Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Blaðsíða 20
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéttASkot 512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AðAlnÚmeR RitStjóRn áSkRiFtARSími AUglýSingAR Sandkorn 20 Umræða Vikublað 18.–20. febrúar 2014 Tími Jóns Gnarr er liðinn Róaðu þig nú aðeins niður Það kom mér svolítið á óvart Græna höndin Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor undrast ummæli Sigmundar Davíðs. – DV.is Þ að er hefðbundið í íslenskum fjölmiðlum að strjúka hefðar- köttum valdsins og gæta þess vandlega að styggja þá ekki. Þetta kom glöggt og iðulega fram í samskiptum þegnanna við Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráð- herra, þar sem hver mélkisan af annarri strauk sér upp við hann og gætti þess að styggja hann ekki. Og þeir sem voguðu sér að fjalla um hann með skýrum og eðlilegum hætti þurftu að sæta aðför afla sem kennd voru við Bláu höndina. Mörgum er minnisstætt þegar Hallgrímur Helga- son rithöfundur var kallaður á teppi forsætisráðherra fyrir að vera óvarkár í orðum. Á frægum fundi í ráðuneytinu upplifði rithöfundurinn að með til- tali sínu hefði Davíð í hótunum. Ótt- aðist hann að stjórnvöld létu til skarar skríða gegn föður sínum, vegamála- stjóranum. Margir muna að í valda- tíð Davíðs var öll umræða á Íslandi í klakaböndum hatursfullra valda- manna sem einskis svifust til að koma fram vilja sínum. Þjóðin sat hníp- in undir ósköpunum og aðeins stöku maður þorði að segja hug sinn. Fjöl- miðill sem vogaði sér að segja frá hatri forsætisráðherrans á Baugi og eigend- um hans var úthrópaður af Davíð og hirð hans. Veiðileyfi var gefið á blaða- mann og stjórnendur miðilsins. Það var mörgum léttir þegar harð- lyndi forsætisráðherrann fékk það áfall í kosningum að hann hrökklaðist úr embætti sínu og varð utanríkisráð- herra. Þá hófst ákveðin þýða og fólk fann til þess að hörkunni hafði linnt. Nýi forsætisráðherrann, Halldór Ás- grímsson, var allt annarrar gerðar. Enginn hafði hann grunaðan um að beita þegnana andlegu ofbeldi. Sama var uppi með Geir Haarde sem kom í kjölfar hans. Og Jóhanna Sigurðar- dóttir var laus við ofbeldistakta enda er henni helst legið á hálsi fyrir að hafa látið bera Davíð Oddsson út úr Seðlabankanum. En nú kveður við nýjan tón. Sá vörpulegi forsætisráðherra, Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, hafði aðeins verið í örfáar vikur í embætti þegar hann sýndi tennurnar. Gagn- rýni fjölmiðla á hendur honum hétu „loftárásir“. Hann var gjörsamlega laus við að fjalla málefnalega um hlutina. Hann mætti helst ekki í við- töl nema þar sem hann taldi vini vera fyrir á fleti. Gagnrýnir fjölmiðl- ar áttu ekki upp á pallborðið. Þannig hefur hann margsinnis neitað að mæta á Beina línu DV eða svara blað- inu. Hann veit að þar er ekki að finna þæga þjóna valdsins. Sigmundur afhjúpaði sig á Við- skiptaþingi þar sem hann jós úr skál- um reiði sinnar. Eitt helsta reiðiefni hans er að margir úr hópi forystu- manna viðskiptalífsins hafa viljað ljúka viðræðum við ESB. Sjálfur elur hann á þjóðernishyggju og viðheld- ur ævagamalli landbúnaðarpólitík með boðum á bönnum á allt sem erlent er. En þótt ræða Sigmundar á Viðskiptaþingi hafi verið afhjúpandi tók steininn úr þegar hann mætti úf- inn og snakillur í sjónvarpsþáttinn Sunnudagsmorgun. Fyrirfram hafði hann að líkindum talið að Gísli