Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1917, Side 21
Verslunarskýrslur 1914
19
1914 112 þús. tonn. Af steinolíu var flutt inn 1903—05 um 1400 tonn
á ári að meðaltali, 1911 um 3 500 tonn, en 1914 um 3 800 tonn.
Til andlegrar framleðslu. Af slíkum vörum hefur innflutn-
ingur numið rúml. 200 þús. kr. Er það töluvert meir en talið hefur
verið í þessum flokki undanfarin ár, sem stafar að nokkru teyti af
því, að nú eru fleiri vörur taldar þar en áður (sbr. bls. 14*).
Af byggingarefnum var árið 1914 flutt inn fyrir 1.2 milj. kr.
og er það nokkru minna heldur en árið á undan. í þessum flokki
munar langmest um trjáviðinn, en því næst kemur sement og þak-
járn. Verðupphæð þessara vörutegunda árið 1914 og 1913 var sem
hjer segir.
1914 1913
Trjáviður....... 826 þús. kr. 887 þús. kr.
Sement.......... 171 — — 195 — —
Pakjárn......... 148 — — 167 — —
Til sjávarútegs aðallega hafa árið 1914 verið fluttar inn vör-
ur fyrir næstum 2^/s milj. kr. auk kolanna og steinolíunnar, sem
gengur til sjávarútvegsins, en talið er í V. flokki. Af vörum þeim,
sem hjer eru taldar, er saltið langþyngst á metunum. Af salti hefur
flust inn síðustu árin það sem hjer segir:
1910 ......... 22800 tonn 482 þús. kr.
1911 .......... 34 200 - 666 — —
1912 .......... 37 600 — 833 — —
1913 .......... 43 000 — 1 049 — —
1914 .......... 50 000 — 1 103 — —
Á þessum 5 árum hefur innflutningur af salti meir en tvöfald-
ast, ef reiða má sig á þessar tölur, en síðustu tvö árin munu þær
vera töluvert ábyggilegri heldur en árin á undan vegna þess, að þar
hefur mátt styðjast við vörutollsreikningana.
Til landbúnaðar er talinn innflutningur fyrir rúml. 260 þús.
kr. árið 1914. Þar til telst skepnufóður (nema korn), baðlyf, áburð-
ur, gaddavír, hestajárn, landbúnaðarverkfæri og landbúnaðarvjelar.
I’essi innflutningur má heita hreinn landbúnaðarinnflutningur, en
auk þess gengur til landbúnaðar sumt af þeim innflulningi, sem tal-
inn er í öðrum flokkum, svo sem nokkuð af kornvörunum, sem
notað er til skepnufóðurs og nokkuð af saltinu, sem notað er til kjöt-
söltunar og heysöltunar. Af þeim vörum, sem taldar eru í þessum flokki,
munar mest um gaddavír. Af honum hefur flust inn á síðari árum:
1910 ............. 75 þús. kg 17 þús. kr.
1911 ........... 111 — — 28 - —
1912 ............ 196 - — 48 — —
1913 ........... 253 — — 64 — —
1914 ........... 355 — — 85 — —