Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Síða 8
Vikublað 10.–12. júní 20148 Fréttir Margt óuppgert í sögu Framsóknarflokksins n Útlendingahatur, ofsóknir og níð gegn minnihlutahópum n Sigmundur Davíð illa að sér í sögu flokksins S igmundur Davíð Gunnlaugs- son forsætisráðherra telur að Framsóknarflokkurinn hafi frá upphafi verið í fararbroddi mannréttindabaráttunnar á Íslandi. Þessu hefur hann tvívegis haldið fram í tengslum við umdeilda kosningabaráttu flokksins í Reykjavík. Í aðdraganda sveitarstjórnarkosn- inga birti Sigmundur yfirlýsingu þar sem hann varði málflutning Framsókn- ar og flugvallarvina til höfuðs múslim- um. „Það er sama til hvaða hóps er litið, einkum ef litið er til þeirra sem hafa átt undir högg að sækja eða hafa þurft að berjast fyrir jöfnum réttindum, hvað eftir annað hefur Framsókn staðið fyrir úrbótum sem markað hafa tímamót.“ Í viðtali við Bylgjuna fyrir helgi sagði hann svo Framsóknarflokkinn hafa verið „leiðandi í mannréttindabaráttu í nánast heila öld“. Í ljósi þess að Sigmundur kýs að draga sögu Framsóknarflokksins inn í umræðu um útlendingaandúð og mismunun er viðeigandi að rifja upp fortíð flokksins. Þegar litið er yfir hana má ljóst vera að söguskýring forsætis- ráðherra stenst ekki skoðun. Leitun er að þeim minnihlutahópum sem Framsóknarflokkurinn hefur átt frum- kvæði að því að hjálpa. Þá hafa hópar á borð við gyðinga, hælisleitendur og mótmælendur orðið harkalega fyrir barðinu á forystufólki í flokknum síð- ustu ár og áratugi. Réttindi hælisleitenda brotin Framsóknarflokkurinn hefur ekki staðið vörð um réttindi hælisleitenda. Flokkurinn sat í ríkisstjórn Íslands þegar útlendingalöggjöf Íslands var smíðuð og samþykkt á Alþingi. Líkt og DV fjallaði ítarlega um á dögunum grundvölluðust lögin að miklu leyti á ótta við hryðjuverkamenn og viðleitni til að halda Íslandi lokuðu. „Kjarni útlendingastefnunnar hefur alltaf ver- ið sá að takmarka flæði útlendinga til landsins,“ fullyrti Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, í samtali við DV. Í skjóli útlendingalöggjafarinnar hafa verið framin mannréttindabrot á hælisleitendum árum saman líkt og flutt hafa verið hundruð frétta um. Í tólf ára valdatíð Sjálfstæðisflokks- ins og Framsóknarflokksins var rekin hörð útlendingastefna og lítt skeytt um þau réttindi aðkomufólks sem Ís- land hefur skuldbundið sig að þjóða- rétti til að tryggja. Enn í dag birtist útlendingastefnan í ólöglegum brott- vísunum, tvístrun fjölskyldna og al- gjöru skeytingarleysi gagnvart fólki sem hingað leitar í von um betra líf. Þingmenn gegn minnihlutahópi Á aðeins örfáum árum hafa hrannast upp óheppileg ummæli um hælisleit- endur frá forystufólki í Framsóknar- flokknum. Vigdís Hauksdóttir var gerð að formanni fjárlaganefndar í umboði flokksins aðeins nokkrum mánuðum eftir að hún hvatti til þess að vissir hælisleitendur yrðu látnir bera ökkla- bönd. Sigurður Ingi Jóhannsson, nú- verandi landbúnaðar-, sjávarútvegs- og umhverfisráðherra, varði forstjóra Útlendingastofnunar af hörku eftir að hún dylgjaði um hælisleitendur og meintan flóttamannatúrisma í fjölmiðlum án þess að nefna eitt ein- asta dæmi máli sínu til stuðnings. