Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1950, Page 20
18'
Verzlunarskýrslur 1948
o. s. frv.), sem ekki hafa fengið neina verulega aðvinnslu, en geta þó sumar
hverjar verið hæfar til neyzlu. Sama máli er að gegna um ýmsar lítt unn-
ar vörur, sem fengið hafa nokkra aðvinnslu, þó að þær, eins og hrávör-
urnar, séu einkum notaðar til framleiðslu. Samkvæmt yfirlitinu liafa
1948 um 60% innfluttu varanna (að verðmæti) verið fullunnar vörur,
um 30% litt unnar vörur og 10% hrávörur. Af hálfunnum vörum hefur
innflutningsmagnið aukizt mikið frá árinu á undan, en af hrávörum og
fullunnum vörum hefur það aftur á móti minnkað mjög mikið. Verð-
hækkun hefur verið mest á fullunnum vörum (14%), en minnst á hálf-
unnum vörum (4—5%).
3. Útfluttar vörutegundir.
Exported commodities.
í töfu IV B (bls. 64—68) er skýrt frá útflutningi á hverri einslakri
vörutegund frá landinu í heild sinni. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir
skyldleika þeirra á sama hátt sem innfluttu vörurnar, og eru yfirlit yfir
þá flokkaskiftingu i töflu I og II (bls. 1—3).
4. yfirlit sýnir, hve mikilli verðuppliæð útflutta varan hefur
numið árlega síðan um aldamót. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir
því, frá hvaða atvinnuvegi þær stafa. Ennfremur er sýnt með hlutfalls-
tölum, hve mikill hluti verðmagnsins stafar árlega frá hverjum atvinnu-
vegi. Fram að 1920 námu landbúnaðarvörurnar að meðaltali rúml. Ys af
útflutningsverðmagninu, en á árunum milli stríðanna rúml J/io. 1 siðasta
siríði lækkaði hlutdeild þeirra í útflutningnum enn mikið, og árið 1948
var hún 6 %.
Fiskiafurðirnar eru yfirgnæfandi í útflutningnum. Hafa þær
að verðmæti verið 364 millj. kr. 1948 eða 92% af öllum útflutningnum.
5. yfirlit (bls. 20*) sýnir, hve mikill sjálfur fiskútflutningurinn,
að undanskilinni síld, hefur verið árlega síðan um aldamót.
Fyrstu 5 árin eftir aldamótin var hann að meðaltali 15 þús. tonn á ári,
en óx stöðugt, unz liann komst upp í 100 þús. tonn árið 1932. Frá 1932
minnkaði svo fiskútflutningurinn og komst niður i 55 þús. tonn árið 1937.
Siðan hækkaði hann aftur, unz hann komst upp í 165 þús. tonn árið
1944. Árið 1945 var hann heldur lægri, og 1946 og 1947 miklu lægri
(108 og 113 þús. tonn). En 1948 komst hann aftur upp i 164 þús. tonn,
eða næstum því eins mikið og þegar hann var niestur áður (1944).
Þangað til skömmu fyrir siðustu heimsstyrjöld var saltfiskurinn
yfirgnæfandi í útflutningnum, en síðan hefur nýr fiskur (ísaður og
frystur) verið aðalútflutningsvaran. Náði sá útflutningur hámarki, 163
þús. tonnum árið 1944, en lækkaði svo allt niður í 87 þús. tonn árið
1947. En árið 1948 hækkaði hann aftur upp i 148 þús. tonn.