eskifirði sem er í kjördæmi formanns Framsóknar­ flokksins að honum beri að niðurgreiða íbúðaskuldir einbýlishúsaeiganda í Garðabænum sem er í kjördæmi Bjarna Benediktssonar? Og hvað með 190 milljarða króna verðtryggð námslán hjá Lánasjóði ís­ lenskra námsmanna sem hafa stökk­ breyst líkt og íbúðalánin. Á ekki líka að leiðrétta þau á kostnað skattgreiðenda? Margir myndu telja að menntun ungs fólks væri arðbærari fyrir ríkið en fast­ eignakaup landsmanna. Í komandi kosningabaráttu ættu kjósendur að gera þá kröfu til stjórn­ málamanna að þeir ræði af ábyrgð um tillögur sínar. Enginn heldur því fram að vandi þeirra heimila sem tóku verð­ tryggð íbúðalán fyrir bankahrunið sé ekki mikill. Stjórnmálamenn ættu hins vegar ekki að ræða þennan vanda án þess að minnast á orsök hans sem með­ al annars liggur í hruni íslensku krón­ unnar. Að lofa síðan íbúðaeigendum óraunhæfum töfrabrögðum án þess að greina frá kostnaði þeirra er ekkert annað en lýðskrum sem einungis er sett fram í þeim eina tilgangi að veiða atkvæði hjá örvæntingarfullum kjós­ endum. Frægir á 365 n Þeir sem ráða för hjá 365 kalla ekki allt ömmu sína þegar kemur að umfjöll­ un. Í síðustu viku var í Ís­ landi í dag ítarleg nærmynd af starfsbróðurnum Birni Braga Arnarssyni sem var svo heppinn að vera valinn sjónvarpsmaður ársins á Eddunni. Niðurstaðan var að starfsbróðirinn væri snill­ ingur. Á fæstum fjölmiðlum er ekki talið við hæfi að fólk sé að fjalla um hvert um annað og búa til frægðar­ menni innanhúss. Allt ann­ að er uppi á teningunum í sumum afkimum 365 þar sem frægir faðmast fyrir augliti þjóðar. Klerkaveldi n Gamlir og grónir sjálf­ stæðismenn hafa áhyggjur af lausatökum forystunnar á málefnavinnu flokksins. Sem dæmi um rugltillögur sem samþykktar eru „óviljandi“ er samþykktin um að kristin gildi skuli vera til grundvallar laga­ setningum. Áköfustu stuðn­ ingsmenn þessa er að finna á meðal sanntrúaðra á borð við Geir Jón Þórisson og séra Hjálmar Jónsson. Tillagan var reyndar útvötnuð en tilhneig­ ingin til að koma á íslensku klerkaveldi er til staðar. Sveinn Andri ringlaður n Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson er ekki par ánægður með afstöðu Sjálfstæðisflokks­ ins til aðildarumsóknar að Evrópusam­ bandinu. Lýsti hann því í samtali við Eyjuna að hann myndi sitja heima á kjördag frem­ ur en kjósa slíkan flokk. Björn Bjarnason, fyrrverandi þing­ maður, bendir á það í blogg­ færslu að Sveinn hafi tekið fullan þátt í landsfundinum á seinasta degi án þess að gera tilraun til að breyta samþykkt­ inni um ESB. „Annaðhvort var samtalið á Eyjunni tilbúning­ ur ritstjórnar hennar eða ekk­ ert er að marka Svein Andra …“ bloggar Björn. Moggaritstjóri á styrk n Fram kom í máli ung­ liða á landsfundi að ófært þyki að Þráinn Bertelsson al­ þingismaður sé á heiðurs­ launum samhliða annarri launavinnu. Sami ungliði gerði alvarlega athugasemd við að Hallgrímur Helgason fái laun sem listamaður. Ljóst er að sjálfstæðismenn hafa gleymt því að Matthías Johannessen, ritstjóri Moggans, var um árabil á heiðurslaunum, og er enn, án þess að landsfundur snerti á því máli. Þær eru all- margar hjá mér Þetta er bara ömurlegt Listakonan Kolbrún Róbertsdóttir er hrifin af Búddastyttum. – DV María Ósk Jónasdóttir, þriggja barna móðir, neyðist til að flytja í húsbíl. – DV Töfrabrögð í boði