Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Side 2
Vikublað 10.–12. júní 20142 Fréttir „Vestið hans XL skaL brenna“ n Fundargerðabók Hells Angels n Tekið á agavandamálum Í fundargerðabókum Hells Angels á Íslandi frá árunum 2011–2012 kemur fram ýmislegt sem tengist uppgangi samtakanna. Líkt og DV hefur greint frá héldu Hells Angels- meðlimir ítarlega fundar- gerðabók um daglegt starf samtak- anna. Það sem er skrásett í bækurnar er þó ekki tæmandi fyrir starfsemi samtakanna þar sem einnig var fund- að undir berum himni til að tryggja að enginn vissi af því hvað færi fram á fundum. Þar voru rædd mál sem ekki þótti rétt að skrásetja sérstak- lega. Fundargerðabókin sýnir upp- gangstíma samtakanna á árunum 2010–2012, það er frá því áður en MC Iceland varð að Vítisenglum (2011), og fram til ársins 2012 þegar Einar Ingi Marteinsson var settur af sem formaður og sat í gæsluvarð- haldi. Þá fór verulega að halla und- an fæti meðal Vítisengla, samtökin urðu minna áberandi en þau höfðu verið. Á uppgangsárunum ferðuð- ust meðlimir víða og heimsóttu aðra klúbba auk þess sem þeir fylgdust grannt með „áhangendaklúbbum“ eða „hangarounds“ og tóku inn nýja meðlimi eftir umsóknarferli. Ráku bar og pössuðu að menn væru edrú Þrátt fyrir að samtökin hafi rekið bar að Móhellu (félagsheimili þeirra í Hafnarfirði), ferðast mikið til að sækja skemmtanir, viðburði og fundi Hells Angels í útlöndum var meðlim- um sem glímdu við áfengis- eða fíkni- efnavanda sýnt mikið aðhald og þeir gjarnan teknir fyrir á fundum. Þetta sést glögglega í fundargerðabókun- um. Meðlimir voru þá kallaðir upp og farið yfir málin. Þeim var tilkynnt að agabrot og slæm hegðun væri óboð- leg. Í mars 2011 segir til dæmis: „X myntur [sic] á að vera edrú og hann ætlar að vera áfram.“ Á sama fundi er hegðun annars meðlims tekin fyr- ir, en sá hafði valdið talsverðum usla þó ekki sé sérstaklega tekið fram að það tengist öðru en hegðunarvanda- málum. „Gummi risaeðla kemur ekki meir upp í hús vegna þess að hann er búin [sic] að koma sér illa fyrir á flest- um stöðum,“ segir í fundargerðabók- inni en það var ekki öll von úti því þar segir einnig: „En hann er að laga sig til.“ Skemmtanir samtakanna skiptu máli og að menn létu sjá sig. Þar segir til dæmis um einn meðlim. „Arnar: Síðasta laugardag fór hann úr miðju partýi [sic] Óskar talar við Arnar um hans hegðun.“ Barinn er ítrekað ræddur á fundum ýmist vegna slæmrar stöðu hans eða batn- andi stöðu. Margir virtust ekki hafa greitt skuldir sínar á barnum, stálust í hann eða létu ganga á eftir sér varð- andi greiðslu. Slíkt var ekki liðið og eru meðlimir ítrekað beðnir um að gera upp skuldir sínar. Einelti mátti ekki líðast En agavandamálin voru fleiri og flóknari. Prospectar, það eru einstak- lingar sem ekki voru orðnir Hells Angels- meðlimir en voru að vinna sig upp og undirbúa sig fyrir full- gildingu, sáu um að vakta húsnæði Hells Angels á Móhellu í Hafnarfirði. Einar Ingi Marteinsson, Einar Boom, fyrrverandi formaður samtakanna, tók það upp á fundi hinn 10. nóvem- ber 2011 að „prospectar“ þyrftu að endurskoða hegðun sína, en þeir Hells angels Dagbækurnar – 2. hluti – Úti í kuldanum Ef meðlimir hegðuðu sér ekki eftir settum reglum voru þeir settir út í kuldann. höfðu verið að stelast út af vaktinni. Þar segir: „Að prospectar eigi ekki að skjótast af vaktinni til að fá sér að ríða eða hvað sem menn gera. Það á einungis þegar member þarf aðstoð.“ Á sama fundi er það ítrekað að einelti eigi ekki að líðast innan samtakanna eða gagnvart samtökum sem tengdust Hells Angels. Einar Boom tekur þetta sérstaklega fyrir og segir: „Einelti. Við þurfum að vera vakandi yfir því.“ Keyptu legstein Augljóst er að mikil samkennd ríkti í hópnum og hugsuðu meðlimir um samherja sína. Sem dæmi má nefna að eftir andlát eins meðlimsins fóru félagarnir af stað í að kaupa legstein fyrir hann. Fóru þeir að leita að leg- steini á góðu verði og hugðust láta grafa í steininn stutt skilaboð: „Hvíl í friði, bróðir.