Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Side 52
52 Fólk 1.-3. mars 2013 Helgarblað
Hvað er að
gerast?
1.–3. mars
Föstudagur01
Mar
Laugardagur02
Mar
Sunnudagur03
Mar
Útgáfutónleikar Péturs Ben
Tónlistarmaðurinn knái Pétur Ben fagnar
útgáfu plötunnar God ś Lonely Man með
útgáfutónleikum í Bæjarbíói í Hafnarfirði í
kvöld. Miðaverð inn á tónleikana er 2.500
krónur og tónleikarnir hefjast stundvís-
lega klukkan 21. Hljómsveitin The Heavy
Experince hitar upp.
Bæjarbíó Hafnarfirði 21:00
Skálmöld á Selfossi
Rokkararnir í Skálmöld halda tónleika í
höfuðborg hnakkana, Selfossi, í kvöld.
Tónleikarnir fara fram í Hvíta húsinu og
hefjast klukkan 21. Hljómsveitin gaf út
sína aðra plötu Börn Loka 26. október
síðastliðinn og hefur hún hlotið mikið lof
gagnrýnenda.
Hvíta húsið 21:00
Stórtónleikar Siggu Beinteins
Hin eina sanna Sigga Beinteins fagnaði
fimmtugsafmæli sínu og þrjátíu ára
söngafmæli með afmælistónleikum
síðasta sumar. Þeir slógu í gegn og nú
ætlar Sigga að endurtaka leikinn og
syngja fyrir norðanmenn í Hofi á Akureyri.
Stórhljómsveit flytur vinsælustu lög
Siggu í gegnum tíðina, allt frá „Vertu ekki
að plata mig“ til laga dagsins í dag.
Gestir verða meðal annarra Friðrik Ómar
Hjörleifsson og Regína Ósk Óskarsdóttir.
Hofið Akureyri 20:00
Pörupiltar standa upp
Pörupiltar snúa aftur með uppistand í
Þjóðleikhúskjallaranum. Aðeins þrjár
sýningar eru í boði í þetta sinn; 2., 16. og
23. mars. Í uppistandinu er ræða pöru-
piltarnir opinskátt um konur, vandamál
þeirra, samskipti kynjanna og deila með
áhorfendum heimspekilegum vangavelt-
um um lífið og tilveruna. Sýningin hefst
klukkan 21.
Þjóðleikhúskjallarinn 21:00
Perlur íslenskra sönglaga
Áhorfendur fá að kynnast perlum ís-
lenskra sönglaga í sígildri íslenskri tónlist.
Á tónleikunum eru flutt sönglög, þjóðlög,
sálmar og ættjarðarsöngvar. Flytjendur
koma úr röðum ungs íslensks tónlistar-
fólks og hafa margir þeirra fengið mikið
lof fyrir flutning sinn, bæði innan lands
og utan.
Harpa 21:00
Minnist látinnar systur sinnar í bók
n „Það er hún systir mín sem hefði átt heima í sviðsljósinu“
A
ron Már Ólafsson Verslunar
skólanemi hefur gefið út bók
byggða á sögu látinnar systur
sinnar, Evu Lynn sem lést af
slysförum við sumarbústað í fyrra
sumar.
Söguna sem um ræðir samdi Eva
Lynn fjögurra ára og fjallaði um stríðni
sem hún varð fyrir á leikskólanum og
hvernig hægt væri að komast hjá því
að láta stríðni annarra hafa áhrif á sig.
„Eva Lynn er bjargvætturinn í sögunni
og kennir krökkunum að bregðast við
henni með því að segja einfaldlega
SO?,“ segir Aron Már um bókina sem
hann gefur út með aðstoð félaga sinna
og í samstarfi við Eymundsson.
„Hún Eva kom oft heim grátandi
úr skólanum en lærði fljótlega að nota
þessa aðferð á hrekkjusvínin.“
Aron Már játar að bókaútgáfan
sé hans leið til að takast á við miss
inn þótt honum finnist þessi athygli á
einkalífið óþægileg. „Mér fannst samt
gott að geta gefið af mér á þennan hátt
og að gefa sögu Evu líf.“
Hann segist þó þurfa að venja sig
við sviðljósið því hann hefur komist
inn í leiklistardeild Listaháskólans. „Ég
var að fá fréttirnar um að ég hefði kom
ist inn svo ég verð að venjast athygli.
Það er hún systir mín sem hefði átt
heima í sviðsljósinu. Hún var alltaf
syngjandi og með alls kyns skemmti
atriði,“ segir Aron Már.
