Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Page 2
2 Fréttir 31. júlí 2013 Miðvikudagur
Þrír vilja
stjórna
Þrjár umsóknir bárust um stöðu
forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.
Heilbrigðisráðherra skipar í stöð
una, en Halldór Jónsson fráfarandi
forstjóri var í síðasta mánuði skip
aður forstjóri Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja. Bjarni Jónasson hefur
verið starfandi forstjóri og hefur
hann verið skipaður í stöðuna til
1. ágúst. Þeir sem sækja um stöð
una eru: Bjarni Jónasson forstjóri
FSA, Guðjón Brjánsson forstjóri
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
og Jón Helgi Björnsson forstjóri
Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga.
Eftirlit um
ókomna tíð
„Vöktunardeild okkar mun fylgj
ast stöðugt með fjárhag þínum um
ókomin ár,“ segir í harðorðu kröfu
bréfi norska innheimtufyrirtækis
ins Visma Collectors til Íslendings
sem staddur er í Noregi. Kröfu
hafinn er Landsbanki Íslands,
sem nú er í slitameðferð, og er um
nokkurra ára yfirdráttarskuld að
ræða. Þess er krafist að skuldin
verði greidd í norskum krónum
þótt lánið hafi verið tekið í íslensk
um og hvergi er tilgreint á hvaða
skiptigildi skuldin er reiknuð.
„Þetta virkar á mig eins og hand
rukkun,“ segir skuldarinn og tek
ur endurskoðandi hans í sama
streng sem segist aldrei hafa lesið
jafn harðort bréf frá innheimtu
fyrirtæki.
Lúðvík ráðinn
forstöðumaður
Lúðvík S.
Georgsson
verkfræðing
ur hefur ver
ið ráðinn
forstöðu maður
Jarðhitaskóla
Sameinuðu
þjóðanna.
Staðan var
auglýst laus til umsóknar þann 13.
febrúar síðast liðinn en alls bárust
sex umsóknir. Lúðvík var ráðinn
til starfsins með fyrirvara um sam
þykki rektors Háskóla Sameinuðu
þjóðanna í Tókýó. Í tilkynningu frá
Orkustofnun kemur fram að það
samþykki hafi nú borist og í fram
haldi af því hefur orkumálastjóri
ákveðið að Lúðvík taki við stöðu
forstöðumanns frá 1. ágúst næst
komandi. Fráfarandi forstöðu
maður, Ingvar Birgir Friðleifsson,
verður að störfum fyrir skólann
fram í október þegar hann fer á
eftirlaun.
„Orkustofnun vill á þessum
tímamótum sérstaklega þakka
Ingvari Birgi fyrir hans mikilvæga
framlag til þess að byggja upp
skólann allt frá byrjun 1979 og
skapa honum virðingu og traust.
Jarðhitaskólinn hefur markað skýr
og árangursrík spor í þróunarsam
vinnu Íslendinga,“ segir í tilkynn
ingu frá Orkustofnun.
Þ
rátt fyrir að mörg af stærstu
fyrirtækjum landsins hafi far
ið á hliðina í kjölfar banka
hrunsins má segja að fáir
lykilþátttakendur íslensku
útrásarinnar standi uppi eignalausir.
Þó eru mánaðarlaun þeirra nokkuð
mismunandi eða allt frá 2,25 milljón
krónur á mánuði hjá Gunnari Hall
dóri Sverrissyni, fyrrverandi forstjóra
Íslenskra aðalverktaka niður í 240
þúsund krónur á mánuði hjá Karli
Wernerssyni, fyrrverandi eiganda
fjárfestingafélagsins Milestone.
DV gerði úttekt á tekjum nokkurra
afskriftakónga en skilyrði fyrir því að
komast á listann var þó að vera með
lögheimili á Íslandi. Eins og kunnugt
er hafa margir útrásarvíkingar flutt af
landi brott í kjölfar hrunsins en sumir
þeirra hafa þó búið lengur erlendis.
Þannig má nefna að Bakkabræðurn
ir Ágúst og Lýður Guðmundssynir,
Björgólfur Thor Björgólfsson, Hann
es Smárason, Jón Ásgeir Jóhann
esson og Ólafur Ólafsson eru allir
skráðir til heimilis í Bretlandi. Þeir
og félög tengd þeim fengu alls 1.300
milljarða króna lánaða hjá stóru
viðskiptabönkunum þremur og má
ljóst vera að afskriftir tengdar þeim
lánveitingum hlaupa á hundruðum
milljörðum króna og þeir því allir átt
heima á lista DV ef þeir væru skráðir
til heimilis á Íslandi.
