Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2013, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2013, Page 20
20 Lífsstíll 10. júlí 2013 Miðvikudagur Þriðjudags- ganga í Viðey Þriðjudaginn 16. júlí verður boðið upp á gönguferð um Viðey undir leiðsögn bókaútgefandans Örlygs Hálfdánarsonar. Örlygur mun ganga með gestum um eyjuna og deila með þeim sögum og ýmsum fróðleik, en sjálfur er hann fæddur og uppalinn í Viðey og þekkir sögu hennar og náttúru því vel. Gangan hefst klukkan 19:30 og tekur eina og hálfa til tvær klukku- stundir, en gengið verður frá Við- eyjarstofu. Boðið verður upp á aukaferðir til Viðeyjar frá Skarfa- bakka klukkan 18:15 og 19:15 auk þess sem kaffihúsið í Viðeyjarstofu verður opið fram á kvöld. Síðasta ferjan fer frá Viðey um klukkan 22:00. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Viðeyjar, www.videy.com Gönguferðir fyrir einhleypa Vefsíðan einkamál.is ásamt Sam- bandsmiðlun stendur fyrir tveim- ur gönguferðum í sumar. Ekk- ert kostar í göngurnar, sem verða í auðveldara lagi og þess eðlis að flestir ættu að ráða við þær, auk þess sem ekki þarf að skrá sig því fjöldatakmarkanir eru engar. Nóg er því að mæta í göngufötum og með góða skapið í farteskinu sem og viljann til að kynnast skemmti- legu fólki. Fulltrúi einkamál.is verður á staðnum til að halda utan um hópinn og stýra göngunni en að öðru leyti er hver á sína ábyrgð. Fyrri gangan verður í Heiðmörk mánudaginn 15. júlí klukkan 18 en sú seinni verður þriðjudaginn 30. júlí, einnig klukkan 18, og þá verð- ur gengið í Elliðaárdalnum. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu einkamál.is þegar nær dregur. E ric Hill er maður á þrítugs- aldri frá Utah í Bandaríkjun- um á ferðalagi um heiminn. Hann ætlar sér að ferðast til 193 landa heimsins. Eric kallar ferðalagið, The Global Odyssey og ætlar að setja heimsmet í að heimsækja þau á sem skemmst- um tíma. Nú er Eric staddur á Íslandi og hefur kannað eldgíga og stundað svifflug og kynnst heimamönnum. Ástæða ferðalagsins mikla kemur frá hjartans rótum en Eric leitast við að færa sönnur á það að hið góða í mannsandanum þrífst alls staðar í heiminum við allar mögulegar að- stæður. Við erum eitt „Hversu djúpt viltu fara?“ Spyr Eric þegar hann er spurður að því hvers vegna hann takist á hendur svo metnaðarfullt ferðalag. Hann hikar og segir ástæðuna margþætta. Fað- ir hans ferðaðist mikið þegar hann var lítill og honum fannst gaman að heyra af því sögur. „En ástæðuna er líka að finna í því að ég er alinn upp í fremur strangtrúaðri kristinni fjöl- skyldu þar sem trúin á hið góða líf er bundin við ein trúarbrögð. Ég hef mikla löngun til þess að afsanna þá hugsun. Ég vil sýna fram á það að hið sammannlega, hið góða í mann- inum þrífst alls staðar, sama hvert farið er og sama í hvaða aðstæð- um maðurinn er, við erum eitt,“ seg- ir hann þessu til áherslu og notar orðið „awesome“ til að lýsa því góða í manninum. „Alls staðar er fólk sem er góðum kostum gætt. Ég leita að því og sanna að það er alls staðar.“  Lenti í lífshættu í Sýrlandi Eric kom til Íslands alla leið frá Súdan og hefur nýverið lent í mikilli hættu í Sýrlandi þegar hann hitti fjandsam- lega uppreisnarmenn. „Ég kom frá Súdan til Íslands og hef fengið fjölbreytt sýnishorn af veðri hér,“ segir hann og hlær. „Mér finnst fólkið hér einstaklega vina- legt,“ bætir hann við en hann leggur sig fram við að kynnast fólki á ferðum sínum. Það er misdjúpt á því góða í manninum eins og Eric komst að á ferðalagi sínu er hann hitti uppreisn- armenn úr sveitum Jabat Al Nusra. „Ég sat á litlu kaffihúsi í Azaz í Sýr- landi ásamt fylgdarmanni mínum. Við sátum þar einir þegar tveir upp- reisnarmenn koma inn og fá sér sæti. Við erum engin ógn við þá, hugs- aði ég. Við erum með þeim í liði. En ég sá að fylgdarmaður minn var mjög órólegur. Hann sagði mér að vera ró- legur og yfirvegaður og lét mig vita af því að umræddir uppreisnarmenn væru liðsmenn Jabat Al Nusra. Jabat Al Nusra eru íslamskir öfga- menn