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur fullyrt í umræðum á Alþingi að margir hælis- leitendur séu ósamvinnuþýðir og að það þurfi sérstakt eftirlit með þeim. Ráðherra í samstarfsflokki Fram- sóknarflokksins er til lögreglu- rannsóknar vegna gruns um hegn- ingarlagabrot gegn nígerískum hælisleitanda og hafa margir þing- menn Framsóknarflokksins stokkið henni til varnar. Einn þeirra, vara- þingmaðurinn Sigurjón Norberg Kjærnested, hvatti til þess í umræðum á Alþingi að hælisleitendur yrðu svipt- ir réttinum til friðhelgi einkalífs. Formaður breska Sjálfstæðis- flokksins (UKIP), Nigel Farage, hefur þurft að standa fyrir hreinsunum úr flokknum vegna ósmekklegra um- mæla flokksfélaga. Þetta hefur þótt forsenda þess að flokkurinn sé hús- um hæfur í stjórnmálaumræðu þar í landi. Á Íslandi er ekki að sjá að ofan- greind ummæli framsóknarþing- manna og framsóknarráðherra hafi valdið neinni óánægju í flokknum. Enginn í Framsóknarflokknum hefur hvatt til þess opinberlega að Vigdís Hauksdóttir biðjist afsökunar á um- mælum sínum. Enginn hefur krafist þess að formaður flokksins lýsi því yfir að málflutningur þingmanna í garð hælisleitenda gangi í berhögg við stefnu flokksins. Árið 2011 varð Sigmundur Davíð þó fyrir harkalegri gagnrýni vegna málflutnings á Alþingi er sneri að útlendingum. Aðalfundur fulltrúa- ráðs Framsóknarfélaganna í Kópa- vogi, samþykkti hinn 26. maí það ár ályktun þar sem málflutningi Sig- mundar um málefni útlendinga var afdráttarlaust hafnað. Í ályktuninni kom meðal annars fram að fyrir- spurnir og orðræða sem tengdi saman glæpi og útlendinga og sjúkdóma og útlendinga væru „til þess fallnar að auka á fordóma í samfélaginu og draga úr umburðarlyndi og samhug“. Þá var- aði fundurinn við því að alið væri á þjóðernislegri umræðu og úlfúð í garð fólks af erlendum uppruna. Tilefnið var meðal annars fyrir- spurn Sigmundar á Alþingi þar sem spurt var sérstaklega um hlut fólks af erlendum uppruna í afbrotum og skipulagðri glæpastarfsemi á Íslandi. Samkvæmt heimildum DV eru nokkr- ir þeirra sem tóku þátt í gerð ályktun- arinnar nú hættir í Framsóknarflokkn- um vegna þess sem þeir litu á sem þjóðrembu. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs, ræddi um þetta tímabil í viðtali við DV fyrr í vetur. „Á flokksþinginu 2011 var skipt um kúrs, eins og frægt er orðið með fánahyllingu og glímasýningu og svo framvegis. Þá varð uppi fótur og fit, því þá var alveg kúvent yfir í þá stefnu sem er við lýði núna, að hags- munum Íslands væri betur borgið utan ESB,“ sagði hann og bætti því við að um þetta leyti hefði fjöldi fólks yfir- gefið flokkinn. Gyðingum haldið úti Þegar horft er lengra aftur í tímann má finna alvarlegri dæmi. Fram- sóknarflokkurinn stóð ekki vörð um gyðinga þegar þeir þurftu á hjálp að halda. Hermann Jónasson, formaður Framsóknarflokksins, var forsætisráð- herra Íslands á árunum 1934 til 1942. Á þessu tímabili var á bilinu 10 til 20 gyðingum vísað úr landi þótt yfirvöld- um mætti vera ljóst að neyð þeirra var gríðarleg. Séu þeir sem skrifuðu ís- lenskum stjórnvöldum, og fengu synj- un eða ekkert