Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Qupperneq 30
Vikublað 18.–20. febrúar 201430 Sport Viðsnúningur Liverpool n Breytingin á Liverpool-liðinu síðan í fyrra n Fleiri stungusendingar, tæklingar og eitraðar skyndisóknir L iverpool þarf aðeins átta stig í síðustu tólf leikj- um tímabilsins til að jafna þann stigafjölda sem liðið fékk á síðstu leiktíð. Þá þarf liðið aðeins að skora fimm mörk til viðbótar til að jafna marka- fjöldann frá síðustu leiktíð. Óhætt er að segja að Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, hafi unnið stuðningsmenn félagsins á sitt band á þessari leiktíð. Liðið er nú í 4. sæti deildarinnar með 53 stig – fjórum stigum frá topp- sætinu – og á enn fína möguleika á Englandsmeistara titlinum. Fleiri stungusendingar DV tók saman ýmsar tölfræði- upplýsingar frá tímabilinu í fyrra og bar þær saman við yfirstand- andi leiktíð. Liverpool lenti í 7. sæti deildarinnar í fyrra, heilum 28 stigum á eftir Englandsmeisturum Manchester United. Notast var við upplýsingar af vefnum WhoScored.com þar sem má finna ýmsar athyglisverðar tölfræðiupplýsingar úr helstu deildum Evrópu. Meðal þess sem kemur í ljós við yfirferðina er að leikmenn Liverpool fara í fleiri tæklingar í ár en í fyrra, vinna fleiri skallaeinvígi, brjóta oftar af sér, eiga færri skot að marki en fleiri skot sem hitta rammann. Þá reynir liðið færri fyrirgjafir en þeim mun fleiri stungusendingar inn fyrir varnir andstæðinganna. Liverpool skoraði aðeins eitt mark upp úr skyndisókn allt tímabilið í fyrra, en það sem af er þessu tímabili hefur liðið skorað sex mörk úr skyndi- sóknum. Þá skorar Liverpool mun meira úr föstum leikatriðum en í fyrra, þegar liðið skoraði 11 mörk. Það sem af er þessu tímabili hef- ur liðið skorað 17 mörk úr föstum leikatriðum, svo sem eftir horn- spyrnur og aukaspyrnur þar sem Luis Suarez hefur verið í broddi fylkingar. Fleiri mörk og meira sjálfstraust Stærsta breytingin er sú að Liver- pool-liðið skorar mun fleiri mörk en í fyrra. Það sem af er þessari leiktíð hefur liðið skorað 66 mörk í 26 leikjum, eða 2,53 mörk að meðal tali í leik. Í fyrra skor- aði liðið 1,87 mörk að meðaltali. Daniel Sturridge á stóran þátt í þeirri fjölgun, en hann og Philippe Coutinho bættust í hópinn í janú- ar í fyrra. Síðan þá hefur Sturridge skorað 26 deildarmörk í 32 leikj- um. Þá hefur Luis Suarez verið óstöðvandi í sóknarleik Liverpool í vetur og skorað 23 mörk í 21 leik. Hann þurfti 33 deildarleiki í fyrra til að skora jafnmörg mörk. Aðrir leikmenn hafa einnig stigið upp í vetur og öðlast meira sjálfstraust. Raheem Sterling hefur átt fína leiki fyrir Liverpool í vetur og þá hefur Jordan Henderson vaxið mikið og verið öflugur inni á miðjunni hjá Liverpool-liðinu. Ekki eru sjáanleg Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Liverpool í fyrra og í ár 2012/2013 2013/2014 Með bolta (meðaltalstölur) 57,2% 54,4% Heppnaðar sendingar 84,2% 83,9% Unnin skallaeinvígi 12,7 15,4 Skot fengin á sig 11,4 13,1 Tæklingar í leik 20,9 21,9 Sendingar stöðvaðar 13,8 12,3 Brot í leik 10,6 11,7 Skot að marki í leik 19,4 17 Skot á rammann í leik 6,1 6,8 Mörk í leik 1,87 2,53 Mörk fengin á sig í leik 1,13 1,23 Sendingar Fyrirgjafir 21 18 Stungusendingar 3 6 Langar sendingar (lengri en 25 metrar) 61 56 Stuttar sendingar 475 453 Hvaða koma mörkin? Opnu spili 50 35 Skyndisóknum 1 6 Föstum leikatriðum 11 17 Vítaspyrnum 5 3 Sjálfsmörk andstæðings 4 3 Hvaðan er sótt? Upp vinstri vænginn 35% 32% Upp miðjuna 28% 29% Upp hægri vænginn 37% 39% Hvaðan koma skotin? Í markteig 5% 7% Í vítateig 52% 51% Fyrir utan teig 43% 42% Hvar fer leikurinn fram? Á eigin vallarhelmingi 27% 29% Á miðjum vellinum 44% 44% Á vallarhelmingi andstæðings 30% 27% „Liverpool skoraði aðeins eitt mark upp úr skyndisókn allt tímabilið í fyrra, en það sem af er þessu tímabili hefur liðið skorað sex... Luis Suarez Aldur: 27 Leikir í deild/mörk: 21/23 Stoðsendingar: 8 Skot í leik: 5,5 Daniel Sturridge Aldur: 24 Leikir í deild/mörk: 18/16 Stoðsendingar: 4 Skot í leik: 3,5 Khedira til Chelsea? José Mourinho er sagður áhugasamur um að endurnýja kynnin við þýska landsliðs- manninn Sami Khedira hjá Real Madrid. Khedira og Mourinho unnu sem kunnugt er saman þegar Mourinho stýrði Real Madrid og er Mourinho sagður vilja fá Khedira til Chelsea. Það sem kann að setja strik í reikn- inginn eru meiðsli sem Khedira glímir við en hann sleit kross- bönd í hné fyrir áramót. Talið er að Chelsea þyrfti að greiða 21 milljón punda, eða fjóra millj- arða króna, fyrir Þjóðverjann. Inter vill fá Ben Arfa Forráðamenn ítalska stórliðsins Inter eru sagðir leiða kapp- hlaupið um franska landsliðs- manninn Hatem Ben Arfa hjá Newcastle. Frakkinn, sem er 26 ára, hefur ekki náð sér á strik á þessari leiktíð og er Newcastle sagt tilbúið til að hlusta á til- boð í leikmanninn. Newcastle Chronicle greinir frá því að Alan Pardew, stjóri Newcastle, muni taka til í herbúðum félagsins í sumar og Hatem Ben Arfa verði í hópi nokkurra leikmanna sem munu yfirgefa félagið. Talið er að félagið vilji fá sjö milljón- ir punda fyrir leikmanninn, um 1,3 milljarða króna. Ekki er talið útilokað að Inter geri tilboð strax í byrjun sumars. Fernandinho klár í slaginn Brasilíumaðurinn Fernandinho verður væntanlega í leikmanna- hópi Manchester City sem mæt- ir Barcelona í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistara- deildar Evrópu í kvöld, þriðju- dag. Fernandinho hefur verið fjarri góðu gamni undanfarnar vikur og virðist City-liðið hafa saknað þessa mikla baráttujaxls. Sergio Aguero er enn meiddur og hann missir af fyrri leiknum en ætti að vera klár í síðari leik- inn. Aguero hefur skorað 26 mörk í 25 leikjum á yfirstand- andi tímabili.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.