Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2014, Blaðsíða 33
Vikublað 4.–6. mars 2014 Neytendur 25
É
g var búin að eiga tölvuna í þrjá
mánuði og hún krassar fyrir-
varalaust,“ segir Vera Sölva-
dóttir en tölva sem hún var ný-
lega búin að kaupa slökkti á sér
þegar hún var að vinna í henni. Tölv-
an var í ábyrgð en erfiðlega gekk að fá
gert við hana.
Ákvað að kaupa heima
„Það sem gerðist er að ég átti tölvu
sem var svipuð þessari, sem dó í
nóvember. Ég var örugglega búin að
eiga hana í svona þrjú ár, ekkert það
lengi, en hún bara dó út af engu. Svo
ég þurfti að kaupa mér nýja og kaupi
hana í Macland,“ segir Vera. „Ég ákvað
sérstaklega að kaupa tölvuna hérna
heima því ég nennti ekki að lenda í
neinu veseni,“ segir hún.
Hún fór með bilaða tölvuna í versl-
un Macland en þaðan er henni bent
á að fara á verkstæði í Applebúð-
inni. Epli.is rekur eina viðurkennda
Apple-þjónustuverkstæðið hér á
landi og sem viðurkenndur þjónustu-
aðili Apple sinnir fyrirtækið öllum
ábyrgðarviðgerðum á Apple-tölvum,
iPad og iPod sem falla undir verk-
smiðjuábyrgð Apple.
„Ég fer með hana á laugardegi og
þeir segja mér að koma á mánudegi
því það sé enginn á verkstæðinu yfir
helgina. Ég spyr hvenær ég geti feng-
ið hana aftur því þetta er vinnutæk-
ið mitt. Þeir báðu mig að hafa sam-
band á miðvikudegi og ég gerði það
og þá voru þeir ekki byrjaðir að vinna
í henni, en buðu mér að borga sextán-
þúsund krónur í flýtigjald,“ segir hún.
Neytandi verði ekki fyrir tjóni
„Þetta er fráleitt. Ef tölvan er í ábyrgð
á neytandinn ekki að verða fyrir neinu
fjárhagslegu tjóni.“ Þetta segir Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytendasam-
takanna. „Ef það tekur svona langan
tíma að gera við, sem það gerir greini-
lega ekki, fyrst það er hægt að kaupa sig
framar í röðina með greiðslu flýtigjalds,
þá á verslunin að bjóða viðskiptavinin-
um tölvu að láni á meðan gert er við,“
segir hann. „Það gilda aðrar reglur
þegar söluhlutur er farinn úr ábyrgð en
þessi tölva er í ábyrgð og þá gilda aðrar
reglur en þegar söluhlutur er farinn úr
ábyrgð. Þetta er hlutur sem verslun má
ekki og á ekki að bjóða viðskiptavinum
sínum upp á.“
Tölvulaus í viku
Vera fékk að lokum gert við tölvuna og
gat náð í hana á föstudegi. Þá hafði hún
ítrekað farið á verkstæðið að reka á eftir
viðgerðinni og verið tölvulaus í viku. n
Flýtigjald eða bið
n Boðið að borga 16.000 kr. til að flýta fyrir viðgerð á tölvu í ábyrgð
Auður Alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is
Úr ábyrgðarskilmálum Epli.is
Reikningur þessi gildir sem ábyrgðarskír-
teini skv. almennum reglum og viðtekn-
um venjum fyrir ábyrgðarskyldar vörur,
enda sé raðnúmer vöru tilgreint.
Ábyrgðarskilmálarnir í þessari
yfirlýsingu, að því leyti sem lög leyfa,
undanskilja ekki, takmarka eða breyta
heldur eru til viðbótar lögbundnum
réttindum sem gilda um sölu viðkomandi
vöru. Ef um er að ræða sölu til fyrirtækis
er tímamark til að bera fyrir sig galla á
seldri vöru frá Epli.is eitt ár frá því að
söluhlut var veitt viðtöku nema annað
sé sérstaklega tekið fram. Í samræmi
við lög um neytendakaup, nr. 48/2003
er þessi frestur tvö ár ef um er að ræða
smásölu til neytenda.
Ábyrgð gildir einungis fyrir vélbúnað.
Við ábyrgðarviðgerðir geta verið notaðir
íhlutir úr öðrum vörum sambærilegir
við nýja eða sem hafa verið í óverulegri
notkun. Epli.is undanskilur sig allri
ábyrgð á afleiddu tjóni sem leiða kann
af bilun, svo sem endurvinnslu gagna,
töpuðum hagnaði oþh. Notendur eru
í öllum tilfellum ábyrgir fyrir öryggis-
afritun gagna. Hugbúnaður er seldur
í núverandi ástandi án tilkalls til
endurbóta og breytinga sem hugsanlega
verða gerðar á honum, ekki undir neinum
kringumstæðum verður Epli.is ábyrgt
fyrir skaða sem notkun hugbúnaðarins
kann að valda.
