Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Page 18
Loforðin sem stjórnin sveik
18 Fréttir
S taðist: „Ná aftur jafnvægi í
rekstri ríkissjóðs, endurreisa fjár-
málakerfið.“
Fyrstu hallalausu fjárlögin voru kynnt fyrir
árslok 2012. Þá kynnti Oddný G. Harðardótt-
ir, þáverandi fjármálaráðherra, fjárlagafrum-
varp sem gerði ráð fyrir að frumjöfnuður
væri jákvæður í fyrsta sinn frá hruni.
E kki staðist: „Ná þjóðarsátt
um lykilmarkmið og viðamiklar
efnahagsráðstafanir og sátt við
nágrannalönd eftir hrun íslenska fjármála-
kerfisins.“
Icesave-deilan endaði fyrir EFTA-dóm-
stólnum þar sem ekki var hægt að semja
um málið. Engin þjóðarsátt hefur náðst um
skuldaniðurfellingar eða uppgjör við hrunið
að öðru leyti.
A ð hluta staðist: Skipulags-
breytingar í stjórnkerfinu til að
efla traust á fjármálamarkaðnum
meðal annars með stofnun sérstaks efna-
hags- og viðskiptaráðuneytis.
Efnahags- og viðskiptaráðuneyti var
stofnað árið 2010. Það ráðuneyti sameinað-
ist síðan inn í atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðuneytið. Traust á fjármálakerfinu hefur
hinsvegar aukist lítið.
A ð hluta staðist: „Skuldastaða
heimila, greiðslu- og framfærslu-
geta verði til stöðugs endurmats
sem og nauðsynlegar aðgerðir til að koma til
móts við heimili í vanda.“
Úrlausnir ríkisstjórnarinnar á skuldamálum
heimilanna eru langt frá því að vera óum-
deildar og ríkir lítil samstaða um þær.
S taðist: „Heildarmat á þörf fyrir
frekari aðgerðir og tillögur í því
efni verði unnar í kjölfar úttektar
Seðlabanka Íslands á skuldum og tekjum
heimili … Ákvarðanir um frekari aðgerðir
og tillögur verði teknar í samráði við aðila
vinnumarkaðarins.“
Eftir langt ferli kynnti ríkisstjórnin 110%
leiðina sem felur í sér afskriftir á fast-
eignaskuldum sem hækkuðu verulega í
kjölfar hrunsins.
E kki staðist: „Áætlun um að skapa
skilyrði fyrir afnámi gjaldeyrishafta
og hraða lækkun vaxta.“
Engar vísbendingar eru um að gjaldeyrishöft
verið afnumin en afnámi þeirra hefur verið
frestað ítrekað. Stýrivextir lækkuðu framan af
kjörtímabili en eru nú farnir að hækka aftur.
S taðist: „Ríkisstjórnin mun gera
það sem í hennar valdi stendur
til að tryggja öfluga og skilvirka
efnahagsbrotarannsókn og að bæði henni
og niðurstöðum rannsóknarnefndar Alþingis
um bankahrunið verði fylgt eftir af fullum
heilindum.“ Sérstakur saksóknari hefur
fengið aukið fjármagn og hafa nokkrar
ákærur vegna hrunsins litið dagsins ljós.
Landsdómur kom saman til að rétta yfir Geir
Haarde.
A ð hluta staðist: „Marka skýra
eigendastefnu þar sem fram
komi framtíðaráherslur ríkisins
sem eiganda bankanna og hvernig henni
verður framfylgt. Markmið þess er að styrkja
faglegan, gagnsæjan og traustan grunn
undir aðkomu hins opinbera að atvinnu-
lífinu. Meðal annars verði kveðið á um
hvernig eignarhaldi bankanna verður hagað,
hugsanlegri eignaraðild erlendra kröfuhafa
og sýn á dreift eignarhald á bönkunum til
framtíðar. Þá yrði kveðið á um auglýsingar
á stöðum bankastjóra og faglega yfirstjórn
þeirra. Þá þarf að gæta þess að yfirtaka
ríkis banka á einstökum fyrirtækjum skekki
ekki samkeppnisstöðu á markaði. Tryggt
verður að unnið verði eftir faglegu og
gagnsæju ferli við sölu þeirra.“
Erlendir kröfuhafar eiga stærstu hlutana
í Íslandsbanka og Arion banka. Staða
bankastjóra var auglýst, en bankarnir hafa
verið harðlega gagnrýndir fyrir að hygla
vandamönnum við endursölu á verðmætum
fyrirtækjum sem þeir hafa tekið yfir.
