Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2013, Blaðsíða 6
þetta vegna þess að hún hafði fengið
sér vatn úr krananum fyrr um daginn
en þá hafði enginn sagt neitt.“
Gamalt mál
„Þetta er eldgamalt mál,“ segir Björn
Zoëga og bendir á að vatnskerfi gam-
alla húsa geti verið hættuleg þeim
sem eru með slæmt ónæmis kerfi.
„Það getur ræktast svokölluð her-
mannaveikibaktería og hún er ekkert
hættuleg neinum nema þeim sem
hafa veiklað ónæmiskerfi, en það eru
krabbameinssjúklingar venjulega
með.“
Hann segir ekkert slíkt tilfelli
hafa komið upp nýlega en að á viss-
um deildum séu gerðar þær varúð-
arráðstafanir að notast einfaldlega
ekki við kranavatnið. Aðspurður um
hvort hægt sé að laga þetta með því
að skipta um lagnirnar í húsinu segir
hann svo ekki vera: „Ég held að það
sé búið að laga það sem er hægt að
laga í svona gömlu húsi.“
Vita ekki hvort vatnið er öruggt
„Mér finnst þetta hálf óhugnan-
legt,“ segir dóttir konunnar. Hún
segir móður sína fyrst hafa talið að
6 Fréttir 18. mars 2013 Mánudagur
Níðst á þroskaskertri konu í áratugi
n Tengdasonur konunnar og stjúpfaðir hennar sagðir hafa misnotaða hana báðir
Á
ttatíu og tveggja ára maður
situr nú í gæsluvarðhaldi á
Litla-Hrauni vegna gruns
um að hafa misnotað
þroskaskerta konu í fjóra áratugi.
Greint var frá þessu í kvöldfrétt-
um Ríkissjónvarpsins á laugar-
dagskvöld. Þar kom fram að mað-
urinn sé grunaður um að hafa
byrjað að misnota konuna þegar
hún var tíu ára. Misnotkunin á að
hafa hafist þegar maðurinn hóf
samband við móður konunnar en
þau fluttust á sveitabæ á Snæfells-
nesi. Móðir konunnar átti í sam-
bandi við manninn um árabil og
dvaldi dóttir hennar oft hjá þeim
á sveitabænum. Heimildir RÚV
herma að maðurinn hafi brotið
gegn konunni fyrir skömmu síðan.
Konan sakar einnig tvö bræður
mannsins um að hafa brotið gegn
sér en þeir eru báðir látnir.
Konan eignaðist dóttur sem er
á fullorðinsaldri en ekki er vitað
hver faðir hennar er. Sambýlis-
maður dóttur konunnar hef-
ur viðurkennt að hafa misnotað
tengdamóður sína. Komst upp um
þau brot í janúar síðastliðnum og
teljast þau upplýst.
Segir RÚV manninn sem
minnst er á í upphafi ekki hafa
gengist við brotunum og er rann-
sókn málsins í höndum lög-
reglunnar á Akranesi. n
Þ
etta er bara varúðarráðstöf-
un,“ segir Björn Zoëga, for-
stjóri Landspítalans, í sam-
tali við DV. Ung kona hafði
samband við DV og benti á
að móður hennar, sem er í krabba-
meinsmeðferð á spítalanum, hefði
verið bannað að drekka kranavatnið
á spítalanum.
Var sagt að í því gætu leynst sýkl-
ar sem væru hættulegir fólki með
veikt ónæmiskerfi. Björn Zoëga segir
að um varúðarráðstöfun sé að ræða,
en það sé þekkt að í gömlu húsnæði
eins og Landspítalanum, geti ræktast
hermannaveikibaktería. Hermanna-
veiki getur verið lífshættuleg þeim
sem eru með veikt ónæmiskerfi en
dæmi eru um að fólk hafi dáið úr
henni hér á landi.
Mæðgunum brá
Móðir konunnar var lögð inn í
krabbameinsmeðferð í upphafi síð-
ustu viku. Þegar hún ætlaði að fara
að bursta í sér tennurnar um kvöldið
lét hjúkrunarfræðingur hana fá
vatnsflösku og varaði hana við krana-
vatninu.
„Við spurðum af hverju og hún
svaraði því til að það væru svo mikið
af gerlum og óhreinindum í krana-
vatninu að hún mætti alls ekki
drekka það. Okkur brá svolítið við
n Varúðarráðstafanir á Landspítalanum n Spítalinn óttast hermannaveiki
Veikri konu bannað
að drekka Vatnið
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Varúðarráðstafanir Björn Zoëga,
forstjóri Landspítalans, segir að fólk
á ákveðnum deildum sé beðið um að
forðast kranavatnið á spítalanum
vegna varúðarráðstafana.
