Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Page 11
Fréttir 11Miðvikudagur 31. júlí 2013 Ú tgerðarmaðurinn Magnús Kristinsson seldi fyrirtæki sitt Berg-Huginn fyrir á milli 9 og 10 milljarða króna til Síldar- vinnslunnar í fyrra samkvæmt heimildum DV. „Þetta voru níu til tíu milljarðar,“ segir heimildarmað- ur DV og rímar sú tala við upplýs- ingar sem blaðið hefur annars stað- ar frá. Magnús var sá einstaklingur sem greiddi hæstu skattana á Ís- landi í fyrra samkvæmt upplýsingum úr skattaskrám, samtals tæpar 190 milljónir króna. Ástæðan fyrir þess- um háum greiðslum Magnúsar er sú að hann greiddi skatt af söluhagn- aði hlutabréfanna í Bergi-Huginn. Útgerðin átti eignir upp á meira en 4.4 milljarða króna í árslok 2011 en eigin fjárstaða félagsins var neikvæð um meira en tvo milljarða króna vegna skuldsetningar þess. Frumkvæðið Magnúsar Magnús seldi Berg-Huginn til Síldar vinnslunnar í ágúst í fyrra. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp og hefur DV ekki náð í Magn- ús til að spyrja hann um það. Gunn- þór Ingvarsson, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, sagði við DV í september í fyrra að Magnús hefði verið hvatamaður að því selja Berg- Huginn til fyrirtækisins. „Magnús kom að máli við okkur og við náð- um bara saman.“ Gunnþór sagði þá við DV að engir bankar hefðu verið milliliðir í viðskiptunum. „Við átt- um bara í samningaviðræðum við Magnús Kristinsson um þetta mál.“ Gunnþór segir aðspurður að kaup- verðið verði ekki gefið upp. Frum- kvæðið í viðskiptunum var því alfar- ið Magnúsar. Nýtti kauprétt og seldi svo Líkt og DV greindi frá í september í fyrra þá nýtti Magnús Kristinsson sér kauprétt að hlutabréfum Lands- banka Íslands, skilanefnd gamla Landsbankans, í Bergi-Huginn einungis nokkrum vikum áður en hann seldi Berg-Huginn til Síldar- vinnslunnar. Magnús átti 41 prósenta hlut í Bergi-Huginn á móti 45 pró- senta hluta bankans og 14 prósenta hlut bróður síns, Birkis Kristinsson- ar. Landsbankinn hafði leyst til sín 45 prósenta hlut í útgerðinni vegna skulda Magnúsar eftir hrunið 2009. Magnús átti því 86 prósenta hlut í út- gerðinni þegar hún var seld til Síldar- vinnslunnar í fyrra. Magnús neitaði að ræða kaup- in á hlutabréfunum af Landsbank- anum þegar DV hafði samband við hann í fyrra: „Ég er búinn að segja ykkur það hjá DV að þið eigið ekki að spyrja mig spurninga. Takk samt fyrir að muna eftir mér. Vertu marg bless- aður,“ sagði Magnús og skellti svo á. Skuldugi skattakóngurinn Skattakóngur Íslands árið 2012 er því útgerðarmaður sem missti sjávar- útvegsfyrirtæki sitt að stóru leyti til fjármálafyrirtækis vegna skulda eft- ir hrunið 2008 en sem fékk að kaupa þann hlut aftur á grundvelli kaup- réttarsamnings sem hann gerði við bankann. Svo seldi Magnús allan hlut sinn í Bergi-Huginn rétt eftir að hafa keypt hlutabréfin – 45 prósenta hlut – af bankanum. Eftir stend- ur Magnús, í ljósi þeirra skatta sem hann greiddi til hins opinbera vegna sölunnar, sem skattakóngur ársins 2012 þrátt fyrir að hafa misst öll fyr- irtæki sín – Toyota-umboðið, Mót- ormax og Dóminos pizza – vegna skuldsetningar þeirra eftir hrunið 2008. Þannig náði einn af þeim fjár- festum sem var hvað skuldsettastur eftir hrunið 2008 að verða sá skatta- hæsti árið 2012. n Átti nær allt félagið Magnús Kristinsson átti nær allt félagið þegar hann seldi Berg-Huginn í fyrra fyrir á milli 9 og 10 milljarða króna. Skattakóngur seldi fyrir um tíu milljarða n Greiddi háan skatt vegna sölu útgerðar„Magnús kom að máli við okkur og við náðum bara saman Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.