“ Viðkom- andi meðlimur hafði áður glímt við erfið- leika sem augljóst er í eldri færslum fundar- gerðabókarinnar. „No contact“ Þegar meðlimir gerðust brotlegir við reglur, skrifaðar og óskrifaðar, klúbbsins voru hörð viðurlög við því og þeir settir út í kuldann. Sem dæmi má nefna að í nóvember 2011 er rætt um meðlim sem hafði verið mjög áberandi í starfi Hells Angels og ef marka má fundargerðabókina var hann háttsettur og gegndi miklum skyldum. Skyndilega er viðkomandi „no contact“ sem þýðir að meðlim- ir áttu ekki að nálgast hann eða ræða við hann. Í fundargerðinni segir: „Einar XL out. No Contact og einginn [sic] skal hafa samband við hann hvorki við né support clubs. Sækja bíl og allt sem hann skuldar láta Boom fá það. Svar (yfirlýsingar) tilbúna [sic] fyrir blöðin ef skildi [sic] fara þannig ef skildi [sic] koma frétt um þetta mál. Vestið hans XL skal brenna.“ Nánar verður fjallað um fundar- gerðabækur Hells Angels á næst- unni. n Í umfjöllunum DV undanfarin ár hefur margoft komið fram að í samtökum á borð við Hells Angels, Outlaws og Mongols safnist oft saman hópur ungra karla sem eru utanveltu og á jaðri samfélagsins. Í slíkum samtökum leita þeir eftir virðingu sem þeir fá ekki annars staðar. Þeir ganga oft gegn gildum og viðmiðum samfélagsins, en tekst að verða leiðtogar innan slíkra samtaka þar sem óttablandin virðing er borin fyrir þeim bæði innan og utan samtakanna. Almennt er þó litið á það sem svo að það sé bæði alvarlegur og flókinn hlutur þegar samtök sem þessi ná að festa sig í sessi og því líkt við „krabbamein“ í samfélaginu sem eitri út frá sér. Íslensk rannsókn sem gerð var við Háskóla Íslands sýndi vel að hvar sem slík samtök næðu fótfestu fylgdi í kjölfarið slóð afbrota. Black Pistons, Hells Angels og MC Mongols tilheyra svokölluðu „eina prósentinu“, en það er hugtak sem er notað yfir þau samtök véhjólamanna sem fara ekki að lögum og reglum – hin 99 prósent vélhjólaklúbbanna geri það hins vegar. Árið 2012 voru 89 meðlimir í íslenskum vélhjólagengjum sem voru undir sérstöku eftirliti hjá íslenskum lögregluyfirvöldum. Eftirlit er enn mikið með slíkum samtökum, en líkt og DV greindi frá í helgarblaði sínu telur lögreglan að Hells Angels hafi til dæmis verið í leiðtoga- krísu eftir að Einar Ingi Marteinsson yfirgaf samtökin 2012 en telja að þau gætu reynt að sækja í sig veðrið á komandi mánuðum. Óttablandin virðing Eiga undir högg að sækja og leita að virðingu No contact Ekki mátti ræða við Einar XL frekar og brenna átti vesti hans. Íkveikja við Hádegismóa Slökkviliðið á höfuðborgar- svæðinu var kallað út aðfaranótt mánudags til að slökkva eld við göngugötu í Hádegismóum, þar sem skrifstofur Morgunblaðsins eru meðal annars til húsa. Hafði verið kveikt í dekki og lagði tals- verðan, svartan reyk frá því. Sömu nótt var óskað eftir aðstoð slökkviliðsins á Laugaveginum en þar logaði í gervihvítabirni fyrir utan ferðamannaverslun. Hafði eldurinn náð í klæðningu hússins en eldurinn var kæfður áður en kom til verulegs tjóns. Hvíta- björninn skemmdist þó nokkuð. Umturnaðist á Laugavegi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast á hvíta- sunnudag og aðfaranótt mánu- dags. Þegar klukkan var gengin ellefu að kvöldi sunnudags var tilkynnt um þjófnað úr herbergi á gistiheimili við Laugaveg en búið var að stela erlendum gjaldeyri. Á þriðja tímanum aðfaranótt mánudags voru afskipti höfð af manni á heimili sínu í austurborg Reykjavíkur. Sá var grunaður um ræktun fíkniefna og hann vistað- ur í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins. Á fimmta tímanum var mað- ur handtekinn á Laugavegi. Þegar lögregla hugðist aðstoða manninn við að komast til síns heima missti hann stjórn á sér hann og neitaði að auki að gefa upp persónuupplýsingar og var vistaður í fangageymslu í kjöl- farið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.