studdir af al-Qaeda. Liðsmenn sveitanna eru ekki frá Sýrlandi og hafa andstyggð á Ameríkönum. Að- ferðir þeirra þykja hörkulegar og óvenjulegar. Flestir þerira sem teknir eru til yfirheyrslu birtast annað hvort á aftökumyndböndum á Youtube eða hreinlega hverfa af yfirborði jarð- ar. Af þessu eru margar sögur þótt ég viti sjálfur ekki um sannleiksgildi þeirra. Við reyndum að halda stillingu okkar og ég spjallaði við þá. Ég sagði þeim að ég væri frá Bandaríkjunum. Þeir spurðu mig hvað mér fyndist um Obama og ég svaraði því til að mér stæði á sama um stjórnmál. Þeir spurðu mig hvað ég væri að gera á þessu svæði og ég sagðist sannleik- anum samkvæmt leita að fólki sem væri hamingjusamt og gæti brosað þrátt fyrir erfiðar aðsætður. Þeim lík- aði svarið og enduðu á því að kaupa handa okkur drykki. Mér fannst and- rúmsloftið strax betra. En það breyttist. Liðsmaður þeirra gekk inn svartklæddur frá toppi til táar og rifaði aðeins í augun. Hann heimtaði að sjá vegabréfin okkar og var ógnandi í tilburðum. Ég leyfði honum að líta á það. Svo flýttum við okkur að borga reikninginn og stig- um út. Þá urðum við fyrst alvarlega hræddir. Úti stóð stór hópur upp- reisnarmannana og virtust hafa safnast saman við innganginn til að athuga stöðu okkar. Fylgdarmaður minn heyrði þá tala saman. Þeir halda að við séum njósnarar, sagði hann skelkaður og fór að reikna út hvert við gætum hlaupið á flótta. Kvaddi foreldra sína Ég tók upp símann og sendi foreldr- um mínum skilaboð. Ég sagði þeim að ég elskaði þá og bar þeim mína hinstu kveðju. Einn uppreisnarmanna nálgað- ist mig og greip í mig. Hann sagðist vilja fylgja okkur á fund leiðtoga síns. Á meðan beðið var eftir brottför tók hann myndavélina og renndi í gegn- um myndirnar. Hann staðnæmd- ist við mynd af mosku og spurði mig hvort ég væri múslimi. Ég neitaði því en útskýrði áhuga minn á trúarbrögðum og hamingju. Hann virtist mildast við þetta og þegar ég sagði honum bugaður frá því að ég væri aðeins að leita að bros- um, virtist allur vindur úr honum. Okkur var sleppt og við prísuðum okkur sæla en þetta var skelfilegasta atvik sem ég hef upplifað á ferðalagi mínu. Ég hef horft í byssuhlaup í Afr- íku, oftsinnis verið nærri því að falla af bröttum bjargbrúnum, lent í miðri fílahjörð og margsinnis verið í hættu- legum aðstæðum. En þessar þrjátíu mínútur voru skelfilegastar.“ Eric gerir ráð fyrir því að dveljast á Íslandi í nokkra daga en næst liggur leið hans til Noregs. „Það hefur ver- ið endurnærandi í alla staði að dvelj- ast hér,“ segir hann glaður í bragði. n Ætlar að sækja 193 lönd heim n Eric Hill staddur á Íslandi n Stefnir á heimsmet n Í lífshættu í Sýrlandi „Hið góða þrífst alls staðar Á Íslandi Eric hefur heimsótt fjölda landa nú þegar, hann ætlar sér að setja heimsmet og ferðast til 193 landa á sem skemmstum tíma. Í Sýrlandi Skelfilegasta lífsreynsla Erics var í Azaz í Sýrlandi þegar hann komst í kynni við uppreisnarmenn úr sveitum Jabat Al Nusra, íslamskra öfgamanna styrktum af al-Qaeda. Í Bláa lóninu Eric er sæll og glaður á friðsömu Fróni. Hingað kom hann frá Súdan. Minnismiðar fyrir sálina Catlin Boyle var orðin þreytt á að hlusta á fólk brjóta sig sjálft niður. Neikvæðar athugasemdir um útlit, stöðu eða lífsstíl voru orðnar yfir- þyrmandi og hún fann hreinlega til með þeim sem höfðu ekki meira sjálfsálit. Hún setti því af stað Oper- ation Beautiful, eða „Fallegu Að- gerðaráætlunina“. Hún felst einna helst í því að fólk skilur eftir minnismiða á víð og dreif. Hvort sem það er á almenn- ingssalernum, í sundlauginni eða bara hvar sem er. Á miðann set- ur þú uppörvunarorð, hvatningu eða fallega hugleiðingu og merkir hann heimasíðunni og verkefninu. Miðarnir eiga að hvetja samferða- fólk okkar áfram og gleðja. Ef þú vilt geturðu tekið mynd af miðanum og sent Caitlin myndina, en þú finn- ur verkefnið hér: www.operation- beautiful.com Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Ferðir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.