Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2013, Page 12
12 Fréttir 12. júní 2013 Miðvikudagur
Dádýr festi
höfuðið í
flögupoka
Þetta litla dádýr í Flórída lenti
í töluverðum vanda síðastliðið
laugardagskvöld þegar það rakst
á Dorritos-poka á ferðum sínum
og festi höfuðið í flögupokanum.
Lögreglan kom að dýrinu og kom
því til bjargar. Samkvæmt upplýs-
ingum frá embættinu sýndi dýrið
mikla biðlund á meðan lögreglan
bifaðist við að ná pokanum af höfði
þess. Í kjölfarið bað lögreglan gesti
og gangandi um að ganga vel um
svæðið og ganga vel frá rusli svo
það skaði ekki dýrin á svæðinu.
Huffington-Post sagði frá.
Beðið fyrir
Mandela
Nelson Mandela var fluttur á spít-
ala á laugardag vegna öndunarerf-
iðleika eftir að lungnasýking sem
hrjáði hann um hríð tók sig upp að
nýju. Hann hefur verið heilsuveill
að undanförnu og hefur fjórum
sinnum verið lagður inn á spítala
á síðustu sex mánuðum. Ástand
hans er alvarlegt en stöðugt.
Forseti Suður Afríku, Jacob
Zuma, bað þjóðina um að biðja
fyrir Mandela sem verður 95 ára
gamall í næsta mánuði. Erkibisk-
upinn, Desmond Tutu, bað einnig
fyrir Mandela á mánudag og þakk-
aði fyrir það sem Mandela hefur
gefið af sér um leið og hann óskaði
þess að fjölskylda hans fyndi styrk
á þessum erfiðu tímum.
Árið 1994 varð Nelson Mand-
ela var fyrsti lýðræðislega kjörni
forseti Suður-Afríku en hann var
forseti í fimm ár. Áður hafði hann
setið í fangelsi á Robben-eyju í 27
ár fyrir að berjast gegn kynþátta-
aðskilnaðarstefnunni. Hann hefur
ætíð verið talsmaður friðar, sáttar
og réttlætis og fékk friðarverðlaun
Nóbels árið 1993.
Fann morðingja
föður síns á
netinu
Tuttugu og sex árum eftir að fað-
ir Joselyn Martinez var myrtur
fyrir utan veitingastað í New
York í Bandaríkjunum fann hún
morðingjann. Morðinginn sem
heitir Justo Santos, skaut föður
Martinez til bana eftir rifrildi og
flúði í kjölfarið til Dóminíska lýð-
veldisins og hefur því aldrei þurft að
svara fyrir glæpinn.
Joselyn hefur síðastliðin tíu ár
reynt að hafa upp á Santos en hún
var níu ára gömul þegar faðir henn-
ar var myrtur. Hún fann upplýsingar
um Santos á netinu og kom þeim til
lögreglunnar sem handtók Santos í
Miami í Bandaríkjunum og greinir
The New York Post frá því að hann
hafi játað á sig morðið.
Meirihluti styður
njósnir stjórnvalda
R
íkisstjórn Barack Obama
hefur ekki átt sjö dagana
sæla að undanförnu. Í síð-
ustu viku afhjúpuðu breska
dagblaðið The Guardian og
bandaríska dagblaðið Washington
Post einstaklega umfangsmikið eft-
irlitskerfi Þjóðaröryggisstofnunar
Banda ríkjanna (NSA) sem mörgum
þykir ganga allt of langt í upplýsinga-
öflun um almenna borgara. Upp-
ljóstrunina má þakka hinum 29 ára
Edward Snowden, fyrrverandi starfs-
manni leyniþjónustunnar CIA, en
hann fer nú í huldu höfði og hefst við
í Hong Kong.
Almenningur styður njósnirnar
Málið telst hið mesta hneyksli og
bandarísk stjórnvöld hafa sætt mikilli
gagnrýni í fjölmiðlum. Á hinn bóg-
inn sýna kannanir nú að svo virðist
sem almenningur í landinu hafi ekki
teljandi áhyggjur af persónunjósn-
um NSA. Að minnsta kosti er rúm-
ur meirihluti Bandaríkjamanna
hlynntur ráðstöfunum ríkisvalds-
ins í þessum efnum samkvæmt nýrri
könnun frá Pew Research Center.
Á meðal demókrata mælist stuðn-
ingur við aðgerðir NSA 64 prósent en
stuðningurinn er 52 prósent með-
al repúblikana. Það er þveröfugt við
niðurstöðu samsvarandi könnun-
ar sem gerð var árið 2006 þar sem
75 prósent repúblikana töldu rétt-
lætanlegt að hlera símtöl almennra
borgara í því skyni að berjast gegn
hryðjuverkum en aðeins 37 prósent
demókrata voru á sama máli.
Njósna um saklausa borgara
Uppljóstrun The Guardian og Wash-
ington Post hefur leitt í ljós að NSA
hefur afar víðtækar heimildir til að
safna gríðarlegu magni persónu-
upplýsinga um einstaklinga með
aðstoð þarlendra símafyrirtækja.
Stofnunin safnar til dæmis daglega
gögnum um öll símtöl sem fara í
gegnum kerfi símarisans Verizon,
bæði innanlands og á milli Banda-
ríkjanna og annarra landa. Þetta eft-
irlit nær til Bandaríkjamanna, al-
gjörlega óháð því hvort viðkomandi
einstaklingar eru grunaðir um ólög-
legt athæfi.