E kki staðist: Örva innlendar fjár-
festingar í atvinnulífinu.
A ð hluta Staðist: Stuðla að bein-
um erlendum fjárfestingum.
Bein fjárfesting erlendra aðila hefur
aukist talsvert. Samkvæmt Seðlabanka
Íslands var bein fjárfesting erlendra aðila
128 milljarða á árinu 2011 samanborið við
30 milljarða á árinu 2010. Stjórnvöld hafa
þó beitt sér gegn fjárfestingu í einhverjum
tilfellum, til að mynda varðandi fyrirhuguð
kaup kínverska fjárfestisins Huang Nubo á
Grímstöðum á Fjöllum.
S taðist: Koma á eðlilegum
lánaviðskiptum við erlenda
banka.
E kki staðist: „Hagstæð rekstrar-
skilyrði fyrir fyrirtæki þannig að
störf verði varin og aðstæður
skapaðar fyrir fjölgun þeirra á ný.“ Gjald-
eyrishöft hafa verið hert frá hruni og er ekki
ljóst hvenær þau verða afnumin. Atvinnu-
lausir í febrúar 2009 voru 13.276 talsins en
í desember 2012 voru atvinnulausir 10.100.
Inni í þessum tölum er ekki fólk sem fór í
nám eða fluttist af landi brott eftir hrun.
S taðist: „Lykilatriði er að aukin
skattheimta leggist frekar á þá sem
betur eru í stakk búnir til að bera
auknar byrðar.“
Skattar á tekjuhærra fólk hafa verið
hækkaðir, bæði með þrepaskiptum skatti og
auðlegðarskatti.
S taðist: „Ekki verði beitt flötum
niðurskurði en þess í stað teknar
markvissar ákvarðanir um sparnað
og hagræðingu.“
E kki staðist: „Þóknanir fyrir
nefndir verði lækkaðar eða lagðar
af, hömlur verði settar á aðkeypta
ráðgjafarþjónustu og sú stefna mörkuð að
engin ríkislaun verði hærri en laun forsætis-
ráðherra. Settar verða samræmdar reglur
allra ráðuneyta um niðurskurð á ferða-,
risnu- og bifreiðakostnaði. Sjálfstæðum
hlutafélögum í eigu ríkisins verði settar skýr-
ar reglur um launastefnu og útgjaldastefnu í
þessum anda.“
Fjölmargir opinberir starfsmenn eru með
hærri laun en forsætisráðherra. Ríkisendur-
skoðun snupraði forsætisráðherra árið 2011
fyrir rýr svör við fyrirspurn um aðkeypta
ráðgjafarþjónustu.
A ð hluta staðist: „Frumvarp um
eignaumsýslufélag verður lagt fyrir
Alþingi að nýju á vorþingi. Ríkis-
stjórnin mun jafnframt beita sér fyrir því
að ríkisbankarnir móti samræmda áætlun
um hvernig brugðist verði við skuldavanda
fyrirtækja.“ Alþingi samþykkti frumvarp
um að heimila fjármálaráðherra að stofna
eignaumsýslufélag ríkisins. Ekkert eigna-
umsýslufélag hefur hinsvegar verið stofnað.
Aðeins einn banki er í eigu ríkisins og engin
samræmd áætlun varð til.
S taðist: „Ráðgjafarstofa heimil-
anna verði efld enn frekar ef þörf
krefur til að eyða biðlistum eftir
viðtölum og aðstoð við endurskipulagningu
á fjárhag heimila og fólks í vanda.“
Embætti umboðsmanns skuldara var stofn-
að og fjárveitingar til málaflokksins auknar.
S taðist: „Frumvarp um stjórnlaga-
þing – þjóðfund – verður lagt fram
á vorþingi. Kosið verði til þingsins í
síðasta lagi samhliða sveitarstjórnarkosn-
ingum 2010.“ Kosið var til stjórn-
lagaþings sem síðar varð að stjórnlagaráði
eftir að Hæstiréttur Íslands úrskurðaði
kosningarnar ólögmætar. Frumvarp sem
byggir á niðurstöðu stjórnlagaráðsins liggja
fyrir í þinginu.