Heimkynnin eru í vatni
n Tveir létust úr hermannaveiki á Íslandi
árið 2005. Yfirlæknir sóttvarna hjá Land-
læknisembættinu sagði þá í samtali við
Morgunblaðið að árlega greindust tveir til
þrír með hermannaveiki hér á landi.
n Á Vísindavefnum segir eftirfarandi um
Hermannanaveiki: „Hermannaveiki orsak-
ast af bakteríu sem kallast Legionella
pneumophila. Sýking af völdum þessarar
bakteríu greindist fyrst eftir ráðstefnu
gamalla bandarískra hermanna sem
haldin var á hóteli í Fíladelfíu árið 1976.
Hátt í 200 manns veiktust og margir dóu.
Við krufningu fannst bakterían í sýni frá
lungum. Nú eru þekktar yfir 40 tegundir
Legíónella–bakteríunnar en einungis fáar
þeirra eru sjúkdómsvaldandi í mönnum.“
n „Náttúruleg heim-
kynni bakteríunnar
eru í vatni, hún þolir
hitastig frá 0–63°C en
kjörhitastig hennar er um
það bil 30–40°C. Legíónella-
bakterían getur lifað árum saman í vatns-
tönkum við 2–8°C og sest oft að í lokuðum
endum pípulagna stórra bygginga þar sem
vatnið stendur kyrrt og hitastig er ekki
hátt. Fullfrískir ungir einstaklingar geta
fengið bakteríuna í öndunarvegi án þess að
veikjast og er hún hættulítil í þeim tilvikum.
Alvarleg veikindi verða yfirleitt hjá einstak-
lingum með undirliggjandi áhættuþætti
en þeir eru helstir hár aldur, reykingar,
langvinnir lungnasjúkdómar, ónæmis-
skerðing, áfengissýki og nýrnabilun.“
„Mér finnst
þetta hálf
óhugnanlegt
það væri hluti af krabbameinsmeð-
ferðinni að drekka ekki kranavatn
en að þær hafi orðið hissa þegar þær
heyrðu skýringuna.
Forstjóri Landspítalans skilur
áhyggjur fólks en segir þetta einmitt
gert til þess að koma í veg fyrir veik-
indi. „Það er búið að laga það sem
hægt er að laga, við vitum ekki hvort
þetta er öruggt, þannig að þetta eru
bara varúðarráðstafanir.“ n
Gamalt húsnæði Það getur verið erfitt
að eiga við það þegar sýkingar eins og
hermannaveiki hreiðra um sig í vatnslögn-
um gamalla bygginga eins og húsnæðis
Landspítalans, segir forstjóri Landspítalans.
Gamall maður í haldi Karlmaður á
níræðisaldri situr í gæsluvarðhaldi á Litla-
Hrauni vegna gruns um misnotkun.
Dýr leit
Björgunaraðilar lögðu á sig mikla
vinnu og umtalsverðan kostnað
aðfaranótt sunnudags þegar þeir
leituðu að fólki á Vatnajökli. Til-
kynnt var um að neyðarblys hefði
sést á lofti, upp af Jökulheimum.
Flugvél, þyrla og leitarflokkar
kembdu svæðið en hvorki fannst
tangur né tetur af fólki í vanda.
Kannaðar voru helstu leiðir og
staðir með sex til átta bílum og
tveimur snjóbílum en ekki var færi
þar fyrir vélsleða.
Fimm tímum eftir að leit hófst
úr lofti lenti flugvél Landhelgis-
gæslunnar í Reykjavík, en engin
skýring hefur komið fram á því
hver skaut upp blysinu.
Skuldvanda
ríkisins lokið
Íslenska ríkið stendur ekki lengur
frammi fyrir skuldavanda og er-
lend skuldastaða ríkisins er orðin
viðráðanleg
og sjálfbær
sagði Már
Guðmunds-
son seðla-
bankastjóri
á ráðstefnu í
Lundúnum
fyrir helgi. Þar
kom fram að
helsta vanda-
málið væri
gjaldeyrisójöfnuður þar sem
landið skuldar meira í erlendum
gjaldeyri en það aflar. Þá er erlend
skuldastaða einkaaðila til vand-
ræða. Að sögn Más er tekjuafgang-
ur nú hjá ríkissjóði og fjárlaga-
hallinn aðeins eitt til tvö prósent
af áætlaðri landsframleiðslu Ís-
lands á árinu 2013. Næstu verk-
efni að mati seðlabankastjórans
eru afnám fjármagnshafta, sem sé
erfitt og krefjandi verkefni.
Fótbrotin á
Austurvelli
Það var ansi mikill erill hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
um helgina.
Á laugardagkvöldið var
einstaklingur færður á lögreglu-
stöð frá stórmarkaði en við-
komandi var í annarlegu ástandi
og grunaður um þjófnað. Hann
gisti í fangageymslu. Rétt fyrir
klukkan eitt um nóttina þurfti lög-
reglan svo að aðstoða konu sem
hafði misstigið sig við Austurvöll,
hún var talin vera fótbrotin og var
flutt með sjúkrabifreið á slysadeild
til aðhlynningar. Flytja þurfti
fleiri á slysadeild í gærkvöldi því á
veitingahúsi í miðborginni hafði
einn dottið á höfuðið og rotast.
Már Guðmundsson