Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2013, Side 14
14 Sport 10. júlí 2013 Miðvikudagur
Vestfjarðavíkingurinn fór fram um
helgina en keppnin hefur sjaldan
verið eins jöfn og núna. Fjögur stig
skildu að fyrsta og fjórða sætið en
það var Andri Björnsson sem stal
senunni að þessu sinni.
„Það var rosalegur bardagi um
fyrsta sætið og alveg frábært að ná
að klára þetta,“ segir Andri en sig
ur Andra kom nokkuð á óvart. Fyr
ir fram var Ari Gunnarsson talinn
sigurstranglegastur en Vestfjarða
víkingur síðustu fjögurra ára, Haf
þór Júlíus Björnsson, er erlendis
að keppa í Strongman Champions
League.
Sigurinn kom Andra einnig
skemmtilega á óvart þó hann hafi
haft mikla trú á verkefninu. „Ég
átti mitt besta mót og bætti mig í
öllum greinum,“ en af átta grein
um sigraði Andri í þremur: Sund
laugargrein, legsteinagöngu og
bændagöngu. „Burðargreinarn
ar eru mín sterkasta hlið. Þar hef
ég úthaldið og snerpuna fram yfir
marga aðra,“ segir Andri en á móti
hafi aðrir þyngd og styrk fram yfir
hann þegar kemur til dæmis að
réttstöðulyftu og drumbalyftu. „Ég
lenti í mótorhljólaslysi árið 2007
og slasaðist illa á hné. Ég hef átt
erfitt með að byggja upp 100 pró
sent styrk í löppunum síðan en ég
verð alltaf betri og betri.
Líkt og fyrr sagði var keppn
ina gríðarlega jöfn en fyrir síð
ustu grein leiddi Andri með einu
og hálfu stigi. Svo fór að lokum að
Andri vann, Þröstur Ólason varð
í öðru sæti, Úlfur Orri Pétursson í
því þriðja og Ari Gunnarsson í því
fjórða en hann var að glíma við
meiðsli á ökkla að þessu sinni.
Fram undan hjá Andra eru stíf
ar æfingar en hann ætlar að mæta
sterkur til leiks á Austfjarðartröll
inu síðar í sumar.
Íslenski hópurinn Stelpurnar stilltu sér
upp í myndatöku áður en þær héldu utan.
Meiðsli í hópnum gætu sett strik í reikninginn
á mótinu.
n Helena segir að Ísland eigi að geta unnið Holland n Hún gagnrýnir liðsvalið
„Eigum góða
möguleika“
„Varnarleikurinn
gæti orðið
vandamál.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
S
vona fyrirfram tel ég að
það séu svona 50/50 lík
ur á að komast áfram,“ seg
ir Helena Ólafsdóttir, fyrr
verandi landsliðsþjálfari
kvenna í knattspyrnu og núverandi
þjálfari kvennaliðs Vals.“ Ísland
leikur á morgun, fimmtudag, sinn
fyrsta leik á EM í knattspyrnu, sem
fram fer í Svíþjóð. Stelpurnar okkar
mæta þá liði Noregs en landsliðs
þjálfarinn, Sigurður Ragnar Eyjólfs
son, hefur sagt að um lykilleik sé að
ræða. Ísland mætir ógnarsterku liði
Þýskalands á sunnudag og svo liði
Hollands í lokaleik liðsins í riðlin
um á miðvikudag. Tvö lið af fjórum
komast upp úr riðlinum.
Helena er á þeirri skoðun á hóp
ur inn sem fer á EM núna sé að ein
hverju leyti leikreyndari en sá sem
Sigurður Ragnar þjálfari hafði í
hönd un um á EM fyrir fjórum árum.
Sú reynsla sumra leikmanna liðsins,
að hafa spilað á stórmóti áður, muni
örugglega hjálpa liðinu.
Þurfum Margréti Láru í gang
Helenu finnst liðið eiga góða mögu
leika gegn Norðmönnum og Hol
lendingum. „Riðillinn er þannig að
við eigum góða möguleika í honum.