Mart- einn Baldursson, þáttastjórnandi og sjálfstæðismaður til fjölmargra ára, yrði prúður, og spyrði helst ekki um annað en íslenska kúrinn. En Gísli Marteinn var trúr því hlutverki sínu að knýja fram svör. Og þá kastaði úlfurinn sauðargærunni. Endalausir útúrsnúningar komu í stað svara og áhorfendur sátu í forundran og hlust- uðu á forsætisráðherrann hafa allt á hornum sér og veitast að spyrlinum með persónulegum aðdróttunum. Svo talaði hann eins og unglingur: „Róaðu þig nú aðeins niður,“ sagði hann. Og allt var þetta í sama dúr. Hrokinn sveif yfir vötnum og svör- in voru dylgjur og útúrsnúningar. Það var öllu hugsandi fólki ljóst að þarna fór maður sem kann ekki að fara með vald sitt fremur en Davíð Oddsson á sínum tíma. Bláa höndin er fyrir löngu horfin upp til fjalla eins og Grýla gamla að loknum jólum en það glittir í nýtt fyrirbæri sem er álíka illyrmislegt. Græna höndin er mætt til leiks. n Þorsteinn Már glaður Fyrirtækið Creditinfo hefur undanfarin ár tekið upp á því að velja framúrskarandi fyrir- tæki. Efst á þeim lista yfir stór- fyrirtæki er Samherji sem þykir til fyrirmyndar. Víst er að þetta gleður Þorstein Má Baldvinsson forstjóra sem átt hefur í harðri glímu við Seðlabankann í tvö ár. Seðlabankinn heldur því fram að fyrirtækið sé alls ekki til fyrirmyndar hvað gjaldeyris- lög varðar. Ekkert hefur þó ver- ið sannað varðandi meint brot fyrirtækisins. Hulduher tapaði Sigur Ármanns Kr. Ólafssonar, leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, markar hin formlegu endalok á valda- tíma Gunnars Birgissonar, fyrr- verandi bæjar- stjóra. Hulduher Gunnars fylkti sér að baki Mar- grétar Friðriks- dóttur skólameistara sem vildi skáka Ármanni út með hjálp Gunnarsmanna. Það gekk ekki og lenti skólameistarinn í öðru sæti. Eftir nokkra umhugsun ákvað Margrét að taka sætið. Það mun svo koma á daginn hvort friður verði í bæjarstjórn- inni. Í blárri skikkju Fyrrverandi forstjóri Fjármála- eftirlitsins, Jónas Fr. Jónsson, er einn fárra sem þurftu að axla ábyrgð eft- ir bankahrunið en hann var lát- inn víkja í sömu andrá og Björgvin G. Sigurðsson við- skiptaráðherra. Jónas Fr. starfar nú ásamt föður sínum, Jóni Magnússyni, fyrrverandi þing- manni Frjálslynda flokksins, við lögmannsstörf. Feðgarnir voru báðir að flytja mál í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku. Þótti Jónas taka sig vel út í bláu skikkjunni. Már í ónáð Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son forsætisráðherra þrífst illa í mótlæti. Þetta kom skýrt fram á Viðskipta- þingi þar sem hann skamm- aðist yfir því að Seðlabankinn undir stjórn Más Guðmundssonar hefði lagt í þá vinnu að reikna áhrif frægrar skuldaleiðréttingar á þjóðarbú- ið. Niðurstaðan var ráðherra ekki þóknanleg þar sem hún fól í sér að leiðréttingarnar ýttu undir þenslu. Það hefur legið í loftinu að stjórnarflokkarnir reyni að losa sig við Má. Helst er talið að það gerist með sameiningu Fjár- málaeftirlitsins og Seðlabankans. Reynir Traustason rt@dv.is Leiðari MynD SKJÁSKoT aF veF RÚv„Róaðu þig nú aðeins niður Þórlaug Ágústsdóttir stefnir á að komast til áhrifa í borginni. – DV Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. – Sunnudagsmorgunn RÚV Um ójafnaðarmenn Ó jafnaðarmaður er alþekkt hugtak úr fornsögunum. Ójafnaðarmenn fóru um með yfirgangi, tóku eign- ir annarra og létu þá jafn- vel kaupa sínar eigin