Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1935, Blaðsíða 11
Verslunarskýrslur 1933
9*
Ýmsar af þessum vörum hafa fallið burtu eða minkað stórlega
síðan árið 1932 vegna innflutningshaftanna. Þó hefur innflutningur af
ávöxtum vaxið aftur 1933.
Munaðarvöriir hafa verið kallaðar þær neysluvörur, sem ekki hafa
verið taldar nauðsynjavörur, svo sem kaffi, te, súkkulað, sykur, tóbak,
áfengir drykkir, gosdrykkir o. fl. Þetta eru þær vörur, sem tollarnir hafa
aðallega verið lagðir á, enda þótt sumar þeirra megi nú orðið telja nauð-
synjavörur, svo sem sykur. Af þessuin vörum nam innflutningurinn
árið 1933 3% milj. kr. eða 7% af öllum innflutningnum. Er það að vísu
að verðmagni meira heldur en næsta ár á undan, en hlutfallslega tölu-
vert minna.
2. yfirlit (hls. 10*) sýnir árlega neyslu af helstu munaðarvörunum á
hverju 5 ára skeiði síðan um 1880 og á hverju ári siðustu ö árin, hæði
í heild sinni og samánborið við mannfjölda. Er þar eingöngu um inn-
fluttar vörur að ræða, þar til á síðari árum, að við bætist innlend fram-
leiðsla á öli og kaffibæti. Brennivín er talið með vínanda, þannig að
Iítratala hrennivínsins er helminguð, þar eð það hefur hérumbil hálfan
styrkleika á við hreinan vínanda, svo að tveir lítrar af brennivíni sam-
svara einum litra af vínanda.
Á yfirlitinu sést, að árið 1933 hefur aukist neysla af öllum þessum
munaðarvörum, nema vínanda.
Innflutningur á sykri hefur vaxið afarmikið á siðustu 50 árum.
Neysla á mann hefur fimmfaldast og var orðin meir en 40 kg á mann
árið 1929, og svipuð hefur hún verið 1933. Er það mikið samanhorið við
önnur lönd. Árið 1933 var hún minni í flestum löndum Norðurálfunnar,
nema Danmörku (49 kg) og Svíþjóð (44 kg), en á Bretlandi svipuð (40 kg).
í Bandaríkjunum og Nýja Sjálandi var hún líka meiri (43 og 45 kg).
Neysla af kaffi og kaffibæti hefur aukist töluvert síðan um 1890.
1886—90 komu ekki nema 4 kg á mann að meðaltali, en 1916—20 ineira
en 7 kg. Síðustu árin hefur innflutningurinn þó verið lægri, en þar við
hefur bæst innlend framleiðsla á kaffibæti, sem er tekin með í töflunni.
Nam hún 26 þús. kg árið 1931, 182 þús. kg árið 1932, en 237 þús. kg árið
1933. Enda er nú svo að segja alveg tekið fyrir innflutning á kaffibæti.
Innflutningur á tóhaki hefur litið vaxið á undanförnum árum og
samanborið við mannfjölda hefur tóbaksneysla hérumhil staðið í stað.
Árið 1933 var innflutningurinn tæplega i meðallagi.
Innflutningur á áfengu öli (með yí'ir 2%% af vínanda að rúmmáli)
hefur verið bannaður síðan 1912, en framan af stríðsárunum gerðist inn-
flutningur á óáfengu öli allmikill og eins fyrstu árin eftir stríðslokin,
en siðan hefur hann farið minkandi og er nú næstum horfinn, enda er
líka komin á innlend framleiðsla í þessari grein. f töflunni er innlenda
framleiðslan tekin með síðan 1919. Árið 1931 var hún 642 þús. litrar,
en 1932 ekki nema 494 þús. lítrar og 1933 436 þús. lítrar, svo að neyslan
hefur minkað mikið.