Ég er þess vegna þokkalega bjartsýn.“
Hún bendir á að meiðsli hafi hrjáð
lykilmenn liðsins og segir að það
gæti reynst liðinu dýrkeypt þegar
uppi verður staðið. Varnarmaðurinn
öflugi Sif Atladóttir hefur glímt við
meiðsli rétt eins og Þóra Helgadóttir
markvörður. Þá er Margrét Lára Við
arsdóttir að ná sér á strik eftir erfið
meiðsli og óvíst í hversu góði standi
hún verður. „Við þurfum að ná Mar
gréti Láru í gang. Hún er með ótrú
legt „record“ í markaskorun en virk
aði ekki í góðu standi síðast þegar ég
sá hana,“ segir Helena. Sif og Þóra
séu afar mikilvægar þegar kemur að
varnarleiki liðsins. Liðið megi illa við
fjarveru þeirra, þó öflugar stúlkur
séu til taks aftar í goggunarröðinni.
Úrslit íslenska liðsins hafa ekki
verið góð upp á síðkastið. Liðið hefur
tapað sex leikjum af síðustu sjö. Sig
urður Ragnar benti í samtali við DV
á dögunum á að liðið hafi att kappi
við afar sterka mótherja og hann hafi
ekki verið ósáttur við spilamennsku
liðsins. Liðið hafi átt góða spretti
þó úrslitin hafi ekki verið eins hag
stæð og oft áður. Helena segist að
spurð ekki sammála því að liðið hafi
mætt sterkari andstæðingum en
áður. Skotland sé til að mynda lið
sem Ísland hafi verið að vinna á um
liðnum árum, en Ísland tapaði fyrir
liðinu á heimavelli á dögunum, 3–2.
Hún segir að nú komi í ljós úr hverju
stelpurnar séu gerðar. Þær hafi glímt
við mótbyr undanfarið en nú komi
karakterinn í gegn. „Það þyngir alltaf
hausinn að tapa leikjum. En ég held
að þegar út í svona mót er komið þá
sé enginn að spá í hvernig leikirnir
hafa farið fram að því. Það ætla allir
að standa sig.“
Edda ætti að vera í hópnum
Athygli vakti þegar Edda Garðars
dóttir, einn af burðarásum liðsins
til margra ára, var ekki valin í hóp
inn fyrir EM. Helena gagnrýnir þá
ákvörðun þjálfarans. „Ég var hissa.
Þó hennar tími inni á vellinum sé
að minnka þá viltu hafa svona leik
mann í hópnum. Þú vilt hafa hana
sem bakland fyrir yngri miðjumann.
Mér finnst sorglegt hvernig henni er
kippt út úr hópnum rétt fyrir mót.
Liðið hefði þurft á henni að halda.“
Hún bendir á að Edda hafi lengi ver
ið afar mikilvægur hlekkur í hópn
um. Það hafi til dæmis komið fram í
EM þættinum sem sýndur var á RÚV
í síðustu viku. „Ég held að reynslan
sem Edda býr yfir sé vanmetinn.
Hún ætti tvímælalaust að vera í
þessum hópi.“ Hún bendir þó á að
Sigurður Ragnar hafi eflaust sínar
ástæður fyrir þessari ákvörðun.
Íslandi ekki spáð góðu gengi
Veðbankar eru ekki bjartsýnir fyrir
Íslands hönd, nú rétt fyrir mót. Liðið
er af flestum veðbönkum talið eiga
minnsta möguleika á því að standa
uppi sem sigurvegarar mótsins. Lík
urnar eru 1 á móti 101 á BraOdds.
com. Líkurnar á að Ísland komist
upp úr riðlinum eru metnar 1 á móti
21 á sömu síðu.
Eins og fram hefur komið verð
ur leikurinn á morgun gegn Nor
egi lykilleikur í riðlinum. Á Bet365.
com eru líkurnar á norskum sigri 1 á
móti 1,73 – líkurnar á jafntefli eru 1 á
móti 3,6 og líkurnar á sigri Íslands 1
á móti 4,75. Það þýðir að ef einhver
sem spáir Íslandi sigri í leiknum
leggur eitt hundrað krónur undir,
fær hann 475 krónur ef Ísland vinn
ur. Líkurnar eru svipaðar hjá öðrum
veðbönkum. Erlendir veðbankar
búast því ekki við miklu af liðinu.
