Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2013, Page 23
Fólk 23Miðvikudagur 27. febrúar 2013
M
ér líður vel og ég er pollró-
legur, það þýðir ekkert
annað,“ segir Ingólfur Júl-
íusson ljósmyndari um
líðan sína. Ingólfur fékk
þær fréttir fyrir viku að lyfjameðferð-
ir sem hann hefur gengist undir í vet-
ur gegn bráðahvítblæði bæru ekki
árangur og hann ætti nokkra mánuði
eftir ólifaða.
Reynir heilsufæði og
grasalækningar
Hann gefst ekki upp og ætlar að
reyna óhefðbundnar lækningar til
að vinna bug á meininu og hefur
leitað til Kolbrúnar grasalæknis.
Ingólfur er þekktur fyrir að vera
léttur í lundu og með ríka kímni-
gáfu. Lyfjameðferðir vetrarins hafa
ekki haft áhrif á það. „Ég er hjá Kol-
brúnu grasalækni og ætla að prófa
ýmislegt. Ég tek mataræðið líka í
gegn og fæ mér alls konar fínerí,
granóla og svona. Ég óttast mest
að þetta heilbrigðisfæði verði til
þess að ég lifi mörg ár í viðbót, þá
verður mjög pínlegt að hitta fólk
úti á götu, hafandi verið dauðvona
svona lengi, fólk á bara eftir að
spyrja mig: Bíddu áttu ekki að vera
dauður helvítið þitt?“ segir Ingólfur
og hlær.
Erfiðara fyrir fjölskylduna
Í fullri alvöru segir hann það hafa
verið erfitt að taka á móti fréttun-
um. Kona hans og börn líði þján-
ingar. Á sama tíma hafi fréttunum
fylgt viss léttir. „Mér var sagt frá því
að meðferðin væri ekki að virka og
það væri ekki hægt að lækna þetta
með lyfjum. Það var miklu erf-
iðara fyrir þau að fá að heyra þetta
en mig,“ segir Ingólfur. „Ég er bara
feginn að það er einhver niður-
staða komin í málið. Óvissan var
verst.“
Faðmar samstarfsfólk sitt
Ingólfur er þekktur ljósmyndari og
hefur tekið ljósmyndir fyrir fjöl-
miðla í áraraðir. Hann er þekktur
fyrir að sýna samstarfsfólki sínu
óvanalega mikla hlýju. „Þú faðm-
ar alla og knúsar sem þú hittir,“
segir blaðamaður. „Já, hvort ég geri.
Bæði karla og konur,“ segir Ingólfur
og hlær. Honum finnst mikilvægt
að sýna tilfinningar sínar.
Síðast tók Ingólfur mynd af
Baldri Þorsteinssyni í Skálmöld fyr-
ir Mottumars. „Vonandi tek ég fleiri
myndir, það væri gaman,“ segir
hann, því jafnvel þótt vinnuþrekið
sé lítið um þessar mundir þá er
Ingólfur fullur af hugmyndum og
lífi. „Það var ótrúlega gott að kom-
ast í myndatöku eftir að hafa verið í
einangrun á spítalanum.“
Tónleikar 28. febrúar til
styrktar fjölskyldunni
Það er erfitt að veikjast og þurfa um leið
að hafa áhyggjur af fjárhag fjölskyldu
sinnar. Ingólfur veiktist í október í
fyrra og hefur dvalið á sjúkrahúsi að
mestu síðan. Hann hefur starfað sjálf-
stætt síðustu árin og því hafa veikindin
gengið nærri fjárhag heimilisins.
Hann segist vera að reyna að leysa
sem mest af því sem hann ræður
við. „Ég er að tala við umboðsmann
skuldara, þannig að þetta er allt í ein-
hverju ferli og ég vona það besta,“ segir
hann.
Ingólfur stendur ekki einn í bar-
áttunni því vinir hans og vanda-
menn ætla að styrkja hann og fjöl-
skylduna með styrktartónleikum í
Hörpu fimmtudaginn 28. febrúar.
Á tónleikunum koma fram
margir af þekktustu tónlistar-
mönnum landsins og tónlistin
sem flutt verður spannar mjög vítt
svið, allt frá klassískri söngtónlist
til þyngsta þungarokks.
Allt það listafólk sem að þess-
um tónleikum kemur gefur vinnu
sína. Meðal þess eru Ari Eldjárn
og Hörður Torfason og hljóm-
sveitirnar og tónflokkarnir Bodies,
Dimma, Fræbbblarnir, Hljómeyki,
Hrafnar, KK, Nóra, ÓP-hópurinn
og Q4U.
Þess má geta að Ingólfur hefur
lengi verið gítarleikari í Q4U en í
hans stað leikur Egill Viðarsson úr
Nóru á gítar með Q4U.
Þeim sem ekki komast á tónleik-
ana en styrkja vilja Ingólf og fjöl-
skyldu hans er velkomið að leggja
inn á eftirfarandi bankareikn-
ing: 0319-26-002052. Kennitala:
190671-2249. n
kristjana@dv.is
n Lyfjameðferðir bera ekki árangur n Ingó leitar óhefðbundinna lækninga
„Óvissan
var verst“
Blaðaljósmyndari til margra ára „Vonandi tek ég fleiri myndir, það væri gaman,“ segir
Ingólfur. Hér er andlit hans þakið ösku eftir návígi við eitt af eldgosum síðustu ára.
Faðmar bæði karla og konur Ingólfur er þekktur fyrir ljúfa lund sína og leggur í vana
sinn að faðma samstarfsfólk sitt.
Hættur í lyfjameð-
ferð Ingólfur gekkst
undir þrjár lyfjameð-
ferðir, þær báru ekki
árangur. Nú er hann í
eftirliti og leitar óhefð-
bundinna lækninga.
„Ég óttast mest að
þetta heilbrigðis-
fæði verði til þess að ég lifi
mörg ár í viðbót, þá verður
mjög pínlegt að hitta fólk
úti á götu.