Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1935, Blaðsíða 20
18*
Verslunárskýrslur 1933
4. Viðskifti við einstök lönd.
L’échange avec les pays étrangers.
5. yfirlit (hls. 19*) sýnir, hvernig verðupphæð innfluttu og útfluttu
varanna hefur skifst 4 síðustu árin eftir löndumun, þar sem vörurnar
hafa verið keyptar eða seldar. Síðari hluti töflunnar sýnir, hvern þátt
löndin hal'a tekið hlutfallslega í versluninni við íslanci samkvæmt islensku
verslunarskýrslunum.
Langmestur hluti innfluttu vörunnar kemur frá Damnörku og Bret-
landi, eða meir en helmingur alls innflutningsins. Venjulega hefur Dan-
mörk verið heldur hærri en Bretland, en síðustu árin hefur Bretland þó
verið töluvert hærra. Næst þessum löndum gengur Þýskaland með 13%
af öllum innflutningnum 1933. Því næst kemur Noregur með 12%, Spánn
með 5%, Svíþjóð með 4% og Holland, Bandarikin og Belgía með 1—2%.
Af verðmagni útflutningsins árið 1933 hefur rúmlega % komið á
Spán og er hann langhæstur af útflutningslöndunum. Fyrir striðið var
útflutningur langmestur til Danmerkur (um % af öllum útflulningnum),
en á stríðsárunum síðari tók að mestu fyrir allan xitflutning þangað og
síðan hefur hann ekki náð sér aftur í hið fyrra horf. Síðustu árin hefur
hann jafnvel farið minkandi og árið 1930 fóru aðeins 4% af útflutn-
ingnum til Danmerkur. 1931—33 var þó hlutdeild Danmerkur nokkru
meiri, en þó lílil í samanburði við mörg önnur lönd. Þá tók Portúgal við
14% af útflutningnum, ítalia við 12%, Bretland við 11% og Þýskaland
við 9%, þar næst kom Noregur og Danmörk með (i—7% og Sviþjóð og
Bandaríkin með 4% af útflutningnum.
Á 5. yfirliti sést, að miklu meira er flutt út frá íslandi til Spánar,
Ítalíu og Portúgals heldur en innflutt er frá þessum löndum, en aftur á
móti er miklu meira innflutt frá Danmörku og Bretlandi heldur en út-
flutt er þangað. Venjulega er meira flutt inn frá Noregi heldur en út
þangað, og meira flutt út lil Svíþjóðar heldur en inn þaðan, en munur-
inn er þar minni, og 1933 hefur verið jöfnuður að því er Svíþjóð snerti.
Arið 1933 hækkaði innflutningur töluvert frá flestum löndum. Þó
hefur hann lítið hækkað frá Spáni. En liltölulega mest hefur hækkunin
verið frá löndum, sem áður voru með mjög litinn innflutning, svo sem
Ítalía og Japan.
Árið 1933 hefur útflutningsupphæðin lækkað til Bretlands, Þýska-
lands, ftalíu og Svíþjóðar, en hækkað til flestra annara landa.
í töflu IV A og B (hls. 41—92) eru taldar upp allar helstu innfluttar
og útfluttar vörutegundir og sýnt hvernig inn- og útflutningsmagn
hverrar vöru skil'tist eftir löndum. í töflu III (hls. 30—40) er verðmæti
innflutningsins frá hverju landi og útflutningsins til ]>ess skift eftir vöru-
flokkum. ()g loks er í töflu V (hls. 93—110) taldar upp með magni og
verði helstu vörutegundirnar i innflutningmun frá hverju landi og í út-
l'lutningnum til ])ess.