Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2013, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2013, Qupperneq 11
Barnið tekið tveggja tíma gamalt 10 Fréttir skýrt fram að markmið Barna- verndar sé að tengsl myndist ekki milli barns og móður. Í úrskurðin- um segir: „Drengurinn er nú átta daga gamall og hefur ekki mynd- að tengsl við móður. […] Telja starfsmenn [barnaverndar] að það þjóni ekki hagsmunum drengs- ins að umgengni verði daglega 12 klst. enda ekki markmiðið að hann myndi tengsl við móður“ Þetta gera Heiðdís og lögmaður hennar miklar athugasemdir við, enda sé um að ræða ótímabundna vistun – eitthvert ýtrasta úrræði Barna- verndar. Stofnunin hefur úrskurð- að að foreldrarnir megi hitta hann einu sinni í mánuði í tvo klukku- tíma í senn. Í bígerð er krafa um forsjár- sviptingu, sem þýðir að Barna- verndarnefnd telji ástæðu til að drengurinn fari í varanlegt fóstur til átján ára aldurs. Lögmaður hennar hefur bent á að tengsl móður og barns hafi þegar myndast, en Heið- dísi hafi ekki verið gefið tækifæri til þess að mynda frekari tengsl við drenginn að neinu marki, eða sýna fram á að hún sé hæf til þess að sinna barninu, þrátt fyrir yfirlýs- ingu um fullt samstarf við barna- verndaryfirvöld. „Það var aldrei rætt hvort ég væri fús til samvinnu og því finnst mér skrítið að tala um að ég hafi verið ósamvinnufús,“ segir Heiðdís. Eftir að drengurinn var vistaður hjá Barnavernd óskaði hún eftir samstarfi sem væri meðal annars fólgið í því að hún dveldi hjá drengn- um á vistheimilinu undir sólar- hringseftirliti. Því hefur verið hafn- að. Þá hefur barnsföður Heiðdísar ekki verið gert kleift að fá forræði yfir rúmlega vikugömlum syni sínum og við það er hann mjög ósáttur. Nú bíða Heiðdís og lögmaður hennar eftir meðferð Héraðsdóms Reykja- víkur, enda telja þau að aðgerðin sé óþarflega harkaleg í ljósi sam- starfsvilja Heiðdísar en samkvæmt barnaverndarlögum beri að beita eins vægum aðgerðum og kostur er. Sú hafi ekki verið raunin. Erfiður tími og bið Heiðdís segir atvikið á fæðingarstof- unni hafa verið mjög átakanlegt. Hún upplifði það sem svo að hún væri neydd til að afsala sér barninu og stendur nú í þeirri trú að Barna- vernd hafi aldrei ætlað sér að veita henni forræði yfir því, sama hver þróun hennar mála yrði. Hún telur Barnavernd þegar hafa ákveðið lyktir málsins. „Mér finnst þetta bara skelfilegt. Ég bæði græt mig í svefn og græt í svefni. Síðustu dagar hafa verið mjög erfiðir. Ég get ekki hugsað mér að vera heima hjá mér því þar bíður allt tilbúið fyrir hann og ég bíð með alla þá ást sem ég hef að gefa,“ segir Heiðdís. „Við viljum bara fá hann heim.“ n Fréttir 11Mánudagur 18. mars 2013 Allt tilbúið Heima bíður drengsins allt tilbúið, uppábúið rúm og spenntir foreldrar. Mynd sigtryggur Ari Við viljum bara fá hann heim

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.