Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Blaðsíða 6
6 Fréttir 31. júlí 2013 Miðvikudagur Rannsaka sleðann n Ferðamaðurinn sem lést á Langjökli var frá Tævan R annsóknardeild lögreglunnar á Selfossi hefur sent frá sér til­ kynningu vegna banaslyssins sem var á Langjökli á mánu­ dag. Lögreglan lagði hald á vél­ sleðann sem ferðamaðurinn ók og verður bensíngjöf hans sérstaklega skoðuð. „Eldsneytisgjöf vélsleða er við stýris handfang sleðans. Venjan er að ökumaður þrýsti á hana með þumal­ fingri hægri handar og beinist rann­ sóknin meðal annars að því hvort búnaður sleðans hafi verið í lagi og þá hvort ökumaðurinn hafi gripið utan um eldsneytisgjöfina og stýris­ handfangið og haldið eldsneytisgjöf­ inni þannig fastri í botni en ætla má að óvönum fatist við svo mikla inngjöf sem af slíkum handabrögðum hlytist,“ segir í tilkynningu lögreglunnar. Um tildrög slyssins segir að akstur­ inn hafi farið eðlilega af stað eftir fyrir fram ákveðinni leið þar sem aksturs­ hraði sé yfirleitt um 10 til 15 km á klukkustund. „Síðan tók maðurinn sig út úr röðinni, jók hraðann umtalsvert og við það kastaðist konan af sleðan­ um. Síðan virðist sleðinn hafa farið að minnsta kosti 2 veltur og stöðvast. Maðurinn var meðvitundarlaus en með lífsmarki þegar að var komið og hlúðu starfsmenn að honum um leið og þeir kölluðu eftir aðstoð. Hann var úrskurðaður látinn á vettvangi af lækni í þyrlusveit Landhelgisgæsl­ unnar en konan var flutt á sjúkrahús í Reykjavík til aðhlynningar,“ en hún fótbrotnaði og hlaut skrámur í andliti og víðar um líkamann. Herbert Hauksson, hjá fyrirtæk­ inu Fjallamönnum sem stýrði ferð­ inni, sagði í samtali við DV.is að mað­ urinn hafi sagst vera með ökuréttindi og skrifað undir pappíra þess efnis en annað hafi síðan komið á daginn. Herbert segir einnig að maðurinn hafi laumast til að fara á vélsleðann, sett bensínið í botn og misst stjórn á sleðanum með fyrrnefndum afleið­ ingum. Hinn látni hét Jin Jee Dzan og var fæddur þann 10.02.1951. n F élag í eigu Ólafs Ólafssonar fjár­ festis, eiganda Samskipa og fyrrverandi næst stærsta hlut­ hafa Kaupþings, og eiginkonu hans, Ingibjargar Kristjáns­ dóttur, gaf í síðasta mánuði út skulda­ bréf fyrir tæplega 40 milljónir króna. Skuldabréfaútgáfan er til þess gerð að koma peningum til Íslands erlendis frá í gegnum fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands með afslætti. Skuldabréfið er svo keypt með fjármagni erlendis frá og borgar eignarhaldsfélagið svo af því á næstu árum. Þetta kemur fram í út­ gáfulýsingu skuldabréfsins. Fjölmargir íslenskir fjárfestar og erlendir hafa nýtt sér þessa fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands á liðnum árum en með henni geta þeir fengið 20 prósenta afslátt af ís­ lenskum krónum hér á landi. Tók milljarða í arð Eignarhaldsfélagið sem um ræðir heitir „Kimi ehf. – félag í minni Ólafs Sverris­ sonar og Önnu Ingadóttur“, en það eru foreldrar Ólafs sem nú eru látin. Til­ gangur félagsins er sagður vera „leiga atvinnuhúsnæðis“ en Kimi ehf. á fast­ eignina að Brákarbraut 13 í Borgarnesi sem hýsir Landnámssetur Íslands. Í setrinu er meðal annars að finna veitingastað og hafa verið settar upp vinsælar leiksýningar í húsinu. Skulda­ bréfaútgáfan er dagsett 22. júlí síðast liðinn og sá verðbréfafyrirtækið Auð­ ur Capital um hana. Verðmæti skulda­ bréfsins er rétt aðeins hærra en bókfært verðmæti fasteignarinnar í Borgarnesi því í síðasta ársreikningi Kima er húsið bókfært á 35 milljónir króna. Á húsinu hvílir eitt skuldabréf frá Arion banka frá því í febrúar síðast liðnum upp á 35 milljónir króna. Ólafur Ólafsson tók milljarða króna í arð út úr íslenska efnahags kerfinu á árunum fyrir hrunið, meðal annars út úr Kaupþingi og HB Granda. Ólafur hefur verið búsettur í Bretlandi og Sviss eftir íslenska efnahagshrunið 2008. Húsið stækkað Heimir Sigurðsson, stjórnarmaður í Kimi sem skrifaði undir skuldabréfa­ útboðið fyrir hönd félagsins, segir að ástæðan fyrir skuldabréfaútboðinu sé sú að félagið sé að afla fjár vegna stækkunar hússins í Borgar nesi. Hann segir að reksturinn á Landnámssetr­ inu hafi gengið vel og að ákveðið hafi verið að stækka húsið. Heimir segir að í kjölfarið á breytingunum muni nú­ verandi leigu taki, Kjartan Ragnarsson, fara að greiða húsaleigu en frá því ár­ inu 2006 hefur leigutakinn ekki greitt leigu til Kima. „Þetta er bara lítið fé­ lag úti á landi sem á eitt hús og það er bara að afla sér fjár til að stækka við húsið (...) Þetta gengur mjög vel hjá þeim Kjartani og það er verið að stækka þarna eldhús og veitingasalinn. Það byrj­ ar að koma leiga um leið og viðbyggingin verður tekin í notkun“ segir Heimir en ársreikningur rekstrarfé­ lags Landnámsetursins sýnir fína stöðu þess fé­ lags, nokkurra milljóna hagnað síðast liðin tvö rekstrarár. „Peningarnir koma frá þeim persónu- lega“ Heimir segir aðspurð­ ur að peningarnir sem notaðir eru til að kaupa skuldabréf Kima komi frá Ólafi Ólafssyni og Ingi­ björgu eiginkonu hans. „Peningarnir koma frá þeim persónulega,“ segir Heimir. Hann segir að upphaflega megi rekja kaup þeirra hjóna á húsinu til þess að þau hafi viljað láta gott af sér leiða í Borgarnesi þar sem þau eru bæði ætt­ uð úr bænum og nærsveitum. „Þau eru bæði úr Borgarnesi, Ólafur úr bænum og Ingibjörg úr nærsveitum. Þeim leist vel á hugmynd Kjartans og þau vildu leggja sitt af mörkum,“ segir Heimir. Keypti húsið 2006 Félag Ólafs eignaðist húsið sem í dag hýsir Landnámssetrið, árið 2006. Kimi keypti húsið af Spari­ sjóði Mýrasýslu sem þá var nýbúinn að leysa eignina til sín upp í skuldir. Afsalið til Kima frá Sparisjóði Mýrasýslu er dagsett þann 12. maí 2006 og undirritað af Gísla Kjartans syni spari­ sjóðsstjóra og Kristni Hallgrímssyni, lög­ manni Ólafs og sam­ verkamanni til margra ára. Í afsalinu er kaupverð hússins ekki tekið fram en þar segir að það sé „að fullu greitt.“ Í óundirrituðum kaupsamningi sem DV hefur undir höndum kemur hins vegar fram að kaupverðið hafi verið 35 millj­ ónir króna og að félag Ólafs hafi greitt það við undirritun kaupsamnings. Sparisjóðurinn hafði eignast hús­ ið þann 11. janúar árið 2006 þegar húsið var tekið upp í skuldir vegna bágrar stöðu eignar halds­ félagsins Vesturness ehf. Tæplega 44 millj­ óna króna lán Vestur­ ness voru þá í van­ skilum að hluta til. Fimm mánuðum síðar var húsið svo selt til eignarhalds­ félags Ólafs og Ingi­ bjargar. n Ólafur fær afslátt af íslenskum krónum n Flytur inn fjármuni í gegnum fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Stækka Landnámssetrið Hjónin Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir flytja inn peninga í gegnum fjárfestingaleið Seðlabankans til að stækka Landnámsetur Íslands. Mynd SigTryggur Ari Engin leiga Leigutaki Landnámsset- urssins, Kjartan Ragnarsson, hefur ekki greitt neina leigu af húsinu síðastliðin sjö ár. Mynd SigTryggur Ari Banaslys á Langjökli Verið er að rannsaka hvort ferðamaðurinn hafi haft ökuréttindi. Veltan nam tíu milljörðum Greiðslukortavelta erlendra ferða­ manna í júní jókst um 18,1 pró­ sent frá sama mánuði í fyrra og nam næstum 9,8 milljörðum króna. Þetta kemur fram í upp­ lýsingum frá Rannsóknarsetri verslunar innar. Erlendir ferða­ menn vörðu mestu í gistingu, næst mestu í verslun og þar næst í ýmsa skipulagða ferðaþjónustu eins og skoðunarferðir og hvalaskoðun. Í tilkynningu sem rannsóknar­ setrið sendi frá sér kemur fram að veitingahús njóti góðs af auknum ferðamannastraumi til landsins því ferðamenn greiddu rúmlega 1,1 milljarð króna. með greiðslu­ kortum fyrir veitingar í júní sem er um 24 prósenta aukning frá júní í fyrra. Þá greiddu erlendir ferða­ menn næstum 1,8 milljarð króna með kortum sínum í verslunum hér á landi, sem var 13 prósent­ um hærri upphæð en í júní í fyrra. Fjórðungsaukning var í erlendri kortaveltu í dagvöruverslunum og 17 prósenta aukning í Fríhöfninni, svo dæmi séu tekin. Útlendingar greiddu í júní 21 milljón króna með kortum fyrir ferjuflutninga sem er aukning um 156 prósent frá síðasta ári. Líklega er þar um að ræða mikla aukningu ferðamanna til Vestmannaeyja og um Breiðafjörð. Kortavelta vegna gistingar á tjaldstæðum og öðrum gististöð­ um en hótelum og gistiheimil­ um, jókst um 119 prósent í júní frá sama mánuði í fyrra. Erlend korta­ velta á þessum gistisvæðum nam 9 milljónum í júní síðast liðnum sem er þó aðeins brot af greiðslum vegna hótelgistinga sem var um 2,5 milljarðar króna. Þess ber að geta að kortavelta útlendinga sem kaupa farmiða eða pakkaferðir til Íslands frá heimalandi sínu eru ekki innifald­ ar í þessum tölum nema korta­ veltan fari í gegnum íslenska færslu hirða. Þannig eru erlendar greiðslur vegna flugferða hingað til lands og greiðslur til erlendra ferðaskrifstofa eða annarra milli­ liða ekki meðtaldar. Þá eru úttektir á reiðufé úr hraðbönkum ekki inni í þessum tölum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.