Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Page 4
Vikublað 10.–12. júní 20144 Fréttir
Ríkið borgar Tryggva
11 þúsund á tímann
n Gert ráð fyrir einni og hálfri milljón á mánuði n Ráðinn án auglýsingar
T
ryggvi Þór Herbertsson,
fyrrverandi þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og
doktor í hagfræði, fær allt
að níu milljónum króna
fyrir störf sín sem verkefnisstjóri
höfuðstólslækkunar íbúðalána á
þessu ári. Staðan var ekki auglýst
en samningurinn við Tryggva gildir
í hálft ár, frá lokum janúar og fram
til 31. júlí.
Í verksamningi milli Tryggva
og verkefnisstjórnar skuldaniður-
fellinga, sem starfar á vegum fjár-
mála- og efnahagsráðuneytisins,
er tilgreint að áætlað vinnuframlag
Tryggva Þórs verði að jafnaði 135
vinnustundir á mánuði og að tíma-
gjaldið sé 11.250 krónur auk virðis-
aukaskatts.
Óánægja í ráðuneytinu
Þetta kemur fram í svari við fyrir-
spurn sem DV sendi fjármálaráðu-
neytinu. Mánaðarlaunin sem verk-
efnisstjórn skuldaniðurfellinga
gerði ráð fyrir nema um það bil
einni og hálfri milljón. Þetta er tals-
vert hærra kaup en almennt tíðkast
meðal þeirra sem starfa hjá hinu
opinbera, jafnvel sérfræðinga sem
hlotið hafa sambærilega menntun
og Tryggvi Þór. Hann er með dokt-
orspróf í hagfræði frá Árósaháskóla
og hefur starfað sem prófessor við
Háskóla Íslands og Háskólann í
Reykjavík.
Samkvæmt heimildum DV er
nokkur óánægja á meðal starfs-
manna fjármálaráðuneytisins
vegna kjaranna sem Tryggvi Þór
nýtur. Einn af viðmælendum
blaðsins sagði verksamninginn
lykta af því að verið væri að hygla
gömlum flokksfélaga. Skemmst
er að minnast þess þegar Árni
Mathiesen, fyrrverandi fjármála-
ráðherra, varði samtals 13,2 millj-
ónum af skattfé í skýrslugerð
Hannesar Hólmsteins Gissurar-
sonar stjórnmálafræðiprófessors
um áhrif skattabreytinga á Íslandi.
Þessi fjárútlát voru gagnrýnd harð-
lega eftir hrun þegar kröfur um
faglega stjórnsýslu voru sem há-
værastar.
Lék hlutverk í bankahruninu
Athygli vakti þegar Tryggvi Þór var
valinn sérstaklega og gerður að
verk efnisstjóra skuldaniðurfellinga
án auglýsingar. Sem kunnugt er var
Tryggvi leikandi í bankahruninu og
fer skýrsla rannsóknarnefndar Al-
þingis um hrun fjármálakerfisins
ekki mjúkum höndum um hann.
Tryggvi var efnahagsráðgjafi Geirs
H. Haarde, en í skýrslunni sakar
meðal annars Björgvin G. Sigurðs-
son, fyrrverandi viðskiptaráðherra,
Tryggva um að hafa leynt sig mikil-
vægum upplýsingum í aðdraganda
hrunsins.
Í heimildamyndinni Inside Job,
um alþjóðlega fjármálahrunið,
var skýrsla sem Tryggvi Þór vann
með bandaríska hagfræðingnum
Frederic Mishkin fyrir Viðskiptaráð
Íslands árið 2006 notuð sem eins
konar skólabókardæmi um gagn-
rýnisleysi og meðvirkni háskóla-
fólks með fjármálaöflunum. Í skýrsl-
unni var íslensku fjármálakerfi gefið
heilbrigðis vottorð og fengu höf-
undarnir sem nemur 15 milljónum
íslenskra króna fyrir hana. n
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
„Þetta er talsvert
hærra kaup en
almennt tíðkast meðal
þeirra sem starfa hjá hinu
opinbera.
Í góðum málum
Tryggvi var ráðinn
verkefnisstjóri
skuldaniðurfellinga
án auglýsingar og
fær allt að einni
og hálfri milljón á
mánuði í laun.