Einn þeirra sem er á listanum
yfir afskriftakónga náðu jafnvel inn á
listann yfir 30 hæstu skattakónga Ís
lands. Þannig var Magnús Kristins
son, útgerðarmaður í Vestmanna
eyjum skattakóngur ársins 2013 en
skýring þess er líklega sú að í fyrra
þurfti hann að láta af hendi Berg
Huginn, útgerðarfyrirtæki sitt í Vest
mannaeyjum eftir fjárhagslegt upp
gjör við Landsbankann. Hann virðist
því ekki hafa farið tómhentur frá því
uppgjöri en hann greiddi um 190
milljónir króna í opinber gjöld í fyrra.
Magnús var þó „einungis“ skráður
með tvær milljónir króna í tekjur á
mánuði í fyrra. n
Gunnar Halldór Sverrisson, forstjóri ÍAV:
15 milljarða afskrift
vegna Höfðatorgs
Laun á mánuði: 2.250 þús. kr.
Eignir: 415 milljónir.
1 Gunnar Halldór Sverrisson, er forstjóri Íslenskra aðalverktaka. Drög
ehf. eignaðist allt hlutaféð í Íslenskum
aðalverktökum árið 2004 eftir umdeilda
einkavæðingu verktakafyrirtækisins árið
áður. Í ársreikningi Draga ehf. fyrir árið 2009
kemur fram að félagið hafi þá skuldað 28
milljarða króna, átt eignir upp á átta millj-
arða króna. Þannig var eigið fé félagsins
neikvætt um 20 milljarða króna sem Arion
banki hefur líklega þurft að afskrifa. Drög
ehf. var lýst gjaldþrota árið 2011.
Arion banki leysti Drög til sín árið 2009.
Ári seinna seldi bankinn Íslenska aðalverk-
taka svo til svissneska fyrirtækisins Marti
Holding á um 400 milljónir króna. Marti
Holding hefur starfað með ÍAV um árabil.
Nokkrum mánuðum síðar keyptu Gunnar og
Karl Þráinsson, sem höfðu átt félagið áður,
50 prósenta hlut í nýja félaginu af Marti
Holding fyrir um 200 milljónir króna. Kaup
þeirra voru fjármögnuð með 30 ára kúluláni
frá Marti Holding. Gunnar virðist hafa það
ágætt í dag en árið 2010 komst hann á
lista yfir skattakónga Íslands þegar hann
greiddi 55 milljónir króna í opinber gjöld.
Mánaðarlaun hans í fyrra námu hins vegar
2.250 þúsund krónum á mánuði og var
hann skráður með eignir upp á nærri 200
milljónir króna.
Pétur Guðmundsson, eigandi Eyktar:
15 milljarða afskrift
vegna Höfðatorgs
Laun á mánuði: 2.185 þús. kr.
Eignir: 312 milljónir.
2 Morgunblaðið greindi frá því árið 2008
að þá í árslok hafi félög
tengd Pétri Guðmundssyni,
eiganda verktakafyrirtækis-
ins Eyktar skuldað 44 milljarða
króna og var eigið fé þeirra neikvætt um 19
milljarða króna. Nú í júlí var sagt frá því að
Holtasel ehf. sem hélt utan um flest félög
Péturs hafi verið úrskurðað gjaldþrota.
Í upphafi þessa árs var greint frá því að
Höfðatorg ehf. sem nú heitir HTO ehf. hafi
fengið alls 15 milljarða króna afskrifaða
af 23 milljarða króna skuldum sínum hjá
Íslandsbanka. Félagið heldur utan um 19
hæða turn við Höfðatorg. Íslandsbanki
tók yfir Höfðatorg í árslok 2011 í kjölfarið
á nauðasamningsferli. Vakti athygli að
Pétur Guðmundsson, sem hafði misst
Höfðatorg til Íslandsbanka fékk að halda
nærri þriðjungshlut í hinu nýja félagi HTO
ehf. sem nú ætlar sér að fara í byggingu 16
hæða hótelturns við Höfðatorg sem á að
kosta átta milljarða króna sem DV sagði frá
á mánudaginn. Félög tengd Pétri skulduðu
Glitni 26 milljarða króna við fall bankans.
Magnús Kristinsson, útgerðarmaður:
Fórnarlamb
markaðsmisnotkunar
Laun á mánuði: 2.000 þús.
Eignir: 521 milljónir.
3 Magnús Kristinsson, útgerðarmaður
í Vestmannaeyjum er
skattakóngur Íslands.
