Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2013, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2013, Page 18
18 Menning 18. mars 2013 Mánudagur Krefjandi en góður G od of War-leikirnir eiga sér gríðarstóran aðdáendahóp enda leikirnir óumdeilanlega í hópi þeirra bestu og flottu- stu sem komið hafa út á Playstation. Á dögunum kom út sjöundi leikurinn í þessari seríu: God of War: Ascension. Leikurinn gerist á undan fyrri leikjun- um, eða þegar Kratos var svikinn af stríðsguðinum Ares. Eins og þeir sem spilað hafa leikina vita byggir God of War að hluta á grísku goðafræðinni þannig að leikirnir hafa líka ákveðið fróðleiksgildi. En snúum okkur að leiknum sjálf- um. Allt umhverfi leiksins er stórbrotið og grafík og söguþráður að venju til fyrirmyndar. Þá hefur nokkrum nýj- ungum verið bætt við; í einspiluninni hefur bardagakerfið verið tekið aðeins í gegn og þú getur fært tímann fram og aftur. Stærsta viðbótin er þó átta manna netspilun sem gefur leiknum gott endingargildi. Þó einspilunin sé á köflum hröð koma augnablik þar sem þú þarft að beita rökhugsun og hugviti til að leysa ýmsar þrautir. Það getur tekið sinn tíma en biðin er algjörlega þess virði þegar það loksins tekst. Fyrstu borðin renna nokkuð þægilega í gegn og koma sjaldan augnablik þar sem þú lendir í verulegum vandræðum. Það kom þó að því eftir tíu klukkustunda spilun, í borði 28, að ég, eða Kratos öllu heldur, lenti á vegg. Sá hluti leiks- ins er klárlega einn sá erfiðasti sem undirritaður hefur nokkurn tímann spilað. Þú þarft að hafa fullkomið vald á Kratos og nýta alla hans eiginleika til að eiga minnsta möguleika á að vinna óvinabylgjurnar sem mæta þér. Það getur tekið 15–20 mínútur að komast að síðustu bylgjunni og ef þú klikkar þarftu að byrja upp á nýtt. Leikir mega vera krefjandi en að þurfa að eyða nokkrum klukkutímum í sama borðinu er allt að því óþolandi. Þeim tilmælum er því beint til þeirra sem hafa ekki spilað God of War-leikina áður, en vilja spreyta sig á þessum, að spila leikinn í „easy“ til að gera þetta viðráðanlegra. God of War: Ascension er vægðar- laus og ansi krefjandi á köflum en þrátt fyrir það er erfitt að slíta sig frá honum. Þetta er einn af þessum leikjum sem þú getur ekki látið frá þér án þess að klára. n Tölvuleikur Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is God of War: Ascension Tegund leiks: Ævintýra- og hasarleikur Gert fyrir: PS3 Mikilfenglegur God of War: Ascension er eiginlega listaverk og í alla staði flottur. Allt um RFF n Sjö hönnuðir sýndu fatalínur sínar R eykjavik Fashion Festival, betur þekkt sem RFF, fór fram um liðna helgi. Þetta er í fjórða sinn sem tísku- hátíðin fer fram en mark- mið hennar er að vekja athygli á íslenskri fatahönnun, bæði hér heima fyrir og erlendis. Sjö hönnuðir kynntu línur sín- ar í ár og komust færri að en vildu. Nítján hönnuðir sóttu um að taka þátt og sá sérstakt fagráð um að velja hönnuði til sýningarinnar. n JÖR Kvenútgáfan af Al Capone S tjarnan í íslenskum tískuheimi er án efa hinn framtakssami og frumlegi, Guðmundur Jör- undsson, sem sýnir sitt eigið merki í ár, JÖR. Í fyrra sýndi hann á vegum herrafataverslunar Kormáks og Skjaldar. Loksins, loksins, mátti heyra gesti á sýningu hans segja en þeir hrifust af töffaralegum stílnum í kventísku hans sem gaf hughrif um nýja tegund „femme fatale“. Kannski kvenútgáfan af Al Capone! Það er mikil vakning í herratísk- unni um þessar mundir og er hún sú framsæknasta á landinu sem komið er. Farmer‘s Market Rómantískt og frjálst B ergþóra Guðnadóttir tók ekki þátt í fyrra en sýndi á RFF í ár. Merki hennar, Farmers Market, er hvað þekktast fyrir lopapeysur. Bergþóra hefur frá árinu 2005 lagt mikla rækt við merki sitt og hönnunin er mjög meðvitað inn- blásin af íslenskri arfleifð. Þá er ekki síður hluti af heildarmyndinni þau faglegu vinnubrögð sem hún hefur tamið sér og virðing fyrir umhverf- inu. Margir íslenskir hönnuðir hafa hana sem fyrirmynd í þeim efnum í dag. Það var því gaman að sjá Berg- þóru taka ímyndina alla leið á sýn- ingu sinni. Síð pilsin og lagskiptur ullarklæðnaður vakti mikla lukku, stíllinn er eftir sem áður róman- tískur og frjálslegur í anda. ELLA Fallegir síðkjólar Í slenska „slow-fashion“ fata- merkið ELLA, með Elínrós Lín- dal í fararbroddi, tók þátt eins og í fyrra og eins og áður var klassískur kvenleiki í fyrirrúmi þar sem mjúkar línur fá að njóta sín til hins ýtrasta. Skemmtilegastir voru íðilfagrir síðkjólar og glæsi- leg stríðsárasnið með merkjum nútímans. Gæðalegur glæsileiki án íburðar eða tilgerðar, væri ágæt samantekt á ELLU. Vakning í herratísku Herrafatnaðurinn var ekki síður spennandi en kvenfatnaður- inn og djörf notkun á mynstrum var áhættu- sækin en gríðarlega vel heppnuð. Stílhreint Lína Rebekku er afar áferðar- falleg og skörp. REY Vel útreiknaður og fágaður einfaldleiki Þ að er fatahönnuðurinn Rebekka Jónsdóttir sem stendur að baki merkisins REY. Hönnun REY snýst að sögn hönnuðar um gæði og heiðar- leika og fagurfræðin er mínimalísk þó með blæbrigðamun. Á sýn- ingu REY mátti sjá einfaldleikan í fyrirrúmi og sniðin voru áberandi gæðaleg. Rebekka hefur skarpan og útreiknaðan stíl og sýning hennar var á sama tíma áreynslulaus og ná- kvæm. Síð pils – lagskipt Bergþóra tekur ímyndina alla leið – vel heppnað. Ull í fyrirrúmi Rómantískt og frjálst og vel unnið úr íslenskri ull. Kvenleiki Mjúkar línur fá að njóta sín. Vel heppnað Sýning ELLU var glæsileg. Síð snið Gaman að sjá síð snið á sýningu Ellu. Gæðalegur glæsileiki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.