Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1927, Qupperneq 9
Verslunarskýrslur 1924
7
ins æfinlega töluvert hærri heldur en innflutningsins og eins fyrstu stríðs-
árin. En síðari stríðsárin snerist þetta hlutfall alveg við og eftir stríðið
hefur þetta verið upp og niður. Mestur varð hallinn 1920, 21.8 milj. hr.,
en tiltölulega mestur varð hann árið 1917, er verðhæð útflutningsins
nam aðeins 68% af verðhæð innflutningsins (en 1920 þó 74°/o).
Ef menn vilja vita, hvort inn- eða útflutningur hefur aukist eða
minkað frá ári til árs, þá nægir eigi að líta á verðmagn inn- og útflutn-
ingsins, því að það er eigi aðeins komið undir því, hversu mikið er flutt
inn eða út, heldur líka því, hvort vöruverðið er hátt eða lágt. Og á
undanförnum árum síðan stríðið hófst, hafa orðið svo stórkostlegar verð-
breytingar, að ekkert verður ráðið um breytingar vörumagnsins frá ári
til árs af breytingum verðmagnsins aðeins. En verðbreytingarnar má úti-
loka með því að reikna út verðmagn inn- og útflutningsins ár eftir ár
með óbreyttu verði á hverri vöru. Ef verðmagnið samt sem áður hækkar
eða lækkar sýnir það, að vörumagnið hefur aukist eða minkað og hve
mikið. Mismunurinn á þessu útreiknaða verðmagni hvers árs og því verð-
magni, sem skýrslur sýna fyrir það ár, stafar þá eingöngu af verðbreyt-
ingum, og af því, hve mismunurinn er mikill má sjá, hversu verðbreyt-
ingin er mikil. Þennan útreikning hefur ]ón Þorláksson ráðherra gert í
bók sinni um »Lággengi« (bls. 100—104 og 123—126) fyrir árin 1914
—1922, en Hagstofan hefur haldið honum áfram fyrir árin þar á eftir.
Verðið, sem miðað er við öll árin er meðaltal af verði varanna árin
1913 og 1914 eða rjett áður en stríðið byrjaði og verðbreytingarnar
hófust fyrir alvöru. Það hafa þó ekki allar vörur verið teknar með í
reikninginn heldur aðeins úrval, 36 innflutningsvörur og 17 útflutnings-
vörur, en það eru langveigamestu vörurnar, sem nema yfir 60°/o af verð-
magni innflutningsins og yfir 90% af verðmagni útflutningsins (að frá-
töldum skipum). Er gert ráð fyrir, að þær vörur, sem ekki eru teknar
með, mundu sýna svipaða útkomu og því reiknað með sama hlutfalli
fyrir þær. Samkvæmt þessu hefur verið gert eftirfarandi yfirlit, er sýnir
breytingarnar á verðlagi og magni inn- og útflutningsvaranna á hverju
ári, þegar verðið 1913—14 er talið 100 og vörumagnið 1914 líka 100.
Verðvísitölur, Vörumagn,
nombreS'indices de prix nombr.-ind. de quantité
InnHutt, Otflutt, Innflutt, (Jtflutt,
import. export. import. cxport.
1914 ...................... 100 104 100 100
1915 ..................... 141 175 97 112
1916 ...................... 184 201 116 100
1917 ...................... 286 217 76 57
1918 ...................... 373 247 61 75
1919 ...................... 348 333 97 112
1920 ................ , 453 258 88 116