Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Blaðsíða 36
36 Fólk Vikublað 18.–20. febrúar 2014 Eignuðust stúlku Breska leikkonan Emily Blunt og eiginmaður hennar, The Office- leikarinn John Krasinski, eignuð- ust stúlku síðastliðinn sunnudag. Um var að ræða fyrsta barn þeirra hjóna og hlaut stúlkan nafnið Hazel. Þetta tilkynnti Krasinski á Twitter-síðu sinni á dögunum, en hann hefur verið iðinn við að segja aðdáendum sínum frá meðgöngunni og tilhlökkun sinni vegna föðurhlutverksins. „Emily og ég erum svo ótrú- lega hamingjusöm að taka á móti dóttur okkar Hazel í heiminn í dag,“ skrifaði hinn nýbakaði faðir á Twitter á sunnudagsmorgun- inn. Hjónin hófu ástarsamband árið 2008 og trúlofuðu sig tæpu ári síðar. Í júlí 2010 gengu þau svo í hjónaband og í desember síð- astliðnum sögðu þau frá hinum væntanlega erfingja. B andaríska söngkonan Jordin Sparks fékk heldur betur rómantískan glaðning á Val- entínusardaginn. Kærasti hennar, söngvarinn Jason Derulo, gaf henni nefnilega hvorki meira né minna en tíu þúsund rósir á degi ástarinnar. Rósirnar lét hann senda á hótelsvítu Sparks á Red- bury-hótelinu í Los Angeles og fylltu þær nánast herbergi söngkonunnar. „Þær eru svo fallegar. Guð minn góður,“ skrifaði Sparks á Twitter-síðu sína á föstudaginn en hún var himin- lifandi með uppátæki kærastans. Derulo var ekki síður ánægður með þessa rómantísku gjöf og skrifaði sjálfur um það á Twitter-síðu sína: „Ég vildi bara að ég hefði komið fyrir tíu þúsund í viðbót hérna inni.“ Eftir að hafa varið föstu- dagskvöldinu í víndrykkju og humarpítsuát ásamt kærastanum, umvafin bleikum rósum, gaf Sparks hluta rósanna til starfsfólks hótels- ins áður en hún tók nokkur rósabúnt með sér heim. Parið hefur verið saman í tvö ár og neitaði nýlega sögusögnum þess eðlis að þau væru búin að trúlofa sig. Þau sögðust ný- lega í viðtali vera yfir sig ástfangin en að brúðkaup væri þó ekki inni í myndinni á næstunni. n Tíu þúsund rósir á Valentínusardaginn Jason Derulo kom kærustunni á óvart Fullt af rósum Derulo fyllti hótelherbergið af bleikum rósum. Hamingjusöm Parið er yfir sig ástfangið og eyddi Valentínusardeginum saman í rólegheitunum. Klæðist bikiníi á sextugsafmæli Fyrirsætan Christie Brinkley fagn- ar sextugsafmælinu með því að klæðast bikiníi á forsíðu People- tímaritsins og í blaðinu er við- tal við hana um það hvernig hún viðheldur unglegu útliti sínu. „Mig hefði aldrei grunað að svona ætti ég eftir að fagna sex- tugsafmælinu, en bestu þakkir til ritstjórnar People-tímaritsins fyrir að senda þau skilaboð að með góðu mataræði, líkamsrækt og lífsgleði megi fagna hverjum afmælisdegi,“ skrifaði Christie á Instagram á sunnudag. Móðir Leos á næsta borði Leonardo DiCaprio bauð kær- ustu sinni Toni Garrn út á Val- entínusardaginn og ætlaði sér að eiga með henni rómantíska stund. Það fór forgörðum á kostulegan máta. Þau mættu á Bouley-veitingastað- inn í Tribeca en urðu fljótt fyr- ir ónæði eldra pars á nálægu borði. Kom í ljós að þar var á ferð móðir Leos, hin fjöruga Irmelin Indenbirken, með karlmann