S taðist: „Lög um skipan hæsta-
réttardómara og héraðsdómara
verði endurskoðuð.“ Ný lög
um skipan dómara tóku gildi árið 2010.
S taðist: „Heildstæð lög um
fjölmiðla verði sett þar sem
ritstjórnarlegt sjálfstæði og réttur
blaðamanna eru tryggð.“
Ný fjölmiðlalög voru samþykkt 2011, sérstök
fjölmiðlastofa sem hefur eftirlit með fjöl-
miðlum hefur verið sett á laggirnar.
S taðist: „Fyrir lok kjörtímabilsins
er gert ráð fyrir því að lögfest
verði sameining samgöngu- og
sveitarstjórnaráðuneytis og mannréttinda-
og dómsmálaráðuneytis í nýju innanríkis-
ráðuneyti.“
Í vinnslu: „Ísland verður friðlýst
fyrir kjarnorkuvopnum og
íslensk stjórnvöld munu beita sér
fyrir kjarnorkuafvopnun á alþjóðavett-
vangi.“
Þingnefnd um þjóðaröryggisstefnu ríkisins
hefur málið á sinni könnu eftir að frumvarpi
um friðlýsingu fyrir kjarnavopnum var vísað
til ríkisstjórnarinnar. Nefndin er skipuð
fulltrúum allra flokka á þingi en hefur ekki
lokið vinnu sinni.
S taðist: „Hlutverk sveitarfélaga í
velferðarþjónustu við börn, fatlað
fólk, aldraða og fjölskyldur verði
aukið með flutningi verkefna frá ríki til
sveitarfélaga.“
Málefni fatlaðra voru færð frá ríki til sveitar-
félaga í byrjun síðasta árs.
S taðist: „Staðinn verði vörður um
Íbúðalánasjóð, sjálfseignarfélög
og frjáls félagasamtök sem tryggja
hagstætt húsnæði.“
S taðist: „Dregið verði úr vægi
verðtryggingar í lánaviðskiptum
samhliða auknu framboði óverð-
tryggðra íbúðalána.“
Ríkisbankinn Landsbankinn býður upp á
óverðtryggð lán til íbúðakaupa.
S taðist: „Ríkisstjórnin mun
vinna með hagsmunaaðilum að
undirbúningi á viðurkenningu
táknmálsins á kjörtímabilinu.“
Lög þess efnis voru samþykkt á Alþingi.
S taðist: „Framfærslugrunnur
LÍN verði endurskoðaður með það
að markmiði að hækka hann í
áföngum og núverandi ábyrgðarmannakerfi
afnumið strax á sumarþingi.“
A ð hluta staðist: „Meginverkefni
ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum
verður að draga úr atvinnuleysi
með markvissum aðgerðum, útrýma
langtímaatvinnuleysi og skapa traustari
grundvöll fyrir íslenskt atvinnulíf til fram-
tíðar.“
Atvinnuleysi hefur vissulega ekki verið
útrýmt en það hefur þó minnkað. Enn er þó
talsvert meira atvinnuleysi en fyrir hrunið og
langtímaatvinnuleysi er enn til staðar.
A ð hluta staðist: „Umhverfi
sprota- og nýsköpunarfyrirtækja
verði bætt með lagfæringu á
skattalögum til þess að ívilna megi vegna
rannsókna og þróunar. Auk þess verði
tímabundið veittur frádráttur frá skatti
vegna fjárfestinga í sprota- og nýsköpunar-
fyrirtækjum.“
Þingsályktunartillaga þess efnis hefur verið
samþykkt á Alþingi.
S taðist: „Sköpuð verði ný
atvinnutækifæri fyrir ungt fólk t.d.
með því að efla Nýsköpunarsjóð
námsmanna og ýta úr vör sumarverkefnum
fyrir framhaldsskólanema.“
Ríkisstjórnin ákvað að verja 250 milljónum
króna vegna sumarvinnuverkefna náms-
manna.
S taðist: „Ráðist verði í markaðs-
sókn erlendis á sviði lista, menn-
ingar, hönnunar og hugvitsgreina.