Hann og félög tengd honum
skulduðu alls 70 milljarða
króna hjá Landsbankanum og Glitni við
bankahrunið. Þar af 60 milljarða króna hjá
Landsbankanum og munaði þar mest um
skuldir félagsins Smáeyjar upp á rúmlega
40 milljarða króna en félagið var stórtækt í
hlutabréfakaupum. DV greindi frá því sum-
arið 2009 að Magnús og félög hans myndu
fá allt að 50 milljarða króna afskrifaða
við skuldauppgjör hjá Landsbankanum. Í
yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í fyrra
sagðist Magnús hafa verið fórnarlamb
markaðsmisnotkunar Landsbankans en
eins og kunnugt er hefur embætti sérstaks
saksóknara ákært nokkurn fjölda starfs-
manna bankans vegna gruns um kerfis-
bundna markaðsmisnotkun. Lýsti Magnús
þessu yfir eftir að hann var þvingaður til að
selja útgerðarfyrirtæki sitt í Vestmannaeyj-
um, Berg-Huginn. Fall Gnúps, fjárfestinga-
félags sem hann átti með bróður sínum
Birki og Kristni Björnssyni, er talið hafa
markað upphaf efnahagshrunsins. Félagið
féll í ársbyrjun 2008 og var fyrsta stóra
fjárfestingarfélagið sem fór á hausinn.
Þá átti hann einnig Toyota-umboðið og
Dóminos-pizzur svo fátt eitt sé nefnt, en
Dóminos-pizzur fengu 1.500 milljónir króna
afskrifaðar hjá Landsbankanum.
Guðmundur Kristjánsson, útgerðarmaður:
„Svo bara
hvarf froðan“
Laun á mánuði: 2.000 þús.
Eignir: 685 milljónir
4 Fréttastofa RÚV greindi frá því sum-arið 2011 að samkvæmt
heimildum þeirra hefðu
félög tengd Guðmundi
Kristjánssyni, eiganda
útgerðarfyrirtækisins
Brims fengið alls 20 milljarða
króna afskrifaða hjá Landsbankanum.
Þar af slapp félagið Hafnarhóll undan 9,5
milljarða króna skuld sinni við Landsbank-
ann en engar eignir fundust í þrotabúinu
eftir að félagið var lýst gjaldþrota árið 2010.
Hafnarhóll átti 4,2 prósenta hlut í Straumi-
Burðarási og veitti Landsbankinn félaginu
fimm milljarða króna lán í desember 2006.
„Þetta voru bankabréf, keypt í banka,
fjármögnuð af banka og geymd í banka,“
sagði Guðmundur í samtali við Morgun-
blaðið í desember árið 2010 um félagið
Hafnarhól. „Þetta var keypt froða og lánuð
froða, og svo bara hvarf froðan,“ bætti
hann við. Guðmundur rekur enn útgerðar-
fyrirtæki sitt Brim sem hefur þó þurft að
selja töluvert af eignum á síðustu árum.
Gylfi og Gunnar í BYGG:
100 milljarðar
af skrif aðir hjá
verktökum
Gunnar Þorláksson, verktaki
Laun á mánuði: 1.450 þús.
Eignir: 568 milljónir
Gylfi Ómar Héðinsson,
verktaki
Laun á mánuði: 1.450 þús.
Eignir: 495 milljónir
5 Heildarskuldir eignarhaldsfélaga
sem tengjast verktaka-
fyrirtækinu Bygg, sem er í
eigu Gunnars Þorlákssonar
og Gylfa Ómars Héðinssonar, og Saxhóls,
fjárfestingarfélags Nóatúnsfjölskyldunn-
ar, í stóru viðskiptabönkunum þremur
nam um 130 milljörðum króna. Áætlaðar
endurheimtur bankanna af þessum
skuldum nema ekki meira en 30 milljörðum
króna, gróflega áætlað. Því er um að ræða
afskriftir upp á ekki minna en 100 milljarða
króna í fyrirtækjaneti þeirra.
Eigendur Byggs og Saxhóls áttu í
samstarfi í hinum ýmsu fyrirtækjum á
árunum fyrir íslenska efnahagshrunið og
stofnuðu meðal annars eignarhaldsfélag-
ið Saxbygg. Þeir áttu meðal annars fimm
prósenta hlut í Glitni í gegnum dótturfélag
Saxbyggs, eignarhaldsfélagið Saxbygg
Invest. Saxbygg einbeitti sér að mestu að
fasteignaviðskiptum. Félagið átti meðal
annars rúman helmingshlut í verslanamið-
stöðinni Smáralind og var sú eign flaggskip
þeirra.
Jakob Valgeir Flosason, útgerðarmaður:
Aðalleikarinn í
Stím-viðskiptunum
Laun á mánuði: 1.370 þús. kr.