landsbyggðar„Ef sjóðurinn yrði gerður upp í dag þyrfti ríkið því líklega að greiða með honum hund- ruð milljarða króna V igdís Hauksdóttir hefur lagt fram á Alþingi fyrirspurn um málefni flóttamanna. Fyrirspurnin lýsir áhyggjum af meintri eftirsókn flóttamanna eftir óverðskulduðu hæli á Íslandi ásamt þeirri hugmynd að flóttamenn séu öðrum glæphneigðari. Þingmaður­ inn spyr hvort komi til greina að láta menn sem reyna að flýja land ganga með ökklabönd. Laumufarþegar eru ekki umfangs­ mikið vandamál á Íslandi en þessar áhyggjur virðast spretta af máli ung­ menna sem ítrekað hafa reynt að komast úr landi – tveggja manna af þeim hundruðum sem sótt hafa um hæli á Íslandi á umliðnum árum og flestir verið sendir á áframhaldandi vergang. Félag áhugafólks um málefni flóttamanna beinir eftirfarandi spurningum til Vigdísar: 1. Veit þingmaðurinn hversu margir þeirra flóttamanna sem lent hafa á Íslandi á síðustu árum hugðust ekki að sækja um hæli á Íslandi held­ ur voru stöðvaðir á leið til Ameríku? 2. Veit þingmaðurinn að flótta­ mannasamningur Sameinuðu þjóð­ anna kveður á um að allir menn hafi rétt til að flýja ofsóknir þótt þeir þurfi að ferðast ólöglega og nota fölsuð skilríki? 3. Hvað hefur þingmaðurinn fyrir sér í því að flóttamenn líti á Ísland sem „stökkpall“ til annarra landa? Hvernig virkar eyríki sem „stökkpall­ ur“ og hversu margir flóttamenn hafa notað Ísland sem „stökkpall“? 4. Telur þingmaðurinn að ef Ís­ lendingur ferðast með lest erlendis, án þess að kaupa farmiða, væri eðli­ legt að hann yrði látinn bera ökkla­ band eða er það eingöngu fólk sem býr við ofsóknir og örbirgð sem verð­ skuldar slíka meðferð? Ef fyrirspurn Vigdísar kæmi frá leikmanni væri hún hlægileg. En Vig­ dís er ekki leikmaður heldur ráð­ herraefni Framsóknarflokksins. Fólk, sem í örvæntingu reynir að flýja margra ára bið eftir afgreiðslu, vill ráðherraefnið beita sömu með­ ferð og víða er notuð til að fylgjast með dæmdum barnaníðingum. Nær væri alþingismönnum að hvetja innanríkis ráðherra til að afleggja misnotkun á Dyflinnarákvæði flótta­ mannasamningsins, veita fleiri flótta­ mönnum hæli og bjóða þeim sem vilja komast til annarra landa aðstoð til að koma hælisumsóknum á fram­ færi við þarlend yfirvöld. Sá heimóttarháttur og fordómar sem afhjúpast í fyrirspurn Vigdísar á sér fáar hliðstæður meðal vestrænna stjórnmálamanna. Helst eru viðhorf hennar sambærileg við afstöðu for­ hertustu Færeyinga til samkyn­ hneigðra. Sömu viðhorf einkenna Sverigedemokraterna, Dansk folke­ parti og British National Party; flokka sem sækja fylgi sitt til nýnasistahreyf­ inga. Félag áhugafólks um málefni flóttamanna hvetur Vigdísi Hauks­ dóttur til að endurskoða afstöðu sína og lýsir hryggð sinni yfir því að á Al­ þingi Íslendinga þrífist meiri áhyggj­ ur af meintri glæpahneigð hælisleit­ enda en þeim aðstæðum sem stökkva fólki á flótta frá fjölskyldu sinni og föðurlandi. Fyrir hönd Félags áhugafólks um málefni flóttamanna, Eva Hauksdóttir Ráðherraefnið og flóttamenn Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 14 27. febrúar 2013 Miðvikudagur Leiðari Annas Sigmundsson as@dv.is Aðsent Eva Hauksdóttir „Ef fyrirspurn Vigdísar kæmi frá leikmanni væri hún hlægileg. En Vigdís er ekki leikmaður held- ur ráðherraefni Fram- sóknarflokksins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.