Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Side 54
54 Fólk 1.-3. mars 2013 Helgarblað
Vera og Damon giftu sig óvænt
n Voru trúlofuð í aðeins fjóra daga
F
réttir bárust að því á fimmtu-
dag að kvikmyndagerðar- og
sjónvarpskonan Vera Sölva-
dóttir hefði gifst leikaranum
Damon Younger sem heitir réttu
nafni Ásgeir Þórðarson á mið-
vikudag. Það var vefsíðan Vísir
sem greindi frá því að þau Vera
og Damon hefðu látið pússa sig
saman í fámennu miðnæturbrúð-
kaupi eftir aðeins fjögurra daga
trúlofun en hann mun hafa beðið
hennar á sunnudag. Heimildir
DV herma að brúðkaupið hafi
farið fram í skútu rétt fyrir utan
Reykjavíkurhöfn og einungis nán-
asta fjölskylda þeirra hafi ver-
ið viðstödd. Séð og heyrt sagði
hins vegar frá því sama dag að
þau Vera og Damon væru einung-
is bestu vinir en lengi hafa verið
vangaveltur um það hvort eitthvað
meira byggi að baki vináttu þeirra
sem varað hefur lengi. Samkvæmt
Vísi þá gaf Hilmar Örn Hilmars-
son, tónlistarmaður og allsherj-
argoði, þau saman og Megas tók
lagið í athöfninni. Hvorki náðist í
Veru né Damon á fimmtudag.
viktoria@dv.is
Hæfileikar og
fegurð Maríu
Birtu lofuð
Íslensku leik- og athafnakon-
unni Maríu Birtu Bjarnadóttur er
hampað á bloggsíðunni Actress
and Life Obsession. Á síðunni er
Maríu Birtu líkt við Hollywood-
stjörnuna Elishu Cuthbert sem
„þrátt fyrir sinn hörkukropp og
eðlislægan kynþokka er með báð-
ar fætur á jörðinni“. Síðunni, sem
er nokkuð vinsæl, er haldið úti
af Haren Yong, áhugamanni um
kvikmyndir og fallegar leikkonur.
Yong talar um kvikmyndirnar
Svartur á leik, XL og Óróa og velt-
ir upp spurningunni um hvort
Maríu Birtu verði sýndur sá heið-
ur að hljóta viðurkenninguna
Shooting Star Award á árinu.
Leikur
dóttur
Jean reno
n Leikkonan Heiða Rún gerir það gott
J
ean er yndislegur maður og
frábær leikari. Hann gefur
allt af sér í hverri senu og
reynir alltaf að ná fram því
allra besta frá meðleikurum
sínum. Hann hefur kennt mér svo
margt og gefið mér mörg góð ráð,
segir íslenska leikkonan Heiða Rún
Sigurðardóttir sem leikur á móti
heimsfræga leikaranum Jean Reno
í sjónvarpsþáttunum Jo.
Þættirnir fjalla um þrautreynd-
an rannsóknarlögreglumann,
Joachim „Jo“ Saint-Clair, sem býr
í París þar sem hann leysir erfið
morðmál. Heiða Rún, sem geng-
ur undir sviðsnafninu Heida Reed,
leikur Adéle Gauthier, dóttur Jo og
vændis konu sem hann átti í stuttu
sambandi við. Jo hafði farið þess á
leit við vændiskonuna að hún léti
eyða fóstrinu og yfirgaf hana þegar
hún hafnaði beiðninni. Jo og Adéle
hafa því ekki verið í miklu sam-
bandi en hittast á ný í jarðarför
móður Adéle.
Sýningarrétturinn hefur verið
seldur til 120 landa og þar á með-
al Frakklands, Spánar, Ítalíu, Þýska-
lands og Noregs. Höfundur þátt-
anna, Rene Balcer, hefur fengið
Emmy-verðlaun fyrir aðkomu sína
að Law and Order. Heiða Rún hefur
einnig unnið með dönskum og
enskum leikstjórum sem leikstýrðu
til að mynda Forbrydelsen, Broen,
Dexter og Walking Dead.