Bókin er gefin út í samstarfi við Ey
mundsson. Fyrsta kynningin verður
þann 8. mars í Smáralind og verður þá
einnig hægt að festa kaup á bókinni.
Fyrir áhugasama sagði Aron Már sögu
sína í nýjasta tölublaði Vikunnar.
kristjana@dv.is
Tekst á við missinn Aroni Má finnst athyglin sem hann fær vegna bókaútgáfunnar
óþægileg en þrátt fyrir allt góð leið til að takast á við missinn.
Slær í gegn í Chile
n Hera komst í úrslit í söngvakeppni n Taugatrekkjandi upplifun
É
g veit nú ekki hvort ég sé
orðin fræg í Chile en það er
ekki hægt að neita því að
þegar maður syngur fyr
ir framan 100 milljón manns
opnast auðvitað gluggi tækifæra.
Svo er bara að sjá hvernig fer að
leikslokum og hvernig maður vinn
ur úr þessu þegar öll gleðin er yfir
staðin, segir söngkonan Hera
Björk Þórhallsdóttir sem er að gera
garðinn frægan í Chile þar sem hún
tekur þátt í risastórri lagakeppni
sem sjónvarpað er um allan hinn
spænskumælandi heim.
Hera Björk flaug inn í úrslitin
með lagið Because You Can sem
hún samdi ásamt lagahöfundinum
Örlygi Smára og tveimur dönskum
höfundum.
Keppnin heitir Viña Del Mar
Festival og hefur Hera rækilega
slegið í gegn. Í vikunni fékk hún
meðal annars viðurkenningu frá Fé
lagi texta og lagahöfunda í landinu
sem voru afhent af borgarstjóran
um sjálfum.
Aðspurð segir Hera að keppn
in sé allt annars eðlis en söngva
keppnin hér heima. „Þetta er tölu
vert öðruvísi en aðrar keppnir sem
ég hef verið í. Hérna situr dóm
nefndin á sviðinu og gefur okkur
stig strax að „performance“ loknu.
Það heyrist ógurlegt „Viltu vinna
milljón“stef og svo birtast stigin á
risaskjá fyrir aftan okkur. Agalega
spennandi og ég neita því ekki að
þetta er taugatrekkjandi.“
Hera í stödd í Chile ásamt um
boðsmanni sínum Valgeiri Magnús
syni, betur þekktum sem Valla
sport. „Fjölskylda mín er því mið
ur ekki hérna með mér. Það kostaði
örlítið of mikið að ferja þau hingað
niður eftir. En ég er með umboðs
mann minn mér við hlið og þau frá
útgáfufyrirtækinu mínu hér í landi
aðstoða mig og sjá til þess að dúll
unni líði vel. Svo græddi ég eigin
lega fjölskyldur hérna úti þar sem
vinkonur mínar og vinir hafa verið
dugleg við að koma mér í samband
við fjölskyldur sína og vini. Annars
finnur maður fyrir miklum stuðn
ingi í gegnum Facebook og fólk
ið mitt er duglegt að láta vita af sér.
Það gefur mér mikið.“
Á Wikipedia kemur fram að
lagakeppnin Viña Del Mar Festival
hafi verið haldin ár hvert í febrú
ar frá 1960. Þar kemur einnig fram
að keppnin sé ein sú áhrifamesta
í Ameríku. Á meðal listamanna
sem hafa troðið upp á hátíðinni
eru hljómsveitin The Police, Andy
Gibb, Gloria Gaynor og Thomas
Anders úr hljómsveitinni Modern
Talking. Dómararnir í gegnum árin
hafa heldur ekki verið af verri end
anum er þar hafa meðal annars
verið George Martin, sem starfaði
með Bítlunum, Maurice Jarre, sem
samdi tónlistina fyrir Lawrence
of Arabia og fleiri kvikmyndir, og
margir frægir listamenn aðrir. n
Díva Hera Björk heillar fólk
alls staðar þar sem hún
kemur fram, enda söng-
kona á heimsmælikvarða.
Gullmedalía Hera Björk fékk þessa gull-
medalíu frá borgarstjóranum í Viña Del Mar
en um viðurkenningu frá Félagi texta- og
lagahöfunda í Chile er að ræða.
Stórglæsileg Hera í appelsínugulum kjól að flytja lagið Because You Can sem hún samdi
ásamt Örlygi Smára og tveimur dönskum höfundum.
Samvinna Valli sport er umboðsmaður
Heru Bjarkar og vílar ekki fyrir sér að hjálpa
henni með hárið.
Með dönsurunum
Mikið er lagt í atriðið.
Hér er Hera Björk með
dönsurunum sem eru
með henni
á sviðinu.