Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1950, Síða 26
24'
Verzlunarskýrslur 1948
löndum. Síðari hluti töflunnar sýnir, hvern þátt hvert land hefur tekið
hlutfallslega i verzluninni við ísland samkvæmt íslenzku verzlunarskýrsl-
unum.
Um 30% alls innflutnings árið 1948 kom frá Bretlandi og tæpl.
30% alls útflutningsins fór þangað. Innflutningur þaðan nam 137 millj.
kr.t en útflutningur þangað 116 millj. kr., svo að umframinnflutningur
varð 21 millj. kr. Er það miklu minni halli heldur en árið á undan
og stafar það eingöngu af lækkun innflutningsins, því að útflutningurinn
hefur hækkað nokkuð. Langhæsti liðurinn í útflutningi til Bretlands
1948 var ísfiskur, 47 millj. kr., síldarlýsi, 28 millj. kr„ og frystur
fiskur, 26 millj. kr. Helztu innflutningsvörur þaðan 1948 voru skip fyrir
35 millj. kr„ vélar og áhöld 20 millj. kr„ járn og aðrar málmvörur 18
millj. kr„ vefnaðarvörur og fatnaður fyrir 11 millj. kr. og kol og olíur
fyrir 9 millj. kr.
Frá Bandaríkjunum kom tæpl. Vs innflutnings árið 1948, en aðeins
tæpl. 7% af útflutningnum fór þangað. Varð innflutningsui)phæðin þaðan
rúml. 86 millj. kr„ en útflutningsupphæðin ekki nema 26 millj. kr„ svo
að umframinnflutningur varð 60 millj. kr. Er það miklu minni munur
en næsta ár á undan, og stafar það bæði af lækkun innflutnings þaðan
og af hækkun útflutningsins þangað. Helztu liðirnir í innflutningnum
frá Bandaríkjunum 1948 voru flutningstæki 22 millj. kr. (þar af skip
9% millj., bílar og bílahlutar 6 millj. og flugtæki 4 millj.), vélar og
áliöld 17 millj. kr. og korn og kornvörur 10 millj. kr. í útflutningn-
um kveður langmest að þorskalýsi, fyrir 12% millj. kr„ eða næstum
helming af öllum útflutningnum, þar næst er frystur fiskur fyrir 4 millj.
kr. og söltuð síld fyrir 2% millj. kr.
Þriðja viðskiptalandið í röðinni 1948 var Vestur-Þýzkaland. IJtflutn-
ingur þangað nam 70 millj. kr. eða rúml. % af öllum útflutningnum.
Var það aðallega ísfiskur (43% millj. kr.), síldarlýsi (21% millj. kr.)
og þorskalýsi (2% millj. kr.). En innflutningur frá Vestur-Þýzkalandi
var sáralítill, aðeins fyrir 1 millj. kr.
Helztu viðskiptalöndin 1948, auk þeirra þriggja, sem nefnd hafa
verið, voru Holland, Danmörk og Tékkóslóvakía. Viðskiptin við öll þessi
lönd jukust mikið 1948, einkum þó við Holland. Útflutningurinn til
Hollands var rúml. 34 millj. kr. eða tæpl. 9% af öllum útflutningi, þar
af frystur fiskur fyrir tæpl. 11 millj. kr„ síldarlýsi fyrir 10 millj.. síld-
armjöl fyrir 6 millj. og þorskalýsi fyrir 4 millj. Innflutningur þaðan
var rúml. 25 millj. kr„ þar af vefnaðarvörur og fatnaður 5 millj., kokos-
feiti 3% millj. og jarðepli 3 inillj. Frá Danmörku nam innfutningurinn
42 millj. kr. eða rúml. 9% af öllum innflutningi, en útflutningurinn
þangað var ekki nema 15% millj. Af innflutningnum voru skip 13%
inillj. kr„ smjör 7 millj. (nokkuð af því raunar flutt inn árið á undanl
og sement rúmar 5 millj. Af útflutningnum var síldarmjöl 5% millj.,
síldarlýsi tæpl. 3 millj. og söltuð síld rúml. 2 millj. Til Tékkóslóvakiu
var útflutningur um 30 millj. kr. eða 7%% af útflutningi alls. Var ]>að