Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2013, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2013, Side 2
deilur enda í dómsal Áralangar fjölskyldu- 2 Fréttir 10. júlí 2013 Miðvikudagur n Eigendur Milestone og forstjórinn ákærðir fyrir kaup félagsins á hlutabréfum Ingunnar í fyrirtækinu S tjórnendur eignarhaldsfé­ lagsins Milestone voru síð­ ur en svo sáttir við að þurfa að borga Ingunni Wern­ ersdóttur, systur aðal­ eigenda Milestone, fimm milljarða króna fyrir 28 prósenta hlut henn­ ar í eignarhaldsfélaginu árið 2005. Gengið var frá viðskiptunum árið 2005 og bárust greiðslurnar til henn­ ar á árunum 2006 og 2007. Bræð­ ur Ingunnar, Karl og Steingrímur, hafa nú verið ákærðir vegna við­ skiptanna auk fyrrverandi forstjóra Milestone, Guðmundi Ólasyni, og þriggja endurskoðenda hjá KPMG. Tölvupóstar, og önnur gögn sem DV hefur undir höndum, varpa tals­ verðu ljósi á málið, meðal annars því að stjórnendurnir hafi talið verðið sem Ingunn fékk fyrir hlutinn vera of hátt. Embætti sérstaks sak­ sóknara telur að viðskiptin kunni að hafa verið umboðssvik og þar með brot á almennum hegningarlögum. Greiðslurnar frá Milestone til Ingunnar eru meðal þeirra gern­ inga sem skiptastjóri Milestone, Grímur Sigurðsson, hefur höfðað riftunarmál út af, fyrir dómi. Tel­ ur skiptastjórinn að skoða verði greiðslurnar sem lán til Ingunnar þar sem ekkert hafi komið á móti milljörðunum inn í þrotabú Mile­ stone. Hann telur að greiðslurnar til Ingunnar geti verið brot á lögum um einkahlutafélög. Hugsun bræðranna með greiðsl­ unni til Ingunnar var sú að þeir væru með henni að kaupa eignarhlut Ingunnar í Milestone og tveimur dótturfélögum og notuðu þeir pen­ inga eignarhaldsfélagsins til þess. Ingunnarmálið er því bæði komið til kasta sérstaks saksóknara – ákæran verður þingfest í september – sem og til skiptastjóra Milestone. „Einræðisherrann“ Karl Áður en gengið var til samninga við Ingunni tókust systkinin á um við­ skiptin. Karl vildi kaupa Ingunni út á lægra verði en Steingrímur mun hafa sett sig upp á móti því og því var hlutur hennar keyptur á hærra verði en ella. Karli mun hafa sviðið þetta og hefur samband hans við Stein­ grím og systur sína ekki verið gott eftir þetta. Steingrímur mun svo sjálfur hafa viljað selja sinn hlut í félaginu en Karl mun hafa talað hann inn á að gera það ekki því þeir bræður þyrftu að standa saman. Steingrímur mun hafa látið undan þrýstingi frá bróður sínum en sambandi þeirra má lýsa þannig að Karl hafi ætíð verið sterki aðilinn, líkt og Steingrímur sagði sjálfur í yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara þegar hann lýsti bróð­ ur sínum sem „einræðisherra“ og siðblindum einstaklingi. Steingrím­ ur réði alltaf ákaflega litlu hjá Mile­ stone þrátt fyrir að eiga stóran hlut í fyrirtækinu og sitja í stjórn þess og vissi hann yfirleitt lítið eða ekkert um daglegan rekstur þess. Eftir að Ingunn seldi sig út úr Milestone gerðist hún nokkuð um­ svifamikil á sviði fjárfestinga í menn­ ingu og listum. Hún stofnaði félag sem heitir Inn Fjárfesting og fjárfesti meðal annars í Stradivarius­fiðlu, sem íslenskur fiðluleikari hefur haft til umráða, umtalsverðum fjölda listaverka og svo keypti hún gamla Borgarbókasafnið í Þingholtsstræti af norska málaranum Odd Nerdrum árið 2007. Heilmiklar framkvæmdir hafa verið við húsið síðan og sér ekki fyrir endann á þeim. Skilyrði Werners Viðræðurnar vegna viðskiptanna við Ingunni höfðu staðið yfir í nokkurn tíma áður en áðurnefnd lending fannst. Fjárfestingafélag­ ið Milestone hafði verið stofnað með fjármunum frá föður þeirra, Werners Rasmussyni apótekara. Werner hafði auðgast á lyfjabrans­ anum og meðal annars verið fram­ kvæmdastjóri og stjórnarformað­ ur lyfjafyrirtækisins Pharmaco um árabil. Hann var einn