Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1917, Page 28
26
Versíunarskýrslur 1914
ingunum er tiltölulega töluvert minni lieldur en fyrir nokkrum árum.
Árið 1909 komu 48% aí verði aðfluttu vörunnar á Danmörku, en
1912 ekki nema 38°/o. Síðan hefur hluldeild Danmerkur heldur vax-
ið aftur og var 3972°/o árið 1914. Aftur á móti komu á Bretland
31°/o af verði aðfluttu vörunnar árið 1909, 36% árið 1912, en 34%
árið 1914. Næst þessum löndum gengur Þýskaland með 8% og Nor-
egur með 6% af aðíluttu vörunni 1914. Síðan 1909 liafa þessi lönd
skift um sæti, því að þá komu 1072% á Noreg, en ekki nema 6% á
Þýskaland. A eftir þessum löndum koma Spánn og Bandaríkin með
372% af aðfluttu vörunni 1914 hvort fyrir sig, Svíþjóð með 2%%,
Holland með H/2% og ítalia með tæpl. 1%.
Af útfluttu vörunum er mest selt til Danmerkur, 40°/0 árið 1914.
Þar nææst koma Spánn, Bretland og Noregur með 13—15% hvert
Þá kemur ítalia með 9°/o, Sviþjóð með 6% og Bandaríkin með 2°/o.
Til Spánar og' Bretlands fór tillölulega minna af útílutningnum
heldur en árið 1909, en aftur á móti meira til Noregs.
Á 5. töflu (bls. 25*) sjest, að miklu meira er ílutt inn til íslands
frá Bretlandi og Þýskaiandi heldur en hjeðan er flutt til þessara
landa. Aðfluttar vörur frá Danmörku vega næstum upp á móti útflutt-
um vörum þangað. Aftur á móti er miklu meira flutt út til Noregs og
Svíþjóðar, Spánar og Ítalíu heldur en aðflutt er frá þessum löndum.
Tafla IV. og V. (bls. 26 — 29) sýna hvernig flutningarnir frá og
til hvers lands skiftust eftir vöruflokkum árið 1914. Vörurnar eru
þar llokkaðar eftir' eðli sinu og innbyrðis skyldleika. Og í töflu VI
og VII. (bls. 30 — 60) eru taldar upp allar hinar einstöku vörutegund-
ir, sem falla undir þá flokka, og sýnt hvernig þær skiftast eftir lönd-
unum, sem þær eru keyptar frá eða seldar til.
Frá Danmörku námu aðfluttar vörur árið 1914 7.i milj. kr.
Framundir helmingur þar af var matvæli og munaðarvörur. Af ein-
stökum vörutegundum þar á meðal var rúgmjöl hæst, fyrir rúmlega
% milj. kr. og sykur fyrir tæpl. 72 milj. kr. Frá Danmörku fluttust
einnig vefnaðarvörur fyrir 650 þús. kr. og steinolía fyrir rúmlega 72
milj. kr. Úlfluttar vörur til Danmerkur námu 8.3 milj. kr„ þar af
fiskur fyrir rúmar 3 milj. kr„ saltkjöt fyrir l3/* milj. kr„ ull fyrir
l1/* milj. kr„ sauðargærur fyrir 1 milj. kr„ hross fyrir 73 rnilj- kr.
og þorskalýsi fyrir 7< milj. kr.
Frá Bretlandi fluttust vörur fyrir 6.t milj. kr. Þar af voru kol
fyrir rúml. 272 milj. kr„ kornvörur fyrir framundir 17< milj. kr„ þar
á meðal hveitimjöi fyrir 1/3 milj. kr„ ennfremur vefnaðarvörur fyrir
tæpl. 700 þús. kr. Útfluttar vörur til Bretlands námu 2.» milj. kr„
þar af fiskur fyiir rúml. 2 milj. kr.