Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Blaðsíða 10
Vikublað 18.–20. febrúar 201410 Fréttir virkir í athugasemdum n Fólkið á bak við skjáinn sem lætur ekkert fram hjá sér fara n Nauðsynlegt að geta tjáð sig um málefni líðandi stundar n Frægir láta ekki sitt eftir liggja Nafn: Sigurður Þórarinsson Aldur: 37 ára Starf: Coca-Cola, Vífilfell Búseta: Reykjavík Þ að kemur fyrir,“ svarar Sigurð- ur Þórarinsson, spurður hvort hann skrifi athugasemdir á vef DV. „Ég reyni þó að tala með munnin- um þar, en ekki rassgatinu eins og sumir. Það kemur stund- um misjafnt út hjá fólki.“ Sigurður segist ekki vera með- al þeirra sem skrifa athugasemdir í hugsanaleysi. „Mér sýnist sum- ir fara inn á vefinn til þess eins að skrifa óhróður, en ég fer mest til þess að lesa fréttir og skrifa athugasemdir þegar mér er ofboð- ið,“ útskýrir hann. Sigurður starfar hjá Coca-Cola og hefur gert það síðan í kennaraverkfallinu árið 1996. Hann hefur mikinn áhuga á tala um stjórnmál og hlustar á Harmageddon á morgnana. Auk þess gengur hann stundum á fjöll. „Ég reyni að vera málefnalegur, svolítið vinstri sinnaður og agnúast út í sjálfa Frammara [Framsóknar- menn] vegna þess að mér finnst þeir ömurlegir,“ segir Sigurður. „En ég reyni að gera það á þann hátt að þá langi til að fara til helvítis.“ Að mati Sigurðar eru þær um- ræður sem skapast í athugasemda- kerfinu oft og tíðum fyrir neðan allar hellur. Hann segist gera sér að leik að lesa fréttir og skoða ummælin sem fjöldi fólks skilur eftir sig. „Mér er oft ofboðið,“ segir Sigurður. „Ég hef stundum svarað fólki en ég er búinn að sjá að það er dálítið erfitt að æra óstöðugan. Það er ekki eitt- hvað sem maður ætti að gera. Ef einhver skrifar óhróður um mig þá svara ég honum af yfirvegun til baka og passa mig á því að vera málefna- legur. Mér finnst að það ætti að vera meira eftirlit með því hvað fólk er að skrifa þarna inn.“ Nafn: Jón M. Ívarsson Aldur: 65 ára Starf: Sagnfræðingur Búseta: Reykjavík M ér finnst margt í þessu þjóðfélagi vera á þann veg að það sé alveg tilefni til að segja sína skoðun á því. Sérstaklega því sem hefur far- ið úrskeiðis,“ segir Jón M. Ívars- son, sagnfræðingur og húsasmið- ur, í samtali við DV. Jón er virkur í umræðunni í athugasemda- kerfum og segir nauðsynlegt að hafa opin athugasemdakerfi til að fólk geti tjáð sig um hin ýmsu málefni. „Mér finnst það algjör- lega nauðsynlegt. Og ég er mjög ánægður með að þetta skuli vera opið til dæmis á Vísi og DV,“ segir Jón. „Ég er einn af þeim sem finna hjá sér þörf til þess að láta í sér heyra og þarna eru boðleiðirnar stuttar og vettvangurinn liggur mjög beint við. Maður þarf ekki að bíða langan tíma eftir því að fá grein birta í blaði eða eitthvað slíkt þó manni liggi eitthvað á hjarta, maður getur bara sagt það beint.“ En hvers vegna tekur Jón þátt í umræðunni? „Kannski er maður bara að gera þetta fyrir sjálfan sig; að fá útrás fyrir eitthvað sem heitir réttlætis- kennd. Sumir myndu kannski nota annað orð en þetta er það sem mér er efst í huga.“ Jón segist reyna að vera ávallt málefnalegur í skrifum sínum á netinu. „Ég geri mér far um að skrifa ekki þannig að það séu nein ókvæðisorð eða illyrði til manna og ég reyni að stefna að því að vera ekki í neinu hnútukasti við menn. Ég reyni að tala almennt en í eins- taka tilfellum þá getur maður ekki orða bundist um tiltekna menn eða málefni,“ segir hann og bætir við að umræðan mætti oft vera á hærra plani. „Sumt af þessu er algjör- lega ómálefnalegt og mætti vera miklu málefnalegra. En menn – og þeirra skoðanir – eru eins margir og misjafnir og raun ber vitni. Það er margt af þessu jákvætt og það er aldrei svo að maður geti ekki lært eitthvað eða fræðst eitthvað af sumu því sem sagt er, en annað mætti nú gjarnan missa sín.