Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Blaðsíða 37
Menning 37Helgarblað 1.-3. mars 2013 Barnasýning leikársins staf (kannski fenginn að láni frá Maríu sjálfri?) og auðvitað hrukku allar tölvur eins og skot í gang: „showið“ rann áfram og leik- myndlist Slóvakans Petrs Hlousek, sumt af henni blátt áfram ægi- fagurt, hélt áfram að streyma fram og gleðja augun handan litskrúð- ugrar búningaflóru. Frammistaða leikenda er heilt yfir afar jöfn, en sumir skara þó fram úr. Þar langar mig sérstak- lega að nefna Halldór Gylfason sem dró upp hæfilega skopfærða en þó trúverðuga mynd af Banks pabba, Margréti Eiri sem var ægi- lega grimm í hlutverki vondu fóstrunnar, Guðjón Davíð, lipr- an og líflegan í hlutverki götu- listamannsins og sótarans Berts, og Sigríði Eyrúnu Friðriksdóttur sem vakti eftirtekt í litlu hlutverki frú Korrí. Mér sýnist að hún mætti vel fá fleiri og stærri tækifæri. Það kemur engum á óvart að Jóhanna Vigdís syngi vel og skili hlutverki Maríu óaðfinnanlega; fyrir minn persónulega smekk var hún ef til vill full mikil matróna, helst framan af, en þannig á hún sjálf- sagt að vera samkvæmt hinum réttu forskriftum og auðvitað frá- leitt að gagnrýna þessa góðu leik- og söngkonu fyrir að minna ekki nógu mikið á blessunina hana Júlíu Andrews. Ég held nú samt að aðeins meiri glóð milli þeirra Berts, svolítill erótískur spenning- ur, hefði varla sakað – eins þótt þetta sé í raun og veru barnasýn- ing og ætti að vera kynnt sam- kvæmt því. Leikhúsið nýtur vafans Stjörnugjöfin vefst fyrir mér að þessu sinni – og stjörnurnar má að sjálfsögðu ekki vanta; hvað ætli auglýsinga- og markaðsdeildir leik- húsanna segðu þá? Mér finnst mús- íkalið sem slíkt varla slaga upp í nema svo sem í mesta lagi þrjár (að teknu tilliti til þess að það besta í því eru fimmtíu ára gamlar melódíur), en fagmennskan í þessari sýningu er alveg upp á fjórar stjörnur og vel það. Ég mun því að vanda láta leik- húsið njóta vafans og gefa Mary Poppins fjórar stjörnur. Annars breyta stjörnurnar varla miklu úr þessu; ég heyri í sjónvarpinu í þess- um skrifuðum orðum að uppselt sé á fyrstu fjörutíu og fimm sýningarn- ar. Er þetta ekki bara tíu stjörnu markaðsdeild þarna hjá Leikfélagi Reykjavíkur!? n „Vera má að þessi sérkennilega til- urðarsaga skýri að ein- hverju leyti hvers vegna söngleikurinn stendur myndinni svo mjög að baki. S tefán Pálsson, spurningahöf- undur þáttarins HA?, er sér- fróður um bjór og gerir bjór- bannið að efni þáttarins föstudagskvöldið 1. mars. Tilefnið er að 1. mars árið 1989 var Íslendingum heimilað að kaupa og drekka bjór eins og öðrum jarðar- búum. Stefán segir bjórinn lengi hafa verið til á Íslandi – en með hléum þó. „Svo var vínbanni komið á árið 1915 sem molnaði niður í áföngum, meðal annars vegna þess að fólk var duglegt að brugga og smygla en það sem gróf endanlega undan banninu var þegar Spánverjar hótuðu að hætta að kaupa af okkur saltfisk ef við myndum ekki hefja kaup á létt- vínum frá þeim,“ segir Stefán frá í til- kynningu um dagskrárliðinn á Skjá Einum. „Samt var sá sérkennilegi háttur hafður á að ennþá var algjört bjór- bann. Svo kom heimsstyrjöld og her- mennirnir reyndu í upphafi að sætta sig við bannið en þoldu illa mikla sterkvínsdrykkju,“ segir Stefán og bendir á að í kjölfarið hafi framleiðsla á bjór verið heimiluð fyrir hermenn og sendiráðsstarfsmenn. Aðspurður segir Stefán mjög sér- kennilegt hve lengi bjórinn var í raun bannaður. „Þegar málið féll á þingi á sjöunda áratugnum var rök- færsla eins þingmanns á þá leið að ekki mætti leyfa bjórinn því það væri „ekki hægt að drekka sig ofurölvi af honum.“ En þegar við Íslendingar fórum að sækja sólarstrandir í meiri mæli upp úr 1980 breyttist viðhorf- ið til drykkjarins. Svo var ákveðið árið 1988 að bjórinn skildi leyfa 1. mars 1989, meðal annars vegna þess að þingmenn héldu að fyrst daginn bæri upp á miðvikudag, yrði ekki allt vitlaust í miðbænum. Engu að síður varð ekki við mikið ráðið,“ seg- ir Stefán spenntur fyrir ísköldum Ha? í kvöld – klukkan 22.00. Bjórsér- fræðingarnir Úlfar Linnet og Sveinn Waage verða gestir þáttarins. n „Fólk var duglegt að brugga og smygla“ n Dagur bjórsins tekinn fyrir í spurningaþætti Stefáns Pálssonar „Yfirþyrmandi stórverk“ Les Misérables Tom Hooper „Meiriháttar skemmtun“ DMC Devil May Cry Capcom „Ágætis sjónvarpsmynd á sunnudagseftirmiðdegi“ Jack Reacher Christopher McQuarrie Stefán Pálsson „Það sem gróf endanlega undan banninu var þegar Spánverjar hótuðu að hætta að kaupa af okkur salt- fisk ef við myndum ekki hefja kaup á léttvínum frá þeim.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.