Stutt verði við bakið á nýsköpunarverkefn-
um.“
1.-3. mars 2013 Helgarblað
n Staðið að fullu við rúmlega helming loforðanna n Rýnt í hvað hefur staðist í stjórnarsáttmálanum n Margt er enn í vinnslu þegar nokkrir dagar eru eftir af kjörtímabilinu
Í
stjórnarsáttmála Samfylkingar
og Vinstri grænna voru mörg lof-
orð. Tæplega helmingur þeirra
hefur staðist. DV tók fyrst stöðuna
á efndum loforðanna í stjórnar-
sáttmálanum í mars árið 2012 og nú,
þegar kjörtímabilinu er að ljúka, hef-
ur staðan verið tekin að nýju. Lítið
gerðist í loforðalistanum árið 2012
og hafa enn einungis 29 loforð af
57 verið efnd að fullu, eða rétt rúm-
lega helmingur. Til viðbótar hefur að
hluta til verið staðið við 13 loforð og
fimm eru ennþá í vinnslu.
Eitt loforð uppfyllt til viðbótar
Lítið hefur bæst við listann yfir efnd
loforð frá því í mars á síðasta ári. Þá
tók DV saman loforðin í stjórnarsátt-
málanum og hvað hefði gengið eft-
ir. Þá voru 27 efnd loforð en nú eru
þau 29. Það sem bætist við er jafn-
vægi á ríkisreksturinn en útlit er
fyrir að frumjöfnuður fjárlaganna
vegna 2013 verði jákvæður. Það yrði
þá í fyrsta sinn frá hruni. Enn gæti
þó farið svo að ríkisreksturinn verði
ekki hallalaus og telja sumir forsend-
ur fjárlaganna strax brostnar. Auk
ákvæðis um losunarheimildir.
Þrátt fyrir að óvissu hafi verið eytt
um Icesave-málið er ekki hægt að
meta það sem svo að ríkisstjórnin
hafi staðið við loforð um að stjórn-
völd nái samkomulagi við nágranna-
þjóðir Íslands. Eftir að samningar
höfðu siglt ítrekað í strand var höfðað
mál sem endaði með fullnaðarsigri
Íslands. Þá eru einnig nokkur mál
sem eru í vinnslu hjá stjórninni sem
ólíklegt er að verði nokkurn tímann
að veruleika. Nefna má stjórnar-
skrármálið sem dæmi en þrátt fyrir
að frumvarpið hafi verið lagt fram í
þinginu er fullkomin óvissa um hvort
það nái fram að ganga.
Lagt í dóm kjósenda
Verk ríkisstjórnarinnar verða lögð í
dóm kjósenda 27. apríl næstkomandi
þegar nýtt þing verður kosið. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum undan-
farinna vikna njóta ríkisstjórnar-
flokkarnir ekki trausts almennings
og hefur fylgi þeirra beggja hrunið
frá síðustu kosningum. Vinstri græn
mælast með innan við helming af
því fylgi sem hreyfingin fékk í kosn-
ingunum 2009 og Samfylkingin er
í stað þess að vera stærsti flokkur
landsins orðin minni en ýmist Fram-
sókn eða Björt framtíð, eftir könnun-
um.
Vinsældir ríkisstjórnarinnar mæl-
ast heldur ekki miklar. Síðastliðna
tólf mánuði hefur stuðningur við
ríkis stjórnina mælst í kringum 30–34
prósentustig í Þjóðarpúlsi Capacent.
Stuðningur við stjórnina hefur farið
minnkandi nær allt kjörtímabilið.
Fylgiskannanir gefa stjórnarflokkun-
um ekki tilefni til að vera bjartsýnir
á að stjórnin haldi velli að loknum
kosningum. n
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Loforð ríkisstjórnarinnar
n Í vinnslu 5
n Ekki staðist 10
n Að hluta staðist 13
n Staðist 29
Fjögur ár Stjórnarsáttmálinn
sem Samfylkingin og Vinstri
græn gerðu með sér var ítarleg-
ur. Samstarf flokkanna hefur
nú staðið í um fjögur ár.
Mynd Sigtryggur Ari
Í vinnslu
Ekki
staðist
Að hluta
staðist
Staðist