Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1917, Side 32
30
Yerslunarskýrslur 1914
Svo sem hjer sjest námu verslunarviðskiftin við útlönd 1914 í
7 kauptúnum meir en 1 milj. kr. Þessi kauptún eru allir kaupstað-
irnir 5 og auk þess Siglufjörður og Vestmannaeyjar. Siglufjörður
stendur jafnvel að eins að baki Reykjavíkur og Akureyrar að því er
upphæð verslunarviðskiftanna snertir, en er töluvert framar hinum
kaupstöðunum í því efni. Vestmannaeyjar eru líka að eins lítið eitt
lægri heldur en Seyðisfjörður, sem lægstur er af kaupstöðunum. Alls
hefur verslunarmagn þessara kauptúna, sem hæst eru, numið 26
milj. og 855 þús. kr. og er það 69°/o eða rúml. 2/s af verslunarmagni
alls landsins.
Að því er kaupstaðina sjerstaklega snertir, er yfirlit 'yfir við-
skiftaupphæð þeirra árin 1913 og 1914 i 7. töfiu (bls. 29*). Þar er
einnig sýnt með hlutfallstölum, hve mikill hluti af aðfluttu og út-
íluttu vörunni og af versluninni við útlönd í heild sinni kemur á
hvern kaupstað. Töluvert meira en helmingurinn af allri versluninni
við útlönd fellur á alia 5 kaupstaðina. Nálega þriðjungurinn af við-
skiftaupphæðinni kemur á Reykjavík eina eða töluvert meira heldur
en á hina kaupstaðina alla samanlagða.
VII. Tolltekjurnar.
Droits de douatie.
Á bls. 76—77 er yfirlit yfir tolltekjur landssjóðs árið 1914, og
er þar sýnt, hvernig hver lollur sundurliðast eftir vörutegundum
samkvæmt tolllögunum. Tolltekjurnar eru hjer taldar eins og þær
eru innheimtar frá toligreiðendum og áður en innheimtulaun eru
dregin frá. Upphæðirnar, sem greiðst hafa í landssjóð, eru því nokkru
lægri. Innlieimtulaun eru 2°/o af öllum tollum, nema 3°/o af vörutolli.
Hjer með er ekki talinn sá liluti af vörutollinum, sem greiddur
er af póstböglum, því að um hann er ekki til nein skilagrein. Pósl-
höglatollurinn er greiddur í frímerkjum og því innifalinn í pósttekj-
unum (frímerkjasölu). 1914 var hann 30 au. af hverjum bögli. Það
ár voru alls fluttir til landsins 42 788 póstböglar. Ef þeir hefðu allir
verið tollskyldir, liefði tollurinn af þeim numið alls rúml.- 12 800 kr.,
en nú eru undanþegnir tolli höglar, sem eru endursendir, svo og
prentaðar bækur og blöð og eru engar skýrslur til um, hve miklu
það nemur. Ef gert er ráð fyrir, að það sje 10°/o af böglatölunni, þá
ætti póstböglatollurinn 1914 að liafa numið um 11 500 kr.