Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2013, Side 16
Víking páskabjór skástur
16 Neytendur 18. mars 2013 Mánudagur
Algengt verð 254,8 kr. 255,6 kr.
Algengt verð 254,6 kr. 255,4 kr.
Höfuðborgarsvæðið 254,5 kr. 255,3 kr.
Algengt verð 254,8 kr. 255,6 kr.
Algengt verð 256,9 kr. 255,6 kr.
Höfuðborgarsvæðið 254,6 kr. 255,4 kr.
Eldsneytisverð 17. mars
Bensín Dísilolía
n Dómnefndin varð fyrir vonbrigðum með páskabjórinn í ár
D
ómnefnd valdi Víking
Páskabjór sem besta páska
bjórinn í árlegri páska
bjórsmökkun DV. Athygli
vekur að meðaleinkunn
besta bjórsins er aðeins 6,25. Í ár
eru sjö tegundir íslensks páskabjórs
til sölu í Vínbúðunum og voru þær
allar með í smökkuninni. Páskakaldi
frá Bruggsmiðjunni varð í öðru sæti
með 6,0 í einkunn og Víking Páska
Bock í því þriðja með einkunnina 5,7.
Dómnefndin
Dómnefndina skipuðu Erla Tryggva
dóttir, dagskrárgerðarkona á RÚV,
Stefán Guðjónsson, eigandi Vín
smakkarans, Rakel Garðarsdóttir,
framleiðandi Vesturports og knatt
spyrnustjóri FC Ógnar, og Halldór
Högurður ráðgjafi. DV fékk góð
fúslegt leyfi til að halda smökkun
ina á Danska barnum líkt og áður.
Smökkunin fór fram með þeim
hætti að borinn var fram einn bjór
fram í einu og vissi dómnefnd ekki
um hvaða bjór var að ræða. Hún gaf
einkunnir og ræddi svo um kosti og
galla hverrar tegundar.
„sami litur, sama bragð”
Þegar dómnefnd var spurð hvað
einkenndi góðan páskabjór voru
dómnefndarmeðlimir sammála
um að hann eigi að vera ferskur,
léttur, ljós og frískandi. „Ég hef þó
orðið fyrir svolitlum vonbrigðum
undanfarið með þessa þemabjóra.
Það er eins og það sé smá græðgi í
gangi og að bjórinn sé endurnýttur
með nýjum límmiðum,“ segir
Rakel og dómnefndin tekur undir
það. „Já, það hefur verið sami litur
og sama bragð. Það er eins og að
þeir hafi fundið eitthvað sem seld
ist vel og ekki þorað að breyta. Það
bitnar á kaupandanum ef þeir telja
honum trú um að þetta sé eitt
hvað annað, bara af því að það er
kominn nýr miði á flöskurnar,“
segir Stefán.
of dökkur og vetrarlegur
Að smökkun lokinni voru þau sam
mála um að enginn bjór væri fram
úrskarandi í þetta skiptið. „Páska
bjórinn á að vera hátíðlegur, það er
að koma vor og hann ætti að vera
ljós, léttur og frískandi. Það er ekkert
svoleiðis í gangi hérna,“ segir Rakel.
Þeim fannst nokkrir bjórarnir of
dökkir og vetrarlegir sem hefðu sómt
sér vel í flokki jólabjóra. Hins vegar
væri enginn þeirra nægilega páska
legur. „Já, þetta eru ákveðin von
brigði og skilaboð til brugghúsanna
að vanda sig betur,“ segir Halldór. n
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Þessir voru
bestir í fyrra
DV hefur staðið fyrir sams konar
páskabjórsmökkun undanfarin ár en
í fyrra var það Víking Páska Bock sem
fékk hæstu einkunn dómnefndar.
Hann fékk 8,5 að meðaltali af 10
mögulegum, Páska Gull varð í öðru
sæti með 6,3 og Páska Kaldi varð í
þriðja sæti en þá voru fimm íslenskar
tegundir af páskabjór smakkaðar.
Dómnefndina þá skipuðu Anna
Svava Knútsdóttir leikkona, Ragnar
Freyr Rúnarsson, læknir og formaður
vefjarins bjorbok.net, Rakel Garðars-
dóttir, knattspyrnustjóri FC Ógnar og
framleiðandi hjá Vesturporti, Kjartan
Ólafsson, veitingahúsarýnir hjá Gest-
gjafanum, Henry Birgir Gunnarsson,
íþróttafréttamaður og rithöfundur, og
Anna Brynja Baldursdóttir leikkona.
að störfum Rakel Garðarsdóttir og Halldór Högurður þenja skilningarvitin.
Passaðu berin
Mikilvægt er að vera á varðbergi
gagnvart frosnum berjum, segir
Matvælastofnun, þar sem faraldur
af lifrarbólgu A (Hepatitis A) hefur
verið staðfestur í Danmörku og
rakinn til frosinna berja.
„Í Danmörku hafa síðustu
mánuði komið upp 30 tilfelli af
lifrarbólgu A (Hepatitis A) og er nú
talað um faraldur. Rannsókn hefur
leitt í ljós að uppruni smits getur
verið frosin ber sem notuð hafa
verið ósoðin í drykki (smoothies),
eftirrétti og kökur. Ekki hefur enn
verið hægt að benda á ákveðna
tegund berja en rannsókn er í
gangi,“ segir Matvælastofnun, en
stofnunin og danska matvæla
stofnunin ráðleggja neytend
um nú að sjóða öll ber sem nota
á í drykki, eftirrétti og kökur.
Matvæla stofnun hefur áður ráð
lagt neytendum að sjóða hindber
og á umbúðum hindberja sem eru
á markaði hér eru ráðleggingar
þar að lútandi, enda séu vörurn
ar hér á markaði sambærilegar
þeim dönsku. Best er að sjóða ber
in í eina mínútu áður en þau eru
notuð.
Bankarnir fá
falleinkunn
Traust til þeirra sem bjóða veðlán
er áberandi lægra á Íslandi en að
meðaltali í Evrópu. Sá markaður
nýtur enn fremur minnsta trausts
ins hér á landi. Þetta má lesa út úr
niðurstöðum skorkorts neytenda
mála fyrir árið 2012. Skorkortið er
unnið á vegum Evrópusambands
ins þar sem viðhorf 650.000 neyt
enda er kannað út frá 51 markaði
með vöru og þjónustu. Frá þessu
er greint á vef Neytendastofu.
Af þeim mörkuðum sem skoð
aðir voru eru Íslendingar óánægð
astir með þjónustu þeirra sem
veita lán. Þá kemur aðgengi neyt
enda til að gera samanburð á fjár
festingarkostum mun verr út á Ís
landi en að meðaltali í Evrópu.
Internetþjónusta á Íslandi
kemur ekki vel út í samanburði við
Evrópulöndin. Vandamál tengd
interneti reyndust mun algengari
hér en annars staðar í Evrópu.
Á móti kemur að Íslendingar
eru ánægðari með þjónustu verk
stæða en aðrir Evrópubúar og hér
er orkumarkaðurinn betri, þegar
horft er til þjónustu, en víðast hvar
í Evrópu.