Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1917, Side 35
Verslunarskýrslur 1914
33
1906—1910 ............ innlendar 88°/o, erlendar 12°/o
1911 ................ —»— 89— -»— 11—
1912 ............—»— 91— —»— 9—
1913 ................ —»— 90— —»— 10—
1914 ................ —»— 92— —» - 8—
Um stærð verslananna eru engar upplýsingar og því verður
ekki sagt, hve mikil hlutdeild erlendu verslananna er í versluninni
yfirleitt, en sjálfsagt er sú lilutdeild miklu meiri en talan bendir til,
því að flestar erlendu verslanirnar eru stórverslanir, en margt af
þeim innlendu mjög smáar verslanir.
Á síðustu árum hefur komið upp ný tegund verslana, sem áður
var mjög lítið um. f*að eru umboðs-’ og heildverslanir. Árið 1914
voru taldar 16 slíkar verslanir hjer á landi.
IX. Verslunarskuldir.
Dettes des chalands aux marchands.
Skýrslum um skuldir almerinra viðskiftamanna við verslanir
og iðnaðarfyrirtæki, er lánsverslun reka, hefur verið safnað síðan
árið 1910. Gefa verslanirnar sjálfar skýrslu um, hve mikla upphæð
þær eigi útistandandi við hver áramót hjá innlendum viðskiftamönn-
um (öðrum en bönkum) og hve mikið þeir eigi inni hjá versl.un-
inni á sama tíma. Tilgangurinn mun vera sá að fá að vita, hvað
landsmenn skulda fyrir vöruúttekt hjá kaupmönnum, en með því að
ekki eru undanskildir aðrir innlendir viðskiftamenn en bankar, telst
hjer með það sem kaupmenn skulda öðrum innlendum kaupmönn-
um eða heildsölum fyrir vörubirgðir. En til þessara skulda eiga að
svara jafnstórar innieignir hjá kaupmönnum þeim, sem fengið hafa
vörurnar lánaðar, og ættu því að hverfa, ef allar innieignir væru
dregnar frá aðalupphæð skuldanna. Varlegra er að leggja ekki altof
mikið upp úr skýrslum þessum. Sjálfsagt mun mikið af skuldum
þeim, sem hjer eru taldar, að eins vera til á pappírnum, fyrndar
eða gersamlega ófáanlegar og því einskis virði. Aftur á móti mun
líka vera til töluvert af verslunarskuldum við verslanir, sem sjálfar
eru undir lok liðnar, ýmist til innheimtu hjá málaflutningsmönnum
eða í eign einstakra manna, en slíkar skuldir eru ekki taldar lijer,
því að ógerningur er að hafa uppi á þeim.
Samkvæmt skýrslunum hafa skuldir manna við og innieignir í
verslunum numið þeim upphæðum, sem hjer fara á eftir, árin 1910-14: