Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2013, Qupperneq 23
Menning 23Miðvikudagur 12. júní 2013
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
Lýsing felur í sér eftirfarandi:
Krossey, markmið: Endurskipulag umferðar. Skilgreina
byggingarmagn og byggingarreiti á byggðum óbyggðum lóðum.
Heimila stækkun og sameiningu lóða og lokun gatna. Auka
umferðaröryggi gangandi vegfarenda og gera húsakönnun.
HSSA, markmið: Að tryggja að hjúkrunarrými og aðstaða sé í
samræmi við lög og auknar kröfur. Tryggja aukið framboð af þjónustu-
íbúðum.
Bæta þjónustu við núverandi notendur þjónustunnar.
Að tryggja nægt rými vegna aðstöðu vistmanna, starfsfólks og annarra
þátta samfara þjónustu HSSA við íbúa.
Auka framboð áhugaverðra íbúðarlóða í sveitarfélaginu.
Lýsing verður til sýnis í Ráðhúsi Sveitafélagsins Hornafjarðar,
Hafnarbraut 27, 780 Höfn frá 12. júní – 1. júlí 2013 og á heimasíðu
sveitarfélagsins. http://www.hornafjordur.is/stjornsysla/
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á
að gera athugasemdir við lýsingu.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 1. júlí 2013 og skal senda
þær á netfangið runars@hornafjordur.is eða skila þeim í Ráðhús
Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn.
F.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar 12. júní 2013.
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson
Umhverfis og skipulagstjóri
.
Bæjarstjórn Hornafjarðar
auglýsir.
Nýtt deiliskipulag Krossey og
Heilbrigðistofnun Suð-
austurlands (HSSA)
Lýsing
Kjötkássa á flóðasvæðum Ef eitthvað er að marka fjölmiðla á netinu þá er mikil flóða-
hætta í Búdapest, þar sem ég er staddur. Það er þó harla erfitt að greina það fyrir aðkomu-
mann eins og mig, vissulega eru skilti í ánni, bekkir og aðrir hlutir sem ég á auðveldara með
að ímynda mér á föstu landi – en þegar ég spyr heimamenn hvort ekki sé allt í lagi, benda
þeir bara á næsta bar og bjóða mér ungverska kjötkássu og bjór.
Augnablikið
Hinir raunverulegu
náttúruníðingar
n Orðræðan í kringum meint náttúruníð Julius von Bismarck er úr takti við raunveruleikann
Lögreglumál Málið á hendur Bismarck
hefur verið sent Alþjóðadeild ríkislög-
reglustjóra.
Julius von Bismarck Umdeildur lista-
maður og meintur náttúruníðingur.
H
ópur listamanna hefur opnað
gallerí í Kópavogi sem kallast
gallerí Anarkía og er til húsa
í Hamraborg inni. Fyrstu sýn-
ingarnar opna um helgina og eru
báðar eftir listmálarann Bjarna Sig-
urbjörnsson. „Okkur langaði að búa
til sal þar sem allir gætu sýnt verk-
in sín, sama hve menntaðir lista-
mennirnir eru,“ segir Bjarni en sýn-
ingar hans heita: Að flá fiðrildi og
Svífa svartir skurðir. Í fréttatilkynn-
ingu frá hópnum segir að hópur-
inn láti sér mælistikur og stofnanir
„listheimsins“ í léttu rúmi liggja. „Er
ekki tilvalið að anarkíu-gallerí opni í
Kópavogi,“ segir Bjarni. „Kópavogur
er jú fæðingarstaður pönksins á Ís-
landi.“ n
Simonb@dv.is
Anarkískt gallerí
opnar í Kópavogi
Listahátíð
heldur áfram
Tíu sýningar af Listahátíð í Reykjavík verða
áfram til sýnis fyrir gesti og gangandi.
Listahátíð lauk sunnudaginn 2. júní. Yfir
600 listamenn tóku þátt í hátíðinni og um
tuttugu þúsund manns sóttu viðburðina,
að því er fram kemur í tilkynningu frá stjórn-
endum hátíðarinnar. Þrátt fyrir að formlegri
dagskrá hátíðarinnar sé lokið munu tíu
myndlistarsýningar áfram verða opnar
fram eftir sumri. Meðal þeirra sýninga
sem opnar verða til loka júní eða lengur
er sýning Magnúsar Pálssonar í Listasafni
Reykjavíkur. Kaflaskipti í Hafnarhúsinu. Art
= Text = Art í Hafnarborg. Huglæg landa-
kort – mannshvörf í Listasafni Íslands.
Sýning á verkum Magnúsar Kjartanssonar í
Hverfisgalleríi og Nafnlaus hestur Spessa í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur.