Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Page 22
22 Umræða Vikublað 18.–20. febrúar 2014
Opinberandi morgun
V
ar Gísli Marteinn Baldursson
með eitthvert pólitískt
„agenda“ þegar hann þjarm
aði að Sigmundi Davíð Gunn
laugssyni í þætti sínum á sunnudags
morgun? Væntanlega munum við
aldrei vita það en ekki er óeðlilegt að
spyrja þeirrar spurningar í ljósi bak
grunns hans úr Sjálfstæðisflokknum.
Nú er hafin pólitísk barátta um túlk
anir á viðtalinu.
Þó sjálfsagt flestum, meðal annars
mér, hafi þótt Gísli Marteinn vera að
gangshraður, málefnalegur og sann
gjarn í viðtalinu þá vakna vissulega
upp spurningar þegar það er borið
saman við rabb hans við Bjarna
Benediktsson í vikunni áður. Af
hverju tók hann Bjarna svo sljóum
tökum en Sigmund svo stífum? Gísli
Marteinn er ekki þekktur fyrir að vera
harður heldur ljúfur.
Viðtalið kemur sér ekki illa fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og Bjarna Bene
diktsson enda var ein af spurn
ingunum sem borin var upp í kjöl
far viðtalsins: Hvenær fer Bjarni í
Stjórnar ráðið? Sjálfstæðisflokkurinn
græðir á því að Framsóknarflokk
urinn og Sigmundur Davíð líti illa út
þó þeir vinni nú með þeim í ríkis
stjórn — fylgi Framsóknar gæti flust
til sjalla. Sumir sjá fyrir sér pólitískt
skipulagðan leik þar sem sjálfstæðis
maðurinn Gísli Marteinn er notaður
til að opinbera vanhæfni Sigmundar
Davíðs. Um þetta vitum við hins
vegar ekki neitt og eru slíkar kenn
ingar því aðeins getgátur.
Hitt er þó víst að viðtalið kemur
sér sannarlega vel fyrir Sjálfstæðis
flokkinn þó þingflokksformaður
hans, Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
hafi gagnrýnt það á mánudaginn.
„Mér fannst þetta ömurlegt viðtal.“
Svolítið erfitt er fyrir stjórnarliða að
segja nokkuð annað opinberlega –
svo er spurning hvað þeir segja sín á
milli – þar sem þeir eiga jú í samvinnu
við Sigmund Davíð og flokk hans. Sig
mundur Davíð fer orðið í taugarnar á
ansi stórum hluta þjóðarinnar, ekki
síst sjálfstæðismönnum.
Einhver baksaga er að viðtalinu
sem er ósögð. Gísli Marteinn ætlaði
sér sannarlega að ganga á forsætis
ráðherra – eins og góðum spyrli sæm
ir reyndar – og lagði hann línurnar
fyrir viðtalið í þættinum í vikunni á
undan þar sem hann kynnti forsætis
ráðherra til leiks. „Og hér í næstu
viku, Sigmundur Davíð og Gunnar
Nelson bardagamaður, sem lemur
Sigmund ef hann svarar ekki öllum
spurningunum mínum …“
Viðtalið opinberaði ekki bara hálf
ringlaðan forsætisráðherra heldur
sýnir líka hversu vandasamt það get
ur verið að skipta úr flokkapólitík í
fjölmiðlun um stjórnmál – hlutleysi
viðkomandi og heilindi eru alltaf
dregin í efa þó þeir standi sig vel sem
blaðamenn. n
Alltaf misskilinn Umsjón: Henry Þór Baldursson
É
g er einn þeirra sem hafa
treyst stjórnvöldum, dóm
stólum og þeim sem fara
með almannavald. Hef jafn
vel tekið upp hanskann fyrir
slíka aðila þegar að þeim er vegið í
umræðunni. En ég hef líka tekið á
málum stofnana og fyrirtækja með
málefnalegum hætti og finn að sú
umræða hefur breytt hlutum til
hins betra. Þá er umræðan til góðs.
Dómstólar landsins hafa oft
vakið athygli mína og í seinni tíð
á þann hátt að traust mitt á þeim
hefur minnkað. Þá má spyrja hvort
lögin séu nógu skýr eða hvort
það sé ósanngjarnt að við gerum
þá kröfu til dómstólanna að þeir
dæmi þá aðila sem almennt virðast
hafa gert sig seka um að brjóta lög
en sleppa samt við refsingu. Núna
síðast eru það einir helstu aðal
leikararnir í þjóðargjaldþrotinu
sem voru dæmdir í héraðsdómi
en sýknaðir í Hæstarétti. Þjóðin er
gáttuð og niðurlút eftir niðurstöðu
Hæstaréttar. Tveir aðilar sem eiga
ekki minnstan þáttinn í því að tug
þúsundir heimila og fjölskyldna
misstu heimili sín og aleigu. For
eldrar gáfust upp, heimili leystust
upp. Og nú virðist uppgjöfin hafa
náð inn til dómstólanna. Hafa þeir
ekki þrek eða lögfræðilegan grunn
til að taka á stóru málunum í þjóð
félaginu?
Hinir stóru sleppa
Bankamálin eru ekkert einsdæmi.
Nefna má olíumálið margfræga,
Bónusmálið og fleiri ámóta. Svo
virðist sem hinir stóru sleppi oft
ast undan réttvísinni. Einstak
lingarnir og smáu fyrirtækin hafa
hvert af öðru miss allt sitt. Allt er
horfið, fjölskyldan, húsið, bíll
inn, en skuldirnar hverfa ekki. Þær
margfölduðust. En þeir stóru eru
of feitur biti, hafa of marga lög
fræðinga sem dómstólarnir ráða
ekki við og þeir halda því áfram
að sleppa. Ég held að þjóðin vilji
frekar hætta þessum peningaaustri
í rannsóknir og dóma sem ekkert
gagn er í og gleyma þessum hörm
ungum. Það er betra en heyra dag
legar fréttir að málum sem síðan
aldrei verða kláruð á meðan fólkið
svitnar við dagleg störf til að greiða
af margstökkbreyttum lánum.
Furðu lostið fólk
Athygli vekur að Hæstiréttur tók
undir að öll brotin væru framin
en það dugði ekki til sakfellingar.
Er furða þó fólkið á kaffistofunum,
í lúkarnum á vinnustöðum og
sveitunum nái ekki upp í nef sér
vegna bræði. Ég hitti þetta fólk
reglulega á ferðum mínum um
kjördæmið og á vinnustaði enda
geri ég mér far um að vera í góðum
tengslum við fólkið í samfélaginu.
Ég skil það vel, að vera furðu lostið
yfir niðurstöðu dómsins.
Ég velti fyrir mér hvort við höf
um ekki nógu sterkan lagagrund
völl til að ná utan um þessa að
ila eða hvort við erum bara eins
og í öðrum stórum dómsmálum.
Gagnslaus og höldum áfram að
hengja þjóðina fyrir bankastjór
ana. Það er eitthvað mikið að. n
Að hengja þjóð fyrir bankastjóra
„Svo virðist sem
hinir stóru sleppi
oftast undan réttvísinni.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Kjallari
Ásmundur Friðriksson
alþingismaður
Kjallari
Mynd Karl Petersson
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
„Hvernig ætli
hann brygðist
við ef að símtali
hans og Geirs um lán í
aðdraganda hruns væri
lekið. Hefði haldið að
væri mikilvægara fyrir
almenning að vita það.“
„Fannst SDG
vera einstaklega
dónalegur í
þessum þætti. Yfirlætið var
honum ekki til sóma. Hann
byrjaði á þessari ókurteisi
gagnvart Árna Páli í kringum
kosningarnar og virðist vera
færa sig í þetta gagnvart
fjölmiðlamönnum. Virkileg
ókurteisi.“
„Þar er ástæða
til að hafa miklar
áhyggjur af
þessum manni, þjóðarinnar
vegna. Hann er greinilega
að missa tökin á öllu og sú
tilhugsun er orðin óbærileg
að hann verði við völd næstu
árin.“
„Karlremba
eða ekki, mér
er slétt sama,
þetta er bara gróf aðför að
einstaklingi og viðbjóðsleg
framkoma í hennar garð,
hvort sem hún væri strákur
eða stelpa.“
28
17
21
14
Athugasemd sigurðar erlings-
sonar um lekamálið svokall-
aða. Davíð Oddsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, blandaði sér í umræðuna
og sagði það ekki óeðlilegt að leka
persónuupplýsingum um hælisleitendur.
Athugasemd Hafsteins
B. Árnasonar við frétt um
þáttinn Sunnudagsmorgun
þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son forsætisráðherra var gestur Gísla
Marteins Baldurssonar.
Finnur Bárðarson í
athugasemd um þátt Gísla
Marteins þar sem Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra
var gestur.
Athugasemd Ívars Markús-
sonar í frétt um umtalaða
Morfís-keppni þar sem dregin
var upp mynd af fáklæddri stúlku.
sögulegt viðtal Viðtalið á
sunnudaginn var sögulegt og
þess verður minnst í annálum
þessa árs. Mynd sKjÁsKot aF VeF rÚV