af stofnend­ um lyfjafyrirtækisins Delta sem aftur sameinaðist Pharmaco síðar undir nafninu Actavis. Hann eign­ aðist einnig Ingólfsapótek sem síð­ ar varð hluti af keðjunni Lyfjum og heilsu sem bræðurnir eiga enn saman í dag – Karl á 60 prósent og Steingrímur 40. Werner greiddi þeim arf fyrir fram árið 1999 setti hann það sem skilyrði að systkinin settu peninga inn í fjárfestingafélag sem þau ættu saman og Karl ætti að stjórna. Ef eitthvert þeirra systkina vildi ekki taka þátt í stofnun fjárfestingafé­ lagsins áttu hin systkinin að kaupa viðkomandi út á tilteknu verði. Heimildir DV herma að upphaf­ lega hafi Steingrími þótt verðið sem honum var boðið of lágt til að hann tæki ekki þátt í félaginu. Hann og Ingunn tóku því bæði þátt í stofnun Milestone en áttu þó bæði eftir að vilja losna út úr félaginu síðar. Karli leist ekki vel á þá hugmynd, Mile­ stone hefði þá væntanlega þurft að borga fyrir eignarhluti þeirra beggja í félaginu. Þetta er meðal þess sem Steingrímur Wernersson ræddi um í yfirheyrslunum hjá sérstökum sak­ sóknara við rannsókn málsins, líkt og greint er frá hér að ofan. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Allir ákærðir Karl og Steingrímur Wernerssynir og Guðmundur Ólason eru allir ákærðir út af viðskiptum Milestone við Ingunni Wernersdóttur.„Pay and smile Hverfist um Ingunni Ingunnarmálið hverfist um viðskipti bræðranna Karls og Steingríms Wern- erssona við systur sína, Ingunni. Hún er þó ekki ákærð í málinu þar sem hún kom ekkert að rekstri eða starfsemi Milestone þrátt fyrir að eiga 28 pró- senta hlut í félaginu. Vita lítið um stjórnarsáttmála Nærri helmingur landsmanna veit varla hvað kemur fram í stjórnar­ sáttmálanum, samkvæmt því sem kemur fram í nýjum þjóðar­ púlsi Gallups. Nærri fjórðung­ ur þekkir innihald stjórnarsátt­ málans vel og þrír af hverjum tíu segjast hvorki þekkja innihaldið vel eða illa. Í könnuninni var fólk spurt hversu vel eða illa þekkir þú innihald stjórnarsáttmála nýrrar ríkis stjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Karlar segjast frekar en kon­ ur þekkja innihald stjórnarsátt­ málans vel og þeir sem eldri eru frekar en þeir sem yngri eru. Íbúar höfuðborgarsvæðisins segjast að sama skapi frekar en íbúar lands­ byggðarinnar þekkja innihald hans vel og fólk með háskóla­ gráðu frekar en þeir sem hafa minni menntun að baki. Þeir sem myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis eru líklegri til að þekkja innihald sáttmálans vel en þeir sem myndu kjósa aðra flokka. Auka fram- leiðslugetu Fiskeldisfyrirtækið Haukamýri við Húsavík hefur fengið leyfi til að auka framleiðslugetu sína upp í 450 tonn af bleikju og laxaseið­ um á ári en hingað til hefur fram­ leiðslan numið um 200 tonnum á ári. Þetta kemur fram á vef viku­ blaðsins Akureyri. Starfsleyfið gildir til ársins 2029 en er endur­ skoðað á fjögurra ára fresti. Leyfinu fylgir sú kvöð að notuð sé besta fáanlega tækni við meng­ unarvarnir sem og að orka og vatn sé vel nýtt en einnig þarf fyrirtæk­ ið að endurbæta frárennsli. Mikilvægi innan­ landsflugsins Innanríkisráðuneytið vinnur nú að greiningu á mikilvægi inn­ anlandsflugs fyrir hinar dreifðu byggðir landsins. Starfsmenn ráðuneytisins hafa undanfarið verið á ferð og flugi um landið að ræða málefni innanlandsflugs við íbúa og fyrirtæki á landsbyggð­ inni, að því er fram kemur á aust­ urfrett.is Það er liður í samráðsferli um framkvæmd félagshagfræðilegr­ ar greiningar á framtíð áætlunar­ flugs innanlands en það er eitt af stefnumótandi verkefnum sem skilgreind eru í samgönguáætlun 2011–2022. Fundirnir voru haldnir til að fá fram sjónarmið íbúa og fyrirtækja á nokkrum af áfangastöðum áætl­ unarflugs á mikilvægi flugsins fyrir byggðarlögin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.