Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2014, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2014, Qupperneq 11
Vikublað 4.–6. mars 2014 Fréttir 11 Barn tekið frá flóttafjölskyldu n Enginn fótur fyrir mansalsásökunum n Sex ára stúlka tekin af heimilinu og send til fórsturforeldra n Lögmaður gagnrýnir barnaverndaryfirvöld harðlega Þar kom fram að mikill hávaði bærist frá íbúðinni fram eftir nóttu og taldi tilkynnandi að börnin stunduðu áfengisneyslu eða aðra neyslu í íbúðinni. Lögreglan fór á heimilið ásamt starfsmanni Barnaverndar, en þar var allt með kyrrum kjörum. Tilkynningin átti ekki við rök að styðjast. Þuríður segir fullkomlega eðlilegt að barnaverndaryfirvöld kanni aðstæður þegar þeim berist ábendingar um eitthvað mis­ jafnt en taka þurfi öllu slíku með fyrirvara enda hafi tilkynningarn­ ar ekki verið á rökum reistar. „Lög­ reglan fór á staðinn ásamt starfs­ manni Barnaverndar og það kom í ljós að þetta var algjörlega ósönn staðhæfing þannig að það var ekki ástæða til að aðhafast neitt. Það drekkur enginn á þessu heimili, það reykir enginn á þessu heimili og það er enginn í nokkurs konar neyslu á þessi heimili.“ Dularfullur tölvupóstur Mun alvarlegri ásakanir voru síð­ ar bornar á borð, meðal annars að faðir Vanessu, Yves, væri ekki raunverulegur afi stúlkunnar sem kom með honum til landsins og að hugsanlega væri hún fórnar­ lamb mansals. Þetta átti að koma fram í tölvupósti sem Barna­ verndarnefnd Reykjavíkur barst þann 17. 18. og 19. október síðast­ liðinn. Tölvupósturinn var sendur í nafni Vanessu og Yves en þar voru nöfn fjölskyldumeðlima staf­ sett vitlaus. Þau hafa neitað því að hafa sent tölvupóstinn enda voru þau á fundi með lögmanni sín­ um þann 17. október þegar fyrsti tölvupósturinn barst. Þetta stað­ festir Þuríður í samtali við DV. Blaðamaður hefur séð dómskjöl frá Haítí þar sem fram kemur að Yves sé með forræði yfir stúlkunni. Rannsókn lögreglu var látin niður falla enda voru ásakanirnar ekki á rökum reistar. Þrátt fyrir að lögreglan hafi tek­ ið af allan vafa segir í úrskurði Hér­ aðsdóms Reykjavíkur að dómur­ inn telji brýnt að hið allra fyrsta verði skoðuð tengsl stelpunn­ ar við Yves og forsjárhæfni hans metin. Þá þyki dóminum ekki síð­ ur nauðsynlegt að Barnavernd kanni til hlítar hvort efni tölvu­ póstsins eigi við einhver rök að styðjast. Þuríður segir bagalegt að dómari byggi úrskurð sinn á ásök­ unum sem þegar hefur verið sýnt fram á að séu rangar. „Ég benti ít­ rekað á að búið væri að rannsaka málið og að það væri enginn fót­ ur fyrir ásökununum. Samt sem áður er úrskurður dómarans á þá leið að þetta beri að skoða betur. En hvernig í ósköpunum á að gera það þegar lögreglan hefur lokið rannsókn sinni?“ „Hið ljótasta mál“ Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur kemur einnig fram að fyrrverandi maður Vanessu hafi sakað Yves um að beita börnin ofbeldi. Þessu hefur hann hins vegar neitað enda búa dætur hans á heimilinu með afa sínum. Þá hefur ekkert ann­ að komið fram sem styður þessar fullyrðingar um ofbeldi. Þuríður segir málið eina stóra hringavit­ leysu. Ekki hafi bætt úr skák þegar það var blásið út í fjölmiðlum, en Vísir og Stöð 2 greindu frá því í jan­ úar að stúlkubarn hefði verið tek­ ið af heimili sínu vegna „gruns um ofbeldi og mansal.“ Fréttaflutn­ ingurinn byggði að miklu leyti á úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, en að beiðni Þuríðar voru nokkrar rangar og ósannaðar staðhæfingar síðar fjarlægðar úr úrskurðinum á vef Hæstaréttar. Hún segist hafa haft samband við þann fjölmiðil sem birti hinar röngu fréttir og beðið um leiðréttingu en við þeirri kröfu hafi þeir ekki orðið. Þuríður segir ljóst að nafn­ lausar ábendingar og ásakanir sem ekki eiga við rök að styðjast hafi undið upp á sig. „Þetta byrj­ aði sem eitthvert smámál en síð­ an hefur þetta fengið að rúlla og vaxa eins og snjóbolti.“ Hún segir ýmislegt fleira vafasamt í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, eins og til dæmis fullyrðingar um að Yves hafi neitað að taka þátt í stuðn­ ingsúrræðum eins og „Greining og ráðgjöf heim.“ Slíkt hafi ekki ver­ ið reynt enda hafi honum aldrei boðist að skrifa undir skjal þess efnis þvert á það sem Barnavernd Reykjavíkur heldur fram: „Þetta eru hrein og klár ósannindi.“ Þrátt fyrir að ýmsar aðrar ásakanir um ofbeldi og vanrækslu hafi verið af­ sannaðar var stúlkan tekin af Yves í september og sú ákvörðun síðan staðfest af Hæstarétti Íslands. „Þetta er hið ljótasta mál. Hér er um flóttafólk að ræða sem kem­ ur hingað eftir að hafa misst sína nánustu í jarðskjálftanum á Ha­ ítí. Að afinn skuli síðar þurfa að verja sig gagnvart ásökunum um að hann sé komin með barna­ barn sitt hingað í mansal er auð­ vitað fyrir neðan allar hellur. All­ ir málsaðilar vita að hann er með forræði yfir barninu. Ég hef setið símafund með föður stúlkunnar og fulltrúum Barnaverndarnefnd­ ar Reykjavíkur þar sem hann stað­ festir þetta. Þá eru til dómskjöl frá Haítí sem taka af allan vafa. Samt sem áður er haldið áfram með þetta rugl.“ Góð umsögn leikskóla Í umsögn frá leikskóla stúl­ kunnar sem Barnaverndarnefnd Reykjavíkur barst í júlí síðastliðn­ um kemur fram að hún sé „mjög kát og hress.“ Þá segir að hún sé ákveðin og sýni umhverfinu mik­ inn áhuga, komi ávallt hrein og í hreinum fötum á leikskólann, og að umhirða hennar og aðbúnaður hafi verið með ágætum. Í umsögn­ inni segir enn frekar að stúlkan sé umhyggjusöm, góð við alla og láti kennara vita ef einhver geri henni eitthvað. Yves fór til Haítí í sumar til þess að ganga frá lausum endum og taka til í kringum rústir þeirra gömlu híbýla. Hann veiktist hið ytra og kom því seinna heim en ætlað hafði verið. Stúlkan byrjaði í grunnskóla á sama tíma en Vanessa gat ekki skráð hana í mat þar sem hún er ekki forsjáraðili barnsins. Þann 12. september barst Barnaverndarnefnd Reykja­ víkur síðan ábending um að stúlk­ an hefði mætt döpur í skólann og grátið. Var lýst yfir áhyggjum af því að stelpunni liði ekki vel og að grunnþarfir um mat og aðbúnað væru ekki fullnægjandi. Nokkrum dögum síðar, eða þann 18. sept­ ember, var stúlkan færð í hendur fósturforeldra. Hún var færð í annan skóla í kjölfarið en þar líður henni ekki vel ef marka má umsögn skólayfir­ valda um líðan stúlkunnar þar. Kemur fram að henni hafi liðið illa í nýja skólanum. Stúlkan hefði virkað ráðvillt, hún ætti í erfiðleik­ um með að fara eftir settum regl­ um og „vissi oft ekki í hvorn fótinn hún ætti að stíga og því væri hún óörugg.“ Þá var hún sögð lítil í sér, og að hún tengdist fáum í bekkn­ um. Þuríður segist hafa bent ít­ rekað á þetta fyrir dómstólum en dómarar hafi litið fram hjá þessu. Þá segir hún sérkennilegt að barnaverndaryfirvöld hafi ákveðið að fjarlægja barnið af heimilinu án þess að reyna önnur úrræði fyrst. Barnavernd svarar engu „Það er hræðilegt að koma svona fram við fólk. Að bera upp á afa mansal þegar hann er að koma hingað með barnabarn sem hefur misst móður sína. Það var búið að leggja alveg nóg á fólkið. Mér finnst þetta allt mjög undarlegt,“ segir Þuríður. „Ég missti stóran hluta af fjölskyldunni minni í jarð­ skjálftanum en ég vil ekki missa alla hina hér á Íslandi,“ segir Vanessa. „Þau geta ekki gert okk­ ur þetta, við komum hingað alls­ laus og í leit að betra lífi,“ seg­ ir Vanessa sem er gráti næst. Hún tekur fram að síðustu mánuðir hafi reynt mjög á taugarnar og að það sé verulega stressandi að geta bú­ ist við því að fleiri börn verði tekin af heimilinu. „Hvernig eigum við að vita hvað gerist næst?“ Hún vonast til þess að úr­ skurðinum verði snúið sem fyrst enda skilur hún ekki hvers vegna barnið má ekki vera með fjöl­ skyldunni. Þá vonast hún til þess að fjölskyldan fái einhver betri húsnæðisúrræði sem fyrst enda sé íbúðin vissulega lítil fyrir svo stóra fjölskyldu. Hún segir furðulegt af íslenskum yfirvöldum að bjóða fólk velkomið til Íslands á grund­ velli fjölskyldusameiningar en fylgja því síðan ekki betur eftir en raun ber vitni. Þuríður tekur und­ ir þetta og álítur málið ákveðinn áfellisdóm yfir félagslega kerfinu. DV sendi skriflega fyrirspurn á Halldóru Gunnarsdóttur, fram­ kvæmdastjóra Barnaverndar Reykjavíkur. Þar var meðal annars spurt hvers vegna ásakanir sem þegar hefðu verið afsannaðar væru lagðar fram sem gögn í mál­ inu. Hún sá sér ekki fært að svara fyrirspurnum blaðsins þar sem starfsmenn barnaverndarnefnda séu „bundnir trúnaði um hagi barna, foreldra og annarra sem þeir hafa afskipti af.“ n Systur að leik Dætur Vanessu léku sér saman í tölvuleik þegar blaðamann bar að garði. MynD SiGtryGGur Ari„Ég hefði aldrei komið með hana hingað ef ég hefði vitað að íslenska ríkið myndi taka hana frá mér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.