Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1950, Blaðsíða 12
10*
Vcrzlunarskýrslur 1948
verzlunarskýrslnanna (bls. 32*—36*) er skrá, sem raðað er eflir toll-
skrárnúmerum, og tilgreint, undir hvaða verzlunarskýrslunúmer hvert
þeirra fellur. Má því nota skrá þessa sem lykil til þess að finna, hvar í
verzlunarskýrslunum ákveðið tollskrárnúmer er að finna.
Niðurskipun vörutegundanna í vöruskránni í verzlunarskýrslunum og
skipting þeirra i vöruflokka og stærri vörubálka hefur ekki verið miðuð
allsstaðar við eina og sömu reglu. Að mjög miklu leyti hefur verið farið
eftir því, úr hvaða efni varan er, en sumstaðar hefur þó notkun vör-
unnar ráðið skiptingunni, og stundum hefur líka komið til greina vinnslu-
stig vörunnar, eða hvort hún er óunnin, lítt unnin eða fullunnin. En
fyrir utan flokkunina í I. og II. töflu, sem algerlega fylgir niðurröðun
vöruskrárinnar, þá hefur einnig verið gerð önnur flokkun, sem algerlega
miðast við notkun varanna og vinnslustig þeirra. Hvernig vörurnar skipt-
ast samkv. þessari flokkun, sést á 2. vfirliti (bls. 9*), sem er gert sam-
kvæmt fyrirmynd Þjóðabandalagsins. Hvaða vörur úr vöruskránni i
töflu IV falla undir hvern af þessum flokkum, sést í 2. viðaukatöflu
aftan við innganginn, á bls. 37* hér á eftir.
Eftir notkun er vörunum skipt i 2. yfirliti í framleiðsluvörur, 7 flokka,
og nej'zluvörur, 3 flokka. 6 fyrstu flokkarnir eru hreyfifé, sem hverfur
alveg í hinar framleiddu vörur, en hinn 7. er fastafé eða allskonar tæki
atvinnuveganna, svo sem vélar, verkfæri og annar útbúnaður. 5. og 6.
flokkinn má að nokkru leyti telja til neyzluvara, og eru þeir þess vegna
aðgreindir frá þeim undanfarandi. Flokkunin i 2. yfirliti er að sumu
leyti nokkuð frábrugðin því, sem áður tíðlcaðist hér, einkum að þvi er
snertir greinarmun á neyzluvörum og framleiðsluvörum. Þannig eru korn-
vörur og alls konar álnavara laldar með efnivörum til framleiðslu, en
þær vörur var áður tiðkanlegast liér að telja með neyzluvörum.
I 2. yfirliti má sjá, hve mikið livcr þessara flokka hefur verið hærri
(eða lægri) að verðmagni árið 1948 heldur en 1947, með því að bera
saman heildartölurnar fyrir bæði árin (4. og 6. dálk). En af dálkinum,
sem er á milli þeirra (5. dálki), má sjá, hve mikið af þessari hækkun
(eða lækkun) stafar af verðbreytingu og live mikið af breytingu vöru-
magnsins. Þessi dálkur sýnir verðupphæð hvers flokks, ef vörumagn
hvers liðar, sem fellur undir hann 1948, er reiknað með verðinu frá ár-
inu á undan. Mismunurinn á þessum dálki og á samtöludálkinum fyrir
1948 stafar því eingöngu af verðbreytingu, en mismunurinn á honum
og saintöludálkinum fyrir 1947 stafar hins vegar frá breytingu vöru-
magnsins.
Eftirfarandi aðalyfirlit uin innflutninginn eftir notkun og vinnslustigi
er tekið upp úr 2. yfirliti, en mikið samandregið og með samanburði
við næstu ár á undan.
1941 1945 1946 1947 1948
A. Matvæli, drykkjarvörur og tóbak og 10°0kr- 1000 kr- 1000 kr- 1000 kr' 1000 kr-
efnivörur þar til (1 og 8) .. 39 701 42 325 47 205 54 248 59 829