Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Side 20
20 Lífsstíll 31. júlí 2013 Miðvikudagur Erótísk gleraugu n Klámmyndaiðnaðurinn fagnar Google-gleraugum S tórfyrirtækið Google hefur lagt mikið í þróun hinna svoköll- uðu Google-gleraugna en þau gera fólki kleift að sjá borgakort, taka vídeó, tala á Skype og taka mynd- ir án þess að þurfa nokkurn tímann að munda snjallsímann. Margir eru þó efins um að gleraugun muni slá í gegn hjá öðrum en hörðustu tækninörd- um. Þykja gleraugun frekar klunnaleg og minna þeir sem bera þau á persón- ur úr framtíðarmyndum. Margir eru einnig áhyggjufullir yfir myndavélinni sem gerir fólki kleift að taka upp án þess að aðrir viti af því. Einn geiri hefur þó fulla trú á Google-gleraugunum en það er klámmyndaiðnaðurinn. Jafnvel þótt gleraugun séu ekki enn komin á al- mennan markað þá hefur fyrsta Google-gleraugna klámmyndin verið framleidd og er klámmyndastjarn- an James Deen í aðalhlutverki. Stikla úr myndinni hefur vakið talsverða athygli á YouTube en atriði í myndinni eru tekin upp með Google-gleraug- unum og því séð með augum leikar- ans í bókstaflegri merkingu. Fyrirtæk- ið Google er ekki par hrifið af þessari þróun og hefur reynt að gera klám- myndaiðnaðinum erfiðara um vik að nota Google-gleraugun með breyting- um á notendareglum. Google-gleraugun eru ekki enn komin á almennan markað en prufu- eintök eru í umferð víða um heim. Og það eru ekki bara gleraugu sem fá nýtt hlutverk þessa dagana því hin svoköll- uð snjallúr eru líka væntanleg á mark- að. Hvort klámmyndaiðnaðurinn finni not fyrir þau er hins vegar erf- iðara um að spá. n Google-gleraugun Gleraugu framtíðarinnar? S ilja Hinriksdóttir opnaði sýn- ingu á málverkum sínum hér á Íslandi á dögunum en hún stundar myndlistarnám í London. Fyrir utan að mála notar Silja málverkin í fatahönnun sinni en föt hennar hafa vakið mikla athygli. Hún segir íslenska náttúru veita sér innblástur og notar eigin líkama þegar hún málar. Góð reynsla Silja útskrifaðist af textíl- og fata- hönnunarbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ 2009. Eftir útskrift byrjaði hún að vinna hjá Volcano design, en á þeim tíma var fyrirtækið á byrjun- arstigi. „Reynslan sem ég öðlaðist við að vinna þar í rúma 18 mánuði var mikil og ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri á að vinna með þeim. Ótrúlega margt gerðist á þessu tímabili sem ég lærði af, fyrirtækið blómstraði og gengur mjög vel í dag,“ segir Silja. Haustið 2011 byrjaði hún í grunn- námi í myndlist í London. Silja seg- ist hafa verið að mála síðan hún man eftir sér. Hún hefur lokið öðru ári sínu í BA námi í myndlist við Camberwell Coll ege of the Arts og stefnir á að klára námið vorið 2014. Notar líkamann sem pensil „Íslensk náttúra er mér mikill inn- blástur, bæði þegar kemur að lita- samsetningum og áferð. Ég nota pensla mjög takmarkað í verkun- um mínum, öll verkin sem ég hef til sýningar nú eru gerð með því að „prenta“ líkama minn á strigann eða nota hann til að fjarlægja málningu af striganum. Það sem heillar mig við þessa aðferð er að ég er að nota vel þekkt, hversdagslegt form líkam- ans, en þrátt fyrir það er útkoman oft mjög abstrakt. Tengir saman myndlist og fatahönnun Myndlistarsýning Silju opnaði þann 25. júlí í Gróskusalnum á Garðatorgi í Garðabæ. Á sýningunni eru bæði málverk og fatnaður úr textílefnum sem Silja hefur hannað og saumað út frá málverkum sínum. „Ég var einnig með til sýnis fata- línu sem ég hef saumað núna í sum- ar. Allar flíkurnar eru saumaðar úr textílefnum sem ég hef hannað sjálf með því að spegla ákveðnum mál- verkum til þess að mynda munstur. Verkefnið er partur af lokaverkefni mínu í Camberwell College of the Arts í London og ég er að vinna við þá hugmynd hvað málverk er í raun og veru. Hefur málverk einungis fagur- fræðilegt eðli eða getur það sinnt praktískum tilgangi, og er þá hægt að nýta það meira á þann hátt? Hver er tengingin á milli listar og hönnun- ar? Á þessu ári hef ég haft tækifæri til að geta sameinað bæði myndlist og fatahönnun og mun án efa halda áfram að þróa og vinna þá hug- mynd,“ segir hún. n Líkaminn er pensillinn n Íslensk náttúra innblásturinn n Blandar saman myndlist og fatahönnun Íris Björk Jónsdóttir blaðamaður skrifar iris@dv.is „Will Pregnancy wreck her boobs“ Heitir þetta verk Silju. Lærði í London Textíll er Silju hugleikinn, en hér má sjá trefla úr hennar smiðju. Listakona Silja Hinriksdóttir hefur unun á að skapa. Gróskusalurinn Er staðsettur á Garðatorgi í Garðabæ. Samkvæmis- taska á eina milljón Þetta mun seint verða tískubóla sumarsins en margar stjörnur sem vita ekki aura sinna tal eru sjúkar í nýju Lego töskuna frá Chanel. Taskan kostar rúmlega eina millj- ón króna og fæst í mörgum út- færslum. Rihanna og Kardashian systur hafa sést með slíka tösku enda kannski ekki ýkja erfitt fyr- ir þær að punga út einni milljón fyrir fallega tösku. Lego taskan var framleidd í takmörkuðu upplagi og seldist upp á örskotsstundu. Nýr iPhone á markað? Það styttist í nýja uppfærslu af iPhone samkvæmt heimildum The Huffington Post. Samkvæmt þessu getur verið að aðeins séu nokkrar vikur þangað til iPhone 5S kemur á markað, eða þann 6. september. Margir búast einnig við því að Apple ætli líka að fram- leiða ódýrari útgáfu af iPhone þar sem hulstrið verði úr plasti með- al annars. Nú er bara að sjá hvort þetta reynist rétt. Endurnýjaðu snyrtivörurnar reglulega Ekki nota gamlar förðunarvörur, þær geta innihaldið sýkla. Ef þú ert í vafa um hvort farðinn sé í lagi skaltu lykta af honum og veittu því athygli hvort hann hefur breyst í sjón og áferð. Ef hann lyktar illa, hentu honum þá. Ef þú notar förðunarbursta, eða förðunarpúða þarftu að hreinsa hann reglu- lega. Sjampó virkar vel sem hrein- gerningarefni fyrir burstana. Ekki nota munnvatn til að bleyta upp í maskaranum þínum eða augnskugganum og ekki lána förðunarvörurnar þínar, þú get- ur fengið sýkla í augun og einnig herpes-vírus. Líftími snyrtivara n Maskari: 3 mánuðir n Eyeliner: 12 mánuðir n Meik: 6–12 mánuðir n Gloss og varalitur: 18 mánuðir n Augnskuggi: 18 mánuðir n Kinnalitur: 18 mánuðir n Púður: 18 mánuðir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.