svar, taldir með er talan mun hærri. Árið 1938 barst íslenskum stjórn- völdum beiðni frá Austurríki. Þar hafði sextugur maður fengið leyfi til að yfirgefa þrælkunarbúðir ef hann fengi landvist annars staðar og hugð- ist ferðast til Bandaríkjanna með stuttri viðkomu á Íslandi. Hermann Jónasson synjaði manninum um landvistarleyfi þrátt fyrir vitneskju um aðstæður hans. Sama ár gerði hópur fólks tilraun til að bjarga austurrískum gyðingabörn- um frá ofsóknum með því að veita þeim hæli á Íslandi og taka þau að sér. Þrír mánuðir liðu áður en Hermann hafnaði beiðninni, en þá ákvörðun tók hann upp á sitt einsdæmi. Aðrir flokkar höfðu lýst sig fylgjandi málinu. Þegar Katrín Thoroddsen, læknir og ein þeirra sem vildi koma gyðinga- barni til hjálpar, skrifaði frægan pistil í Þjóðviljann undir titlinum „Mann- úð bönnuð á Íslandi“ brást Tíminn, málgagn Framsóknarflokksins, við með því að saka hana um „árásir“ og „einelti“. Enn þann dag í dag eru slík- ar ásakanir algengustu svör fram- sóknarmanna við gagnrýni. „Það er með ólíkindum hvað menn leggj- ast sumir lágt í tilraunum til að koma höggi á pólitíska andstæðinga,“ sagði Sigmundur nú síðast vegna gagnrýn- innar sem Sveinbjörg Birna Svein- björnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina, hefur orðið fyrir vegna málflutnings síns sem beinist gegn moskum og múslimum. Framsóknarflokkurinn axlaði aldrei ábyrgð á þeim þjáningum sem Hermann Jónasson kallaði yfir gyðinga í aðdraganda seinni heims- styrjaldarinnar og á meðan hún stóð yfir. Líkt og blaðamaðurinn Atli Þór Fanndal rifjar upp í grein sem ný- lega birtist í tímaritinu Man bauðst Halldóri Ásgrímssyni, þáverandi for- sætisráðherra Framsóknarflokksins, að biðjast afsökunar á atburðunum fyrir Íslands hönd í Fréttablaðsvið- tali árið 2005. Slíkt hafði forsætisráð- herrann Anders Fogh Rasmussen gert fyrir hönd Danmerkur en Halldór var mótfallinn því. „Hverja eigum við að biðja afsökunar?“ hafði þýski fjölmið- illinn Deutsche Welle eftir Steingrími Sævari Ólafssyni fréttamanni, sem þá var aðstoðarmaður forsætisráðherra. Jóhann Páll Jóhannsson johannp@dv.is Ekki velkomin Fjölda gyðingabarna var meinað um hæli á Íslandi vegna þvermóðsku Hermanns Jónassonar forsætisráðherra. Þjóðlegur formaður Sigmundur Davíð hefur verið gagnrýndur fyrir að ala á úlfúð gagnvart því sem erlent er. Einelti og árásir Jónas og kyn- þáttahyggjan Hermann Jónasson gegndi embætti forsætisráðherra á árunum 1934 til 1942 og svo aftur 1956 til 1958. Fram- sóknarflokkurinn gerði stjórnartíð hans aldrei upp, en hann sá sjálfur til þess að gyðingabörnum var meinað um hæli á Íslandi. Öll gagnrýni á Hermann var stimpluð sem árásir og einelti. Jónas Jónsson frá Hriflu er einn þekktasti formaður og hugmynda- fræðingur Framsóknarflokksins frá upphafi. Jónas hafði sterkar skoðanir á því hvers lags menning væri æskileg og hver ekki. Þá aðhylltist hann kynþáttahyggju, lagði áherslu á ræktun íslenska kynþáttarins og hafði andstyggð á blökkumönnum. Í einu af bréfum hans líkir hann andstæðingum framsóknarstefnunnar við „andlegan blökkumannalýð“.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.