Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1917, Blaðsíða 22
20
Verslunarskýrslur 1914
Á þessum 5 árum hefur innflutningur af gaddavír næstum fimm-
faldast. Árin 1907 og 1908 var þó innflutningurinn meiri heldur en
19)0. Árið 1914 eru taldar innfluttar 394 skilvindur og er það minna
heldur en tvö næstu árin á undan, 1913 fluttust inn 517, en 445
árið 1912. Árið 1904 og 1905 var innflutningurinn mestur, um 600
hvort árið, árið 1908 aftur á móti ekki nema tæplega 100, en svo
liækkandi úr því. Um sláttuvjelar er fyrst getið í verslunarskýrslum
1911. Það ár voru fluttar inn 30 sláttuvjelar, jafnmargar hafa verið
flultar inn árið 1914, en 48 árið 1912 og 38 árið 1913.
Til ýmislegrar framleiðslu er talið, að innflutt hafi verið
fyrir 1.4 milj. kr. árið 1914. Vörur þær, sem hjer eru taldar, eru
haria margskonar og sundurleitar, og lenda hjer þær vörur, sem ekki
falla beinlínis undir neinn af hinuin flokkunum. Þar undir fellur þvi
t. d. peningar mótaðir, óunnir málmar, ýmsar járnvörur, smíðalól,
verkfæri og áhöld, vagnar og ýmsar vjelar, kemiskar vörur og sprengi-
efni, umbúðapappír, farfi og fernis, skinn og tóvöruefni og ýmislegt
fleira. Af þessum vörum munar langmest um járnvörurnar.
IV. Útfluttar vörutegundir.
Eócporlation des marchandises.
í töflu III (bls. 21 — 25) er skýrt frá útflutningi á hverri ein-
stakri vörutegund bæði frá landinu í heild sinni og frá Reykjavík
sjer i lagi. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir eftir skyldleika þeirra og
eðlismun og í töflu I (bls. 2—3) er yfirlit yfir þá flokkaskiftingu.
Þær vörur, sem útflutningsgjald er greitt af, eru taldar eftir því sem
útflutningsgjaldsreikningarnir sýna, að útflutt hefur verið, þegar það
er hærra heldur en skýrslur útflytjenda tilgreina, en svo er venju-
lega um flest.
3. tafla (bls. 21*) sýnir, hve mikilli verðupphæð útflutta varan
hefur numið árlega siðan um aldamót. Eru vörurnar þar flokkaðar
eins og að undanförnu eftir því, frá hvaða atvinnuvegi þær stafa.
Fiskiafurðirnar eru aðalútflutningsvaran. Þær námu 151/*
milj. kr. árið 1914 eða framundir V4 af verðupphæð allrar útfluttu
vörunnar. Síðan um aldamót hefur verðupphæð útflultra fiskiafurða
þrefaldast, því að árið 1901 var hún aðeins rúml. 5 milj. kr. eða
um 56°/o af verði allrar útfluttu vörunnar þá.
4. tafla (bls. 22*) sýnir útflutninginn á fullverkuðum saltfiski,
hálfverkuðum og óverkuðum fiski og harðfiski á hverju ári síðan