“ Aðspurður segist Jón ekki eyða miklum tíma í skrif á netinu. „Nei, ekki núorðið. Ég skanna yfirleitt daglega yfir fréttirnar og ef það er eitthvert málefni sem stendur mér nærri þá læt ég stundum í mér heyra. Ég er farinn að spara mér það að vera að gera athugsemdir um hvað eina; það er algjör óþarfi. Ég skanna út stærstu málin sem mér finnst einhverju máli skipta og tjái mig um þau.“ Nafn: Hjördís Vilhjálmsdóttir Aldur: 48 ára Starf: Húsmóðir Búseta: Reykjavík É g hef haft brennandi áhuga á stjórnmálum og þjóðfé- lagsmálum frá því ég man eftir mér, svona næstum því. Og ég trúi því að öll samfé- lög geti verið mjög góð, sé þeim vel stjórnað og af sanngirni, og að öllum eigi að geta liðið vel,“ segir Hjördís Vilhjálmsdóttir í samtali við DV. „Þess vegna er svo brýnt að fólk láti í sér heyra, þegar hlutir geta verið betri, sem eru jú mannanna verk. Stundum þarf lagabreytingar og stundum viðhorfsbreytingar til að bæta samfélagið og hvort tveggja þarf stöðugt aðhald og mikla vinnu, sem og að viðhalda öllu því góða sem þegar hefur náðst.“ Hjördís tjáir sig iðulega á athugasemdakerfum netmiðlanna og segir slíka umræðu geta breytt samfélaginu. „Tvímælalaust já, og dæmin um það eru óteljandi og fer fjölgandi. Að taka þátt í umræðu á netinu er eins og að vera boðin að um- ræðuborði þar sem allir sem vilja mega leggja orð í belg. Netheim- ar hafa einnig tekið við af fund- um á torgum úti. Að lesa fréttir án athugasemda er álíka dautt og ef það væru engir áhorfendur á tón- leikum eða í sönghæfileikaþáttum sem gæfu „spontant“ viðbrögð við því sem fram fer,“ segir hún. „Svo vona ég að ráðamenn okkar fari nú að viðurkenna það í auknum mæli að þeir lesa kommentin, enda væri líka annað ókurteisi við almenning í landinu að hunsa raddir kjósenda sinna. Og þau hafa líka áhrif á mig sjálfa, enda hefur það oft gerst að viðhorf mitt til mála hefur breyst við það að lesa ný og ólík sjónarmið frá fólki sem sér hlutina allt öðrum augum en ég geri.“ En hvað finnst Hjördísi um um- ræðuna sem fram fer á athugasemdakerf- unum? „Almennt er hún mjög góð og málefnaleg og hefur batnað mjög mikið. Enda held ég að flestir sem eru áhugasamir um að tjá sig í netheimum séu duglegir að slá á puttann á þeim sem mættu vera kurteisari. Það geri ég og mun halda því áfram, með- al annars vegna þess að það má ekki ger- ast að lokað verði fyrir kommentamöguleika og þagga þar með niður í rödd almennings.“ Hjördís segist tjá sig um allt mögulegt í netheimunum. „Málefni sem snerta hjarta mitt og tilfinningar. Ég er mjög einlæg og mikil tilfinningavera með sterka réttlætiskennd sem ekkert aumt og óréttlátt má sjá. Flest öll komment mín eru „spontant“ viðbrögð mín við því sem ég er að lesa og ég leyfi mínum hugsunum og pæling- um að flakka óritskoðuðum,“ segir hún. „Og afleiðingar hrunsins og hvernig reynt er að taka á þeim málum og ég harma það hversu léttvægt almennt er tekið á efna- hagsbrotum, sem eru í hópi þeirra allra alvarlegustu sem til eru að mínu mati. Þjóðfélagið okkar er enn í sárum og mun verða áfram einhver misseri til viðbótar að minnsta kosti, svo aðgerðir og að- gerðaleysi fyrir og eftir hrun eru gríðarlega alvarlegt og hefur ekki látið neitt okkar ósnortið. Ég bara óska þess að hér verði ekki ann- að hrun, eins og margir óttast og ýmis teikn eru á lofti um. Og að ekki brjótist út stríð í heiminum, en vaxandi ólga er í svo mörgum löndum af sömu ástæðum í raun; vaxandi ójöfnuður og græðgi, veld- ur mér þungum áhyggjum.“ Má ekkert óréttlátt sjá Framsóknarmenn eru ömurlegir Fær útrás fyrir réttlætiskennd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.