Ábyrgð tryggir ekki að búnaður verði laus
við allar truflanir eða villulaus. Á líftíma
vörunnar mun reynast nauðsynlegt að
fylgja leiðbeiningum framleiðanda um
uppfærslur. Ef úrlausn vandamáls felst
í því að fylgja leiðbeiningum framleið-
anda sem aðgengilegar eru almenningi
mun vinna vegna þess ekki falla undir
ábyrgð og er þá innheimt samkvæmt
gjaldskrá.
Notuðum búnaði fylgir ekki ábyrgð,
nema það sé sérstaklega tilgreint.
Biluð tölva Vera varð fyrir því að tölvan hennar bilaði fyrirvaralaust. MyNd SigTryggur Ari
„Verslun á ekki
að bjóða við-
skiptavinum sínum
upp á þetta
Tilbúnir búningar ódýrir
Algengt verð í kringum 5.000 krónur
Ö
skudagur er á morgun mið-
vikudag en á þeim degi er
hefð að halda grímudansleiki
auk þess sem sá siður færist
í vöxt að börn mæti grímuklædd í
skóla og leikskóla á þessum degi
og stálpaðri börn syngi jafnvel fyrir
sælgætisgjafir í verslunum.
Margir leggja töluverða vinnu
í búningana en þá er líka hægt að
kaupa tilbúna.
DV fór á stúfana og kannaði verð
á búningum í nokkrum verslunum
á höfuðborgarsvæðinu. Nokkuð
misjafnt var hvað búningarnir kost-
uðu en algengt var að þeir kostuðu
um það bil 5.000 krónur.
Partý búðin í Skeifunni býður
upp á nokkuð úrval búninga. Þar
er verðið nokkuð misjafnt. Búninga
fyrir Svamp Sveins, kóng og Mínu
Mús má til dæmis fá á 5.900 krón-
ur. Þúsund krónum ódýrari, eða á
4.990 kr. eru ninja, indíánastelpa,
læknir, Rauðhetta og trúður. Norna-
búningur fæst á sama stað á 3.990
en röndóttur fangabúningur á 2.990
krónur.
Í Leikfangalandi fæst álfkonu-
búningur á 4.800 krónur og sama
verð er á kokkasetti. Vampírubún-
ing má fá á 3.200 krónur í Leik-
fangalandi en nornabúning á 3.800
krónur.
Í Toys 'R' Us fást indjánastelpa
á 3.499 krónur eins og grænt epli,
læknisbúningur og fílsbúningur.
Fyrir 4.499 krónur má fá apabún-
ing, en boxara og leðurblökustúlku
á 5.999 krónur. n fifa@dv.is
Allt að 218%
munur á
vöruverði
Verðkönnun ASÍ
Verslunin Bónus í Reykjanesbæ
var oftast með lægsta verðið
þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði
verð í 13 verslunum víðs vegar
um landið þann 25. febrúar, en
farið var í lágvöruverðsverslanir,
stórmarkaði sem og klukkubúðir.
Hæsta verðið var oftast að finna
í klukkubúðinni 10-11 á Akur-
eyri eða í meira en helmingi til-
vika. Verðmunurinn á hæsta og
lægsta verði vöru í könnuninni
var frá 9% upp í 218% en oftast
var hann 25–75%. Af þeim vörum
sem Samkaup-Úrval Selfossi átti
til var í um 10% tilvika umbeðin
vara óverðmerkt, sem er óviðun-
andi fyrir neytendur.
Af 83 vörutegundum sem voru
skoðaðar voru flestar fáanlegar
hjá Fjarðarkaupum Hafnarfirði
og Hagkaupum Kringlunni eða
82 af 83, Krónan Granda átti til 79
og Iceland 78. Fæstar vörurnar
voru fáanlegar hjá Samkaupum-
Strax eða 51 af 83 og 10-11 átti
til 52. Af þessum 52 vörum sem
10-11 átti til var hún dýrust í 46
tilvikum.
Öskudagur Víða hefur sú hefð skapast að
börn eru í grímubúningum allan öskudaginn,
svo sem á frístundaheimilum og leikskólum.
Verðmunur á
ávöxtum og
grænmeti
Verð á 11 tegundum á ávöxtum
og grænmeti var skoðað í verð-
könnun ASÍ. Verðmunur á þeim
var 70–218%. Minnstur verð-
munur var á avókadó, 70%, en
það var dýrast á 849 krónur hjá
Hagkaupum en ódýrast á 498
krónur hjá Nettó, Fjarðarkaup-
um, Iceland og Kaskó. Einnig
var 70% verðmunur á íslenskri
agúrku sem var ódýrust á 420
krónur stykkið hjá Bónus en
dýrust á 714 krónur stykkið hjá
Samkaupum-Strax. Benda má
neytendum á að agúrka er seld
í stykkjatali í mörgum verslun-
um, en ein agúrka er að meðal-
tali 350 grömm
Mestur verðmunur í
könnuninni var á appelsínum
sem voru dýrastar á 499 krónur
hjá 10-11 en ódýrastar á 157
krónur hjá Nettó og Kaskó sem
er 342 króna verðmunur eða
218%.