eignir til baka. Ef við tökum mark á Íslendinga- sögunum var ójöfnuður til marks um ranglæti – með öðrum orðum þótti ójöfnuður þeirra vera ástæða til aðgerða og jafnvel vígaferla. Ójafnaðar menn ógnuðu friði heima í héraði og framþróun í sam- félaginu. Ógn við friðinn Þetta eru gömul sannindi og ný. Vaxandi ójöfnuður í heiminum er eitt stærsta áhyggjuefni þeirra sem fylgjast með þróun mála á alþjóða- vísu. Ný skýrsla Sameinuðu þjóð- anna staðfestir þannig óheilla þróun undanfarinna ára; ójöfnuður hefur aukist jafnt og þétt. 40% af verðmæt- um heimsins eru nú í eigu þess eins prósents sem er ríkast í heiminum. 50% fátækasta fólksins eiga innan við eitt prósent verðmætanna. Börn í fátækustu heimshlutunum eru þrefalt líklegri til að deyja áður en fimm ára aldri er náð borið saman við börn í ríkustu hlutum heimsins. Samkvæmt sömu skýrslu er fá- tæktin ekki aðeins vandamál í sjálfu sér heldur er ójöfnuðurinn milli ríkra og fátækra ógn við frið- inn, hann hindrar efnahagslegar framfarir, veikir lýðræðislegt samfé- lag og ógnar félagslegri samheldni. Þess vegna ætti það að vera kapps- mál okkar að auka jöfnuð í heimin- um. Skökk forgangsröðun Þó að núverandi ríkisstjórn hér á Íslandi þykist vera sérstakt áhuga- mannafélag um þjóðmenningu virð- ast hugmyndasmiðir hennar ekki hafa kynnt sér inntak Íslendinga- sagnanna þegar kemur að ójöfn- uði. Þannig var ójöfnuður á heims- vísu svo sannarlega ekki efst í huga ríkis stjórnarinnar þegar kom að fjár- lögum ársins í ár. Framlög til Þró- unarsamvinnustofnunar stóðu ekki aðeins í stað þvert á samþykkta til- lögu Alþingis um hvernig haga ætti framlögum til þróunarsamvinnu á næstu árum – þau voru beinlínis skorin sérstaklega niður milli um- ræðna. Við Íslendingar erum þrátt fyrir kreppu undanfarinna ára í hópi 15–20 ríkustu þjóða í heimi en þær þjóðir sem við höfum stutt við eru Malaví, Mósambík og Úganda, ríki sem raðast í sæti 160–180 á heims- listann yfir auðlegð þjóðanna. Því miður var þetta áþreifanlega dæmi aðeins eitt af mörgum um skakka forgangsröðun ríkisstjórn- arinnar sem reyndist öll af sama meiði. Fyrsta mál ríkisstjórnarinn- ar var að lækka sérstaka veiðigjaldið til að tryggja hag stórútgerðarinnar. Og í kjölfarið hafa stjórnarliðar sagt að því miður séu ekki til peningar fyrir þróunarsamvinnu og fleiru en þeir voru til þegar þurfti að gæta að þessum sérhagsmunum. Og ekki mátti hafa eðlilegan virðisaukaskatt á ferðaþjónustu sem hefði lagst á þá ferðamenn sem sækja okkur heim. Í stuttu máli mátti ekki afla tekna til að efla jöfnuð hvort sem er á heims- vísu eða hér heima. við þekkjum söguna Núna berast svo fregnir af næstu verk- um ríkisstjórnarinnar; það er að ríkis- stjórnin hafi áhuga á auknum einka- rekstri, til að mynda þegar kemur að samgöngumannvirkjum; höfnum, flugvöllum, vegum og fleiru. Við þekkjum þá sögu; sögu ríkisstofnana á borð við Símann en andvirði hans átti að nota til að byggja nýjan spítala, hús íslenskra fræða, byggja Sunda- braut og ýmislegt fleira sem ekki var gert. Minnir þetta ekki nokkuð á eign- irnar sem ójafnaðarmenn fyrri tíma tóku og seldu svo eigandanum aftur? Er kominn tími til að rifja upp Ís- lendingasögurnar fyrir ríkisstjórn- ina? n Katrín Jakobsdóttir formaður VG Aðsent „Þess vegna ætti það að vera kappsmál okkar að auka jöfnuð í heiminum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.