Eignir: 784 milljónir
6 Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis námu skuldir Jakob
Valgeirs Flosasonar, út-
gerðarmanns frá Bolungarvík
og félögum tengdum honum nærri
32 milljörðum króna við bankahrunið. „Jak-
ob Valgeir og tengd félög voru upphaflega
útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki í Bol-
ungarvík en byrjuðu síðar að stunda mark-
aðsviðskipti með afleiður og hlutabréf,
m.a. í Glitni, Landsbanka, Exista, Stoðum
og nokkrum útgerðarfyrirtækjum,“ segir í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Hann
tengdist einnig hinu umtalaða félagi Stím
sem keypti hlutabréf í Glitni og FL Group
fyrir 25 milljarða króna í nóvember 2007
sem að stærstum hluta voru fjármögnuð
með láni frá Glitni. Hafa viðskipti Stíms
verið til rannsóknar hjá embætti sérstaks
saksóknara. Ljóst er að félög sem tengjast
Jakobi Valgeiri hafa fengið milljarða króna
afskrifaða í íslenska bankakerfinu þó
endanleg tala liggi ekki ljós fyrir, þar af
hefur Stím líklega fengið um 12 milljarða
króna afskrifaða.
Þorgeir Baldursson:
Enn eigandi Odda
eftir fimm milljarða
afskriftir
Laun á mánuði: 1.150 þús.
Eignir: 322 milljónir
7 Þorgeir Baldursson sat í stjórn Landsbankans
fyrir bankahrunið en hann er
oftast kenndur við prentsmiðj-
una Odda sem hann á í gegnum
eignarhaldsfélagið Kvos. DV greindi frá því
árið 2012 að Arion banki og Landsbankinn
hefðu afskrifað tæplega fimm milljarða
króna af skuldum eignarhaldsfélagsins
Kvosar, móðurfélags Prentsmiðjunnar
Odda og tengdra félaga. Félagið skuldaði
8,8 milljarða króna í lok árs 2009. Afskrift-
irnar voru hluti af fjárhagslegri endur-
skipulagningu Kvosar. Þorgeir eignaðist
Odda aftur eftir þessar afskriftir.
Þá má einnig nefna að árið 2012
keypti Kvos fyrirtækið Plastprent af
Framtakssjóði Íslands (FSÍ) en fulltrúi
Landsbankans í stjórn FSÍ lagðist gegn
kaupum Kvosar á Plastprenti. Hrefna
Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri
Eignastýringar hjá Landsbankanum, var
eini stjórnarmaðurinn sem greiddi atkvæði
gegn samkomulaginu.
Ingvar Vilhjálmsson:
Dæmdur til
að greiða
2,6 milljarða
Laun á mánuði: 896 þús.
8 Ingvar Vilhjálmsson starfaði sem
framkvæmdastjóri
markaðsviðskipta Kaupþings
fyrir bankahrunið. Hann var stórtækur í
kaupum á hlutabréfum í Kaupþingi á
meðan hann starfaði þar. Örstuttu fyrir
fall bankans færði hann fimm milljarða
króna skuldir einkahlutafélagsins Ingvars
Vilhjálmssonar ehf. yfir í nýtt félag sem
fékk nafnið k08 ehf. ásamt því að færa
eignarhald á tveimur glæsihúsum í
Skerjafirði yfir á eiginkonu sína og móður.
Ingvar var sá starfsmaður bankans sem
fékk mest lánað til hlutabréfakaupa fyrir
utan bankastjórann Hreiðar Má
Sigurðsson og stjórnarformanninn Sigurð
Einarsson.
Eftir hrun fór skilanefnd Kaupþings
í mál við Ingvar sem var haustið 2011
dæmdur til að endurgreiða Kaupþingi 2,6
milljarða króna og þeim gjörningi bankans
að fella niður persónulega ábyrgð Ingvars
á skuldunum og færa þær inn í einkahluta-
félagið rift. Skiptalokum k08 lauk í upphafi
árs 2012 og fékkst ekkert upp í nærri átta
milljarða króna skuldir félagsins.
Gestur Ólafsson, útgerðarmaður:
Afskriftir
útgerðar fyrirtækis
í Grindavík
Laun á mánuði: 750 þús.
Eignir: 136 milljónir
9 Gestur Ólafsson er stjórnarformaður
fiskvinnslu- og útgerðar-
fyrirtækisins Stakkavíkur
í Grindavík og á jafnframt
30 prósenta hlut í fyrirtækinu. DV sagði
frá því að Stakkavík hefði fengið 3,3 millj-
arða króna afskrifaða af skuldum sínum
við Landsbankann árið 2011. Stakkavík
var eitt af þeim útgerðarfyrirtækjum sem
fékk afslátt af sérstaka veiðigjaldinu á
yfirstandandi fiskveiðiári. Hjá Stakkavík
starfa 170 starfsmenn og námu launa-
greiðslur félagsins tæplega 450 milljónum
króna árið 2011.
Afskriftakóngar
á góðum launum
n Milljónir í laun og milljarðar í afskriftir n Í sterkri stöðu þrátt fyrir tap
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar annas@dv.is