Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Qupperneq 12
Vikublað 18.–20. febrúar 201412 Fréttir Auðmenn Hafnarfjarðar n Seldi kvóta sinn á Flateyri og hagnaðist n Súkkulaðifyrirtæki uppspretta auðs Svisslendings Hinrik Kristjánsson útgerðar­ maður er talinn ríkastur Hafn­ firðinga og eru eignir hans tæp­ lega einn og hálfur milljarður samkvæmt skatta­og útsvars­ skrá árið 2012. DV birtir í dag upp­ lýsingar um ríkustu einstaklinga Hafnarfjarðar. Séu makar sem eru samskattaðir taldir saman eru um tuttugu heimili í Hafnar­ firði sem eiga meira en 160 millj­ ónir í hreina eign. Útgerðarmenn eru sem fyrr fyrirferðarmiklir á listanum en þó má finna nokkra fjölbreytni. Auður Valerie Helene Maier nemur rúmum sjö hundruð milljónum og má rekja þann auð til súkkulaðifyrirtækis fjölskyldu hennar í Sviss. hjalmar@dv.is og rognvaldur@dv.is 1 3 2 4 5 10 6 7 8 Auðmenn létust í desember G eorg Þór Steindórsson var auðugastur Hafnfirðinga árið 2011. Hann lést í des- ember síðastliðnum, 41 árs gamall. Eignir hans voru um tvö þúsund og þrjú hundruð millj- ónir króna. DV ræddi við hann áður en hann lést. Þar sagðist hann hafa fjárfest í hinu og þessu, á gráa svæðinu, eins og hann orðaði það. Hann hefði fjárfest í námufyrirtækjum í útlöndum. Georg var framkvæmdastjóri fyrir tækisins Málaferli ehf. en einnig Útrásarvíkings ehf. Í sam- tali við DV sagðist Georg upphaf- lega hafa hagnast á því að mála en hann sagði auðæfi sín ekki hafa haft áhrif á líf sitt. Elísabet Reykdal var sjötti rík- asti Hafnfirðingurinn árið 2011. Hún lést líkt og Georg í desember. Eignir hennar voru tæplega fimm hundruð milljónir króna. Hún var dóttir frumkvöðulsins Jóhann- esar Reykdal sem setti á lagg- irnar verksmiðju við Lækinn í Hafnarfirði. Hann tók virkan þátt í rafvæðingu Íslands og virkjaði Lækinn. Það var fyrsta almenn- ingsrafveitan á Íslandi. Jóhannes átti bú á Setbergi og má ætla að Elísabet hafi erft það land. Ríkasti Hafnfirðingurinn fallinn frá 7 Gunnar Hjaltalín 67 ára Eignir: 411 milljónir kr. n Gunnar er löggiltur endurskoðandi og á Endurskoðun Gunnars Hjaltalín ehf. í Hafnarfirði. Auk endurskoðunarstofunn- ar hefur Gunnar verið um- svifamikill í íslensku viðskiptalífi og átt hlut í ýmsum fyrirtækjum. Maki Gunnars er Helga R. Stefánsdóttir. 4 Viðar Sæmundsson 67 ára Eignir: 518 milljónir kr. n „Ég hef verið í góðu starfi í gegnum árin, sem skip- stjóri á ýmsum skipum,“ sagði Viðar Sæmundsson við DV, en hann er eigandi útgerðarfyrirtækisins Sæli ehf. Fyrirtækið gerir út fiskveiði- bátinn Ársæll Sigurðsson HF-80 í Hafnar- firði. Auk þess á Viðar hrossaræktarbúið Skeiðvelli á Suðurlandi ásamt bróður sínum. „Hrossin veita nú fyrst og fremst ánægju. Það er gaman að vera í því sem manni finnst gaman, en þeir eru nú ekki margir sem verða ríkir á hestamennsku. Happ, glapp og heppni gildir þar.“ 5 Guðbjörg Edda Eggertsdóttir 62 ára Eignir: 523 milljónir kr. n Guðbjörg Edda er forstjóri Actavis en hún hefur starfað hjá fyrirtækinu og forvera þess í 30 ár. Hún situr í stjórnum fjölmargra fyrirtækja á Ís- landi og var forseti Samtaka evrópskra samheitalyfja fyrirtækja, European Generic Medicines Association (EGA), á árun- um 2011–2013. Þá hlaut hún fálkaorðuna árið 2012 fyrir framlag sitt til uppbyggingar atvinnulífs á heilbrigðis- sviði. Hún er menntuð í lyfjafræði. Eiginmaður hennar er Eyjólfur Haraldsson læknir. 3 Marinella R. Haraldsdóttir 80 ára Eignir: 537 milljónir kr. n Marinella er ekkja Jóns Guðmunds- sonar, forstjóra útgerðarfyrirtæk- isins Sjólaskipa. Árið 2007 keypti Samherji alla erlenda starfsemi fyrirtækisins og tengdra félaga, en Sjólaskip gerði út fiskiskip við Mári taníu og Marokkó. Kaupverð var ekki gefið upp en ljóst er að öll fjölskylda Jóns, að með- talinni Marinellu, hagnaðist mjög vel á sölunni. 6 Frímann Elvar Guðjónsson 53 ára Eignir: 431 milljón kr. n Frímann Elvar er framkvæmdastjóri fyrirtækis sem nefnist Point Transaction Systems á Íslandi ehf. Það sérhæfir sig í sölu á vélbúnaði (posum) til Valitor og Borgunar hf. ásamt útleigu á GSM-pos- um og framleiðslu á hugbúnaði tengdum rafræn- um viðskiptum. Maki Frímanns Elvars er Guðrún Lilja Rúnarsdóttir. 10 Guðrún Lárusdóttir 80 ára og Ágúst Sigurðsson 82 ára Eignir: 390 milljónir kr. n Guðrún og maður hennar Ágúst Sigurðsson stofnuðu útgerðina Stálskip í Hafnarfirði fyrir rúmum fjörtíu árum. Útgerðin gerði út einn togara, Þór HF-4 og var fyr- irtækið afskaplega arðbært. Þór var fyrr á þessu ári seldur til Rússlands en ekki liggur ljóst fyrir hvar kvótinn endar. 2 Valerie Helene Maier 44 ára Eignir: 722 milljónir kr. n Valerie er doktor í lífefna- fræði og lektor við Háskóla Íslands. Hún er svissnesk og er fjölskylda hennar vellauðug. Samkvæmt því sem DV kemst næst má rekja auð fjölskyldunnar til súkkulaði- fyrirtækis. Hún er gift Sveini Kára sem er doktor í líffræði með áherslu á fiskifræði. Í dag starfar hann sem verkefnastjóri hjá Landsvirkjun. Á árunum 2005 til 2006 var hann formaður Samtaka náttúrustofu. 8 Haukur Bachmann 73 ára Eignir: 404 milljónir kr. n Haukur á ásamt eiginkonu sinni Kristínu Einarsdóttur heildverslunina I. Guðmundsson ehf. Hann er auk þess fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins sem hefur umboð fyrir ýmsar þekktar útivistarvörur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.