upp á arminn. Í fyrstu setti Leo pottaplöntu á borðið til að byrgja móður sinni sýn og gaf í skjóli plöntunnar Toni fallega eyrnalokka. Þegar þau höfðu gætt sér á ljúffengum veitingunum fjarlægðu þau pottaplöntuna, gerðu gott úr öllu saman og settust hjá Irmelin. Best og verst klædd á Bafta M óðir náttúra hvíldi ofsa- veðrið síðasta sunnudags- kvöld á Bafta-hátíðinni í London og lítið bar á slag- viðri á rauða dreglinum sem hefur plagað íbúa London síð- ustu vikur. Lupita Nyong'o mætti í fallegum Dior-kjól og bætti upp fjarveru Jenni- fer Lawrence sem er í algjöru uppá- haldi hjá Dior-tískuhúsinu. Helen glóði Helen Mirren glóði af hamingju þegar hún hlaut heiðursverðlaun á Bafta- hátíðinni á sunnudagskvöld. Hún bar af öðrum í fallegum svörtum tjullsíð- kjól úr smiðju Jacques Azagury, sem hannaði fjölda kjóla fyrir Díönu pr- insessu heitna. Verst klædd en skemmtilegust Lily Allen klæddist litríkum og belg- víðum kjól með slaufum og dúlleríi. Litagleðin minnti á páskana og hin káta Lily minnti helst á páskakanínu. Hún lét það ekki á sig fá enda mikil- vægara að hafa gaman á rauða dregl- inum með risastóra bleika slaufu í hárinu. Bæði í jakkafötum Angeline Jolie og eiginmaður henn- ar, Brad Pitt, klæddu sig í stíl. Bæði í Yves Saint Laurent-fatnaði. Nokk- uð sem er vandasamt en gekk fylli- lega upp. Hjónum sem líkar vel að fara í samstæða jogginggalla til allrar hamingju. Nú er greinilega rétti tím- inn til að spóka sig. Victoria og Dav- id Beckham hljóta að vera æf af öfund enda hafa þau hlotið harða útreið hjá pressunni fyrir svipað uppátæki. Hálsskraut og líkamsrækt Cate Blanchett klæddist kjól sem passaði henni illa. Konan sú er öllu meiri töffari og ofvaxin silfruð blóm- in á þessum annars prýðilega Alex- ander McQueen-kjól voru ekki til prýði auk þess sem hálsmenið virtist níðþungt. Fleiri báru þungt hálsskraut en Maggie Gyllenhal klæddist kjól úr smiðju Lanvins sem virtist vera að kæfa hana. Er það líkamsrækt að klæðast kjólum? Svo virðist vera en Lanvin hefur hlaðið kjólinn háls- skrauti sem virðist þungt og óklæði- legt. Beggja blands eins og Ziggy Stardust Ruth Wilson klæddist ógurlegri silfur- dragt frá Antonio Berardi. Hún var eins og Ziggy Stardust á dreglinum og fólk virtist bæði verða hrellt og fullt aðdáunar á klæðaburðinum. n n Lily þjófstartaði páskunum n Helen Mirren allra glæsilegust Lily Allen og pásk- arnir Lily er slétt sama en hún þótti heldur hallærisleg á rauða dreglinum. Brangelina í stíl Slógu í gegn í drögtum frá Yves Saint Laurent. Best klædd Helen Mirren bar af og skaut yngri kon- um ref fyrir rass. Lupita Nyong'o Í fjarveru Dior-drottn- ingarinnar Jennifer Lawrence stal hin ægifagra og hæfileikaríka Lupita senunni í þessum fallega kjól frá Dior. Ruth „aka“ Ziggy Stardust Silfruð dragtin hlaut misjafnar undirtektir. Maggie yfirbóhem Maggie Gyllenhal klæddist kjól úr smiðju Lanvins sem var ofhlaðinn skrauti. Cate Blanchett Stórrósóttur kjóll Alexanders klæðir Cate illa og hálsmenið virkar níðþungt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.