Heiða Rún var í París allt fyrra-
sumar við tökur. „Þetta var frábær
reynsla og við vonumst til að byrja
aftur fljótlega að annarri seríu.“
Heiða Rún hefur einnig leikið
í sjónvarpsmyndinni Vampyre
Nation/True Bloodthirst, sem sýnd
er á bandarísku sjónvarpsstöðinni
SYFY og bresku glæpaþáttunum
DCI Banks þar sem hún lék á móti
Stephen Thomkinson.
Heiða Rún útskrifaðist úr
þriggja ára námi frá Drama Center
í London árið 2010 og hefur búið í
London í sex ár. „Mér hefur gengið
vel síðan ég útskrifaðist enda ætlast
ég til mikils af sjálfri mér og finnst
ég alltaf geta gert betur. Auðvitað er
ég yfir mig þakklát og ánægð með
það sem ég hef gert hingað til en ég
stefni alltaf hærra eftir hvert verk-
efni,“ segir Heiða Rún sem væri til
í að vinna líka á Íslandi. „Ég hefði
mikinn áhuga á að koma til Íslands
fyrir eitthvað spennandi verk-
efni. Ég horfi upp til ákveðins fólks
heima og vonast til þess að fá að
vinna með þeim í framtíðinni. Ég
reyni að fylgjast með bransanum
á Íslandi og er ánægð með hversu
hratt hann vex og er farinn að dreif-
ast á alþjóðlegan markað.“
Aðspurð segir heiða Rún að
Los Angeles komi einnig til greina.
„Eins og er er ég í London í prufum
fyrir önnur verkefni en Los Angeles
væri alveg inni í myndinni. Kannski
seinna á árinu. Annars er ég bara
ánægð ef ég er að vinna, hvar sem
ég er. En stefnan mín er að gera
alltaf mitt besta og fá að vinna með
besta fólkinu í bransanum á al-
heimsvísu.“ n
indiana@dv.is„Ég hefði mikinn
áhuga á að koma
til Íslands fyrir eitthvað
spennandi verkefni.
Reno Stórleikarinn Jean
Reno leikur aðalhlutverkið
í glæpaþáttunum Jo. Heiða
Rún leikur dóttur hans.
Jo Sýningarréttur á þáttunum hefur nú
þegar verið seldur til 120 landa.
Leikkona Heiða
Rún gengur undir
kvikmyndanafn-
inu Heida Reed.
Vampíra Heiða Rún lék í bandarískum
vampíruþáttum.
Æfir með
Magga Bess
Athafnakonan Sigrún Lilja Guð-
jónsdóttir er komin í hóp ís-
lenskra kvenna sem æfa lyftingar.
Sigrún Lilja æfir með engum öðr-
um en vaxtarræktarkónginum
sjálfum Magga Bess og konu hans
Katrínu Evu sem kennd eru við
Betri árangur.
Sigrún Lilja hefur alltaf hugs-
að vel um heilsuna en fór að lyfta
fyrir alvöru í fyrrahaust. Þegar DV
forvitnaðist hvað hún væri farin að
taka í bekk vildi tískugyðjan ekki
nefna neinar tölur. „Við stelpurn-
ar erum í raun ekki að fókusera á
að taka ofurþyngdir í bekknum.
Okkar markmið eru frekar að
byggja upp stælta og stinna rassa,“
sagði Sigrún Lilja hlæjandi.
Hjón Þau Vera og
Damon giftu sig
óvænt eftir nokkurra
daga trúlofun en
margra ára vináttu.
Ólafur Darri
ræðir um tökur
í New York
Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson
leikur umsjónarmann kirkjugarðs
sem flækist óvart inn í djöfulleg
áform morðingja í kvikmyndinni A
Walk Among the Tombstones. Tök-
ur á myndinni hefjast síðar í þess-
um mánuði en hún verður frum-
sýnd á næsta ári. Ólafur Darri segir
tökurnar munu fara fram í borginni
sjálfri á vefnum spyr.is. „Tökurnar
á A Walk Among The Tombstones
verða í New York borg. Það verður
rosalega gaman því það er ekki
eins algengt og menn halda að það
sé skotið í New York þó myndir eigi
að gerast þar. Þær eru iðulega að
mestu leyti skotnar t.d. í Kanada.“