Ber ábyrgð á ráðningunni Verkefnisstjórn um framkvæmd höfuðstólslækkunar heyrir
undir Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra. Mynd Sigtryggur Ari
Örmagnaðist
á Hvanna-
dalshnúk
Björgunarfélagið á Höfn og
Björgunarsveitin Kári í Öræfum
voru kölluð út á sjötta tímanum
á laugardag þegar beiðni barst
um aðstoð á Hvannadalshnúk
vegna göngumanns er veiktist á
leið niður af tindinum. Maðurinn
var ásamt gönguhópi í um 1.800
metra hæð. Björgunarmenn fóru
á Hnúkinn á sleðum auk þess
sem fjórir göngumenn fóru frá
Sandfelli. Þyrlan kom á slysstað
og flutti manninn á sjúkrahús í
Reykjavík. Ástand mannsins er
stöðugt en læknir var í göngu-
hópnum og sinnti honum þar til
aðstoð barst. Göngumaðurinn er
þaulvanur fjallamaður. Hann var
útskrifaður af sjúkrahúsi daginn
eftir óhappið.
„Skotin fara langt yfir markið“
Árni Þór ekki sammála Birni Val um geir Haarde
B
jörn Valur Gíslason, varafor-
maður VG, er oft hnyttinn, en
því er ekki að leyna að á stund-
um fara skotin langt yfir mark-
ið,“ skrifaði Árni Þór Sigurðsson,
þingmaður Vinstri grænna, á Face-
book-síðu sína þar sem hann deil-
ir skrifum Björns Vals Gíslasonar úr
Vinstri grænum um Geir H. Haarde,
fyrrverandi forsætisráðherra.
Björn Valur hafði varað við mál-
flutningi Aldo Musacchio, prófess-
ors við Harvard Business School, sem
hvatti til þess á morgunverðarfundi
Norsk-íslenska viðskiptaráðsins á
Nordic Hótel í síðustu viku að Íslandi
tæki sér Hong Kong og Singapúr til
fyrir myndar og stefndi að því að verða
alþjóðleg fjármálamiðstöð.
Björn Valur birti skrifin á vefnum
Herðubreið þar sem hann vitnaði í orð
Halldórs Ásgrímssonar, fyrrverandi
forsætisráðherra, á Viðskiptaþingi árið
2005 þar sem hann sagðist eiga þann
draum að í framtíðinni yrði Ísland
þekkt um víða veröld sem alþjóðleg
fjármálamiðstöð.
Björn Valur benti á að Geir H. Ha-
arde hefði sagt síðar að af hans hálfu
hefðu verið stigin skref í áttina að því
að uppfylla draum Halldórs. „Það
verður seint sagt um Geir ræfilinn Ha-
arde að hann hafi verið farsæll stjórn-
málamaður,“ skrifaði Björn.
Árni Þór sagði sjálfur á Facebook að
það sé sjálfsagt og eðlilegt í lýðræðis-
legu samfélagi að menn takist á um
pólitísk markmið og leiðir. „En eins og
í boltanum er meiri bragur að því að
fara í boltann en ekki í manninn.
Sjálfum finnst mér þessi umfjöllun
um Geir Haarde ómakleg. Vissulega
er ég á öndverðum pólitískum meiði
við Geir Haarde, en ég hygg að flestir
sem þekkja til hans og kynnast hon-
um viti, að þar fer vandaður og heiðar-
legur einstaklingur sem tilefnislaust er
að hnýta í þótt menn deili á pólit íska
afstöðu hans....Geir Haarde var ekki
gerð refsing. Við svo búið verðum við
sem samfélag að geta haldið áfram,
sýnt hvert öðru virðingu og verið
rausnarleg.“
Ennþá er
von á hita
Flestir fengu sinn skerf af hlýind-
um og sól um liðna helgi og þyrst-
ir eflaust í meira. Þeir þurfa ekki
að örvænta því gert er ráð fyrir
ágætis hita í vikunni, samkvæmt
textaspá Veðurstofu Íslands.
Í dag, þriðjudag, má gera
ráð fyrir andvara, skýjuðu eða
skýjuðu með köflum og stöku
skúrum. Hiti nær engu að síð-
ur tíu til átján stigum að degin-
um, en verður allvíða svalara við
ströndina, einkum við landið
austanvert.
Á miðvikudag má gera ráð fyrir
norðaustanátt, átta til þrettán metr-
um á sekúndu, og dálítilli rigningu
austast. Annars hægur vindur og
bjart með köflum, en allvíða þoku-
loft við norðurströndina. Gert er
ráð fyrir átta til átján stiga hita, hlýj-
ast suðvestanlands.
Á fimmtudag verður austlæg
átt, fimm til þrettán metrar á sek-
úndu, hvassast við suðurströndina.
Bjart að mestu um landið norðan-
vert, dálitlar skúrir í öðrum lands-
hlutum. Hiti átta til átján stig en
hlýjast verður í innsveitum.
Björn Valur gíslason Kallaði Geir H.
Haarde „ræfil“ á bloggi sínu.