Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Side 18
18 Skrýtið Vikublað 18.–20. febrúar 2014
Þeir voru máðir af
spjöldum sögunnar
Í
desember bárust fregnir frá Norð-
ur-Kóreu þess efnis að Jang Song-
thaek, náinn ráðgjafi og frændi
þjóðarleiðtogans Kim Jong-un,
hefði verið tekinn af lífi fyrir óljós-
ar sakir. Hann var af ríkisfjölmiðlum
kallaður „sundurlynt úrþvætti“ og
fleiri illum nöfnum. Kim sagði að
ákvörðunin hefði styrkt flokkinn og
aukið samstöðu hundraðfalt.
Harðstjórinn lét ekki þar við sitja
heldur lét hann einnig myrða alla
nána fjölskyldumeðlimi frændans,
til öryggis líklega. Undanfarið hef-
ur ríkisstöðin KCNA og kommún-
istablaðið Rodong Sinmun unnið
að því hörðum höndum að afmá
frændann af öllu myndefni. Hann
má, samkvæmt Guardian, að skip-
un Kim Jong-un hvergi vera nefndur
og hvergi sjást á mynd. Það eru fyrir-
mæli sem enginn vill verða uppvís
að því að taka ekki alvarlega. Um er
að ræða umfangsmestu hreinsun af
þessum toga sem ráðist hefur verið í
í Norður-Kóreu.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem
þekktir harðstjórar ráðast í hreinsan-
ir af þessu tagi, það er, að afmá „svik-
ara“ af gömlu myndefni. Hér fyrir
neðan eru taldin upp önnur dæmi
um sams konar aðgerðir. Benda má
á að þó auðvelt sé að breyta mynd-
um og afmá fólk í nútíma forritum á
borð við Photoshop, var þarna um að
ræða gríðarlega vinnu við afar frum-
stæðar aðstæður – í það minnsta
samanborið við ljósmyndatækni og
myndvinnslu eins og hún fer fram í
dag. n
n Sex dæmi um að menn hafi beinlínis verið afmáðir n Féllu í ónáð valdhafa
Þurrkaður út Bo Gu, lengst til vinstri á fyrri myndinni, ásamt Mao og félögum. Ágætis
„Photoshop“-vinna.
Tímar breytast Trotsky
má á vinstri myndinni sjá
við ræðupúlt Leníns. Hann
var seinna afmáður.
Með Stalín Nikolai Yezhov við hlið Stalíns. Sá stutti var látinn hverfa eftir að hann skipti um lið.
Foringinn Göbbels sést hægra megin á fyrri myndinni. Á þeirri seinni má aðeins sjá runna.
Einum færri Hér má sjá stofnmeðlimi Sochi Six. Þeim fækkaði um einn eftir að Nelyubov
drakk sig í hel.