„Vonandi toppa þær“
Helena segir við DV að liðsheildin
ætti að geta orðið sterkasta vopn Ís
lands á mótinu. Hún hefur ákveðn
ar áhyggjur af vörninni. „Varnar
leikurinn gæti orðið vandamál. Það
er óvíst hvernig við setjum vörnina
upp og hún var til dæmis ekki sann
færandi á móti Skotum,“ segir hún
en tekur fram að hún hafi ekki séð
leikinn gegn Dönum, þar sem Ís
land tapaði 2–0 ytra. Framar á vell
inum hafi liðið leikmenn sem geta
skorað mörk, eins og Margréti Láru
og Hólmfríði Magnúsdóttur. Styrk
leiki liðsins felist þó fyrst og fremst í
liðsheildinni. „Vonandi toppa þær á
þessu móti.“
Helena segist fyrirfram telja að
liðið eigi að leggja lið Hollands, þó
þar fari sterkt lið. Þá eigi liðið jafna
möguleika á móti Noregi. „Fyrir
fram var horft á þessa tvo leiki. Þeir
þurfa að falla með okkur. Ef við
náum blússandi varnarleik og erum
skynsöm þá er allt hægt. Ég þori ekki
að spá en stelpurnar eru ákveðnar
að ná í átta liða úrslit. Það væri skref
í rétta átt og skref sem við þurfum að
taka.“ n
1
5
6
8
11
9
2
7
16
3
19
Þóra
Hallbera
Hólmfríður
Katrín J.
Katrín Ó.
Margrét Lára
Sif
Sara Björk
Harpa
Ólína
Fanndís
Líklegt byrjunarlið
Leikirnir í Svíþjóð
Fim. 11. júl. 16:00 Noregur–Ísland
Sun. 14. júl. 18:30 Ísland–Þýskaland
Mið. 17. júl. 16:00 Holland–Ísland
Hópurinn
Markverðir
Þóra B. Helgadóttir, Ldb Malmö
Guðbjörg Gunnarsdóttir, Avaldsnes
Sandra Sigurðardóttir, Stjarnan
Aðrir leikmenn
Katrín Jónsdóttir, Umea
Dóra María Lárusdóttir, Valur
Margrét Lára Viðarsdóttir, Kristianstad
Hólmfríður Magnúsdóttir, Avaldsnes
Ólína G. Viðarsdóttir, Valur
Sara Björk Gunnarsdóttir, Ldb Malmö
Katrín Ómarsdóttir, Liverpool Ladies
Rakel Hönnudóttir, Breiðablik
Sif Atladóttir, Kristianstad
Hallbera Guðný Gísladóttir, Pitea
Fanndís Friðriksdóttir, Kolbotn
Guðný B. Óðinsdóttir, Kristianstad
Dagný Brynjarsdóttir, Valur
Harpa Þorsteinsdóttir, Stjarnan
Glódís Perla Viggósdóttir, Stjarnan
Þórunn Helga Jónsdóttir, Avaldsnes
Elísa Viðarsdóttir, ÍBV
Elín Metta Jensen, Valur
Katrín Ásbjörnsdóttir, Þór
Anna Björk Kristjánsdóttir, Stjarnan
Þjálfar Val Helena gagnrýnir Sigurð
Ragnar landsliðsþjálfara fyrir að hafa
skilið Eddu Garðarsdóttur eftir heima.
Andri Björnsson er
Vestfjarðavíkingurinn 2013:
Sjaldan
meiri spenna
Úrslit
1. Andri Björnsson 56 stig
2. Þröstur Ólason 54,5 stig
3. Úlfur Orri Pétursson 52,5 stig
4. Ari Gunnarsson 52 stig
5.–6. Daníel Gerena 40,5 stig
5.–6. Skúli Ármannsson 40,5 stig
7. Valgeir Gauti Árnason 37 stig
8. Birgir Guðnason 15 stig
9. Gatis Kauzens 12 stig
Stórleikur í
Garðabæ
KR heimsækir Stjörnuna í Garða
bæinn og Framarar taka á móti
Breiðablik í undanúrslitum Borg
unarbikars karla í knattspyrnu.
Dregið var á þriðjudag. Leikið
verður 31. júlí og 1. ágúst. Stjarnan
og KR mættust í úrslitaleik keppn
innar í fyrra. Þar höfðu KRingar
betur 2–1 og eru því ríkjandi bik
armeistarar. KRingar höfðu einnig
betur 2–1 á heimavelli í fyrstu um
ferð Pepsideildarinnar, nú í sumar.
Fram og Breiðablik mættust í
deildarleik 30. júní síðastliðinn.
Þeim leik lyktaði með jafntefli.