Þá fer gagnaöflun stofnunar-
innar að miklu leyti fram í gegn-
um hugbúnaðar- og netfyrirtæki á
borð við Facebook, Google, Micro-
soft og Apple. Aðgangur NSA að
gögnum netfyrirtækjanna fékkst
með áður óupplýstu verkefni sem
kallast PRISM, en það gerir stofn-
uninni kleift að safna gögnum eins
og leitarsögu, tölvupóstum, spjall-
samskiptum og skjölum sem send
eru milli notenda.
Í þágu þjóðaröryggis
Barack Obama Bandaríkjaforseti
hefur reynt eftir fremsta megni að
sefa gagnrýnisraddir. Sjálfur seg-
ist hann hafa litið málið heilbrigð-
um efasemdaraugum í fyrstu en nú
líti hann svo á að aðgerðirnar séu
nauðsynlegar í þágu þjóðaröryggis.
„Það er enginn að hlusta á símtöl-
in ykkar. Ég veit að fólkið sem vinn-
ur að þessum aðgerðum vinnur af
mikilli fagmennsku,“ segir Obama
og bætir við að eftirlitið taki ekki
til innihalds símtala heldur að-
eins símanúmara og lengdar sím-
tala. Að sama skapi hefur Obama
sagt að starfsmenn ríkisins lesi ekki
tölvupóst borgara. Eftirlitskerfi
internetsins taki ekki til banda-
rískra ríkisborgara og fólks sem
býr í Bandaríkjunum. „Það er ekki
hægt að njóta 100 prósent öryggis
og 100 prósent friðhelgi einkalífs
án allra óþæginda. Við þurfum að
alltaf að velja á milli að einhverju
leyti.“
Vill sækja um hæli á Íslandi
Eins og áður sagði hefst Edward
Snowden nú við í Hong Kong en
hann telur sér ekki stætt á að dvelj-
ast í Bandaríkjunum. Þar fer hann
huldu höfði eftir að hafa verið var-
aður við því að líklega sé hann
ekki fyllilega öruggur í landinu.
Snowden hefur lýst því yfir að hon-
um gæti hugnast að sækja um hæli
á Íslandi en það getur hann ekki
gert nema hann sé staddur hér á
landi.
Snowden segist vilja koma hing-
að þar sem hann telji að Íslendingar
og hann eigi samleið þegar kemur
að netfrelsi og verndun uppljóstr-
ara. Þau Birgitta Jónsdóttir, þing-
maður Pírata, og Smári McCarthy
ætla að leggja Snowden lið, vilji
hann koma hingað til lands. Hafa
þau þegar óskað eftir fundi með
innanríkisráðherra, Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, vegna málsins. Á
vef Guardian er því haldið fram að
Snowden verði minnst sem eins
mikilvægasta uppljóstrara sögunn-
ar en þeirra á meðal eru menn á
borð við Daniel Ellsberg og Bradley
Manning. Ellsberg bar ábyrgð á leka
á Pentagon-skjölunum svokölluðu
árið 1971. Bradley Manning hef-
ur verið í haldi bandarískra yfir-
valda síðan í maí árið 2010 fyr-
ir að leka hernaðarleyndarmálum
til WikiLeaks. Margir hafa gagn-
rýnt óréttláta meðferð bandarískra
stjórnvalda á Manning og talið er
að hann eigi yfir höfði sér lífstíðar-
fangelsi. Því verður ekki annað sagt
en að ákvörðun Snowden um að
leka gögnunum feli í sér töluverða
áhættu. n
n Snowden er 29 ára tölvunarfræðingur n Vill sækja um hæli á Íslandi
Gagnrýndur Edward Snowden
varð fyrir vonbrigðum þegar hann
komst að því að Barack Obama
Bandaríkjaforseti hyggist ekki snúa
af braut persónunjósna eins og hann
hafði búist við eftir forsetakosn-
ingarnar í landinu árið 2008.
Hver er Edward
Snowden?
n Edward Snowden er fæddur í Norður-
Karólínu árið 1983 og verður 30 ára í
þessum mánuði.
n Skráði sig í bandaríska herinn árið
2004 og átti að berjast í Írak. Fótbrotn-
aði á báðum fótum við heræfingu og fór
aldrei á vígstöðvarnar.
n Starfaði sem kerfisstjóri og öryggis-
fulltrúi tölvumála, meðal annars fyrir
bandarísku leyniþjónustuna CIA og
einkarekið fyrirtæki sem vinnur að
varnarmálum fyrir Þjóðaröryggisstofn-
un Bandaríkjanna (NSA).
n Nú síðast starfaði Snowden á
skrifstofu NSA á Hawaii. Hann segist
hafa lifað góðu lífi með árslaun upp á
200 þúsund dollara, sem nemur um 2
milljónum króna á mánuði.
n Aðeins eru þrjár vikur síðan Snowden
afritaði síðustu gögnin sem hann lak.
Hann sagði vinnuveitendum sínum að
hann þyrfti að fara í flogameðferð og
flúði svo til Hong Kong.
n Kærasta Snowden er 28 ára dansari,
Lindsay Mills að nafni. Snowden tjáði
henni að hann yrði í burtu í nokkrar
vikur en gæti ekki gefið upp ástæður
ferðarinnar.
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is