Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1935, Blaðsíða 10
8*
Verslunarskýrslur 1033
Samkvæmt þessu hefur venjulega tæplega helmingurinn af verð-
mæti innflutningsins gengið til neysluvara, en rúmur helmingur til fram-
leiðsluvara. Siðustu árin hefur hlutdeild framleiðsluvaranna aukist. en
neysluvaranna lækkað, svo að neysluvörurnar nema aðeins % af inn-
flutningnum, en framleiðsluvörurnar %.
Matvæli fluttust til landsins fyrir 4.- milj. kr. árið 1933. Nemur
það rúmlega 8%% af öllum innflutningnum það ár, og er það hlutfall
töluvert lægra heldur en undanfarin ár. I þessum innflutningi munar
langmest um kornvörurnar. Af helstu korntegundum, sem falla undir
þennan flokk, hefur innflutningurinn verið þessi síðustu árin (i þús. kg):
1929 1930 1931 1932 1933
Rúgur 551 714 620 431 277
Raunir 137 110 120 102 124
Hafragrjón (valsaðir hafrar) 1 (>40 1 634 1 642 1 590 1 623
Hrisgrjón 769 716 714 570 718
Hveitimjöl 3 011 5 808 4 114 4 275 4 551
Gerhveiti 310 269 279 268 339
ltúgmjöl 4 380 4 208 4 483 3 901 3 490
Eftirfarandi yfirlit sýnir innflutninginn á öllum kornvöriun i heild
sinni þessi sömu ár (í þús. kg). Er þá einnig talið með fóðurkorn (bygg,
hafrar og maís) og maismjöl, sem annars er ekki talið i matvælaflokkn-
uin, heldur sem innflutningur til landbúnaðar.
Omalafl korn Grjón Mjöl Samtals
1929 2 142 2 448 9 300 13 890
1930 2 359 2 426 11 252 16 037
1931 2 472 2 437 9 898 14 807
1932 1 821 2 264 9 469 13 554
19.33 *> 122 2 347 9 982 14 451
Kornvöruinnflutningurinn' 1933 hefur verið litlu minni hehlur en
árið 1931, en töluvert meiri heldur en 1932.
Auk kornvaranna eru þessar vörur helstar, sem falla undir mat-
vöruflokkinn, og hefur innflutningur þeirra verið svo sem hér segir hin
síðari ár (í þús. kg):
1929 1930 1931 1932 1933
Smjörliki 120 149 92 » )>
Niðursoðin mjólk 368 408 297 38 i
Ostur 147 99 55 )) ))
Egfi 57 96 97 56 53
Hart brauð 133 112 118 51 83
Kringlur og tvibökur .. 17 13 14 2 2
Kex og kökur 228 262 168 4 17
Jarðepli 1 864 2 298 2 500 2 235 2 365
Epli ný 205 206 197 222 313
Glóaldin (appelsinur) . 277 284 240 175 309
Rúsinur 153 148 140 29 111
Sveskjur 147 154 139 34 71
Kartöflumjöl 156 138 152 170 165
Ávextir niðursoðnir . . . 115 119 117 7 13
Ávaxtamauk (svltetöj) . 125 129 120 24 27
Sagógrjón og sagómjöl . 97 105 109 159 77