Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Page 13
Fréttir 13Vikublað 10.–12. júní 2014
Þ
egar upptökulið frá
Hollywood kom hingað til
lands til þess að taka upp
kvikmyndina Flags of Our
Fathers þá var haft sam-
band við Tómas J. Knútsson, stofn-
anda Bláa hersins og þaulreyndan
kafara í Keflavík.
Tommi hefur mikla reynslu
sem kafari og þekkir umhverfið á
Reykjanesi manna best en hann
hikaði ekki þegar boðið kom og
í gegnum það verkefni kynntist
hann leikstjóra kvikmyndarinnar,
sjálfum Clint Eastwood.
„Þegar ég tók að mér að vera
verkefnastjóri fyrir Clint Eastwood
árið 2005, þegar hann kvikmynd-
aði hérna suður með sjó Flags of
Our Fathers, ræddum við stundum
saman um umhverfismál. Hann
hreifst svo mikið af því að ég skyldi
gera upp gamlan hertrukk og gera
út á það að þrífa upp rusl og drasl
úr sjónum og á strandlengjunni.
Hann vildi fá mig til Kaliforníu og
ég gæti hæglega verið að alla daga
að þrífa þar en ég afþakkaði gott
boð og sagðist eiga mikið verk
óunnið hér heima,“ segir Tommi
en Eastwood vildi aðstoða Tomma
í þessari baráttu.
Hollywood-stjarnan
styrkti Bláa herinn
„Hann vildi hjálpa mér eins og
hann gæti og þess vegna gaf hann
Bláa hernum fjölda muna úr
settinu hérna heima og hann var
þess fullviss að ég gæti gert úr því
eitthvað skemmtilegt safn af minn-
ingabrotum frá veru hans hér í
fjáröflunarskyni og ég er nú þegar
búinn að gera upp herjeppa sem
notaður var í myndinni og halda
sýningu á Ljósanótt 2011 á þess-
um munum. Draumurinn væri að
einhverjir fjársterkir aðilar keyptu
sýninguna og færðu Byggðasafni
Reykjanesbæjar munina til varð-
veislu.“
Setur inn myndir
af sóðum á Facebook
Spurður hvernig verkefni Blái her-
inn takist á við verkefnið þessa dag-
ana segir Tommi að það hafi aðal-
lega verið vetrarverkefni sem felast
í því að skrifa hvatningarbréf til
þeirra sóða sem þurfa að taka sig á.
„Það þarf að setja reglulega inn
myndir á Facebook til að fá smá
viðbrögð við sóðaskapnum. Svo er
alltaf eitt og eitt verkefni að detta í
hús þar sem fyrirtæki vilja láta Bláa
herinn koma og taka til á lóðum
sínum og svo framvegis. Svo er ég
farinn að sitja ráðstefnur erlend-
is hjá alveg frábærum alþjóðleg-
um samtökum sem heita Let's do it
World (letsdoitworld.org) og kraft-
urinn í því yndislega fólki sem þar
starfar af einlægni og í sjálfboða-
vinnu er aðdáunarverður,“ segir
Tommi sem vonast til þess að fólk
úr samtökunum komi í heimsókn
til Íslands í sumar.
Náttúra Íslands
stórbrotið sjónarspil
„Náttúra Íslands er stórbrotið
sjónar spil og þetta er einn af fal-
legustu stöðum á jörðinni en ein-
hverra hluta vegna kunnum við ekki
að virða það og göngum illa um á
mörgum stöðum,“ segir Tommi og
bætir við að ef allir jarðarbúar lifðu
eins og Íslendingar þá þyrftum við
sjö til tíu jarðir.
Ólöglegir ruslahaugar
í náttúrunni
En Blái herinn er ekki eina vopnið
í vopnabúri „herforingjans“ eins og
Tommi er gjarnan kallaður. Hann
hefur komið á fót smáforriti sem
heitir Trash Out, trashout.me, og
gerir fólki kleift að taka myndir af
ólöglegum ruslahaugum í náttúr-
unni og senda í gagnagrunn sem
allir geta fylgst með.
„Þannig vonast ég til þess að
áhugasamir aðilar sem vilja sjá
eitthvað gert á sínum svæðum noti
þetta og setji inn myndir. Ef þetta
verður vinsælt mun verða til Ís-
landskort með ruslahaugum sem
allur heimurinn getur séð og hver
vill slíka auglýsingu, Ísland hrein-
asta land í heimi?“ spyr Tommi.
Starf Tomma hefur vakið gríðar-
lega mikla athygli úti um allan
heim enda ekki á hverjum degi sem
einn maður reynir að taka á sig svo
stórt verkefni að hreinsa sjó og fjör-
ur umhverfis heilt land eins og hér
er raunin.
Discovery fjallar um
Bláa herinn
Forsvarsmenn hinnar vinsælu
sjónvarpsstöðvar Discovery
Channel höfðu samband við Sport-
köfunarskóla Íslands, skólann sem
Tommi kom eitt sinn á fót en hefur
skilið eftir í höndum annarra góðra
einstaklinga.
„Sjónvarpsstöðin var að forvitn-
ast um metnaðarfullt hreinsunar-
starf sem sportköfunarskólinn
stóð fyrir í desember í fyrra, en þá
fóru kennarar skólans í Silfru og
tíndu upp alls kyns drasl. Aðallega
var reynt að týna upp haglaskot-
in sem vilja stundum detta úr blý-
beltum kafaranna sem þeir nota
í köfun þarna. Þetta auglýstu þau
á heimasíðu sinni en við vinnum
náið saman að slíkum verkefnum
sem hafa með hreinsun í sjónum
að gera. Ég stofnaði þennan skóla
og þarna byrjaði Blái herinn sitt
hreinsunarstarf, það er að segja
neðansjávar. Þau í skólanum bentu
Discovery Channel á það að ræða
við mig um umhverfisverkefni mín
og var ég bara mjög sáttur við að
geta orðið þeim að liði.“
Koma á næstu vikum
Tommi bíður spenntur eftir hópn-
um frá Discovery Channel en
forsvarsmenn stöðvarinnar áætla
að gera stórt og gott innslag um
baráttu Tomma fyrir umhverfinu.
„Það er því miður af nógu að
taka og ég hugsa að ég taki þetta
bara alla leið og dragi ekkert und-
an. Ef einhver vakning á að verða
um alvarleika mengunar í sjónum
verður að koma með versta stuðið,
annars verður ekkert gert til að fá
einhverju breytt til batnaðar.“ n
„Clint Eastwood vildi
fá mig til Kaliforníu“
n Hollywood-leikstjórinn frægi var hrifinn af verkum Bláa hersins þegar hann kom hingað til lands
Atli Már Gylfason
atli@dv.is
„Það þarf að setja
reglulega inn
myndir á Facebook til
að fá smá viðbrögð við
sóðaskapnum.
Herforinginn
Tómas J. Knútsson,
stofnandi Bláa hersins
og vinur náttúrunnar
númer eitt. MyND ÞLB
Miklir vinir Clint Eastwood og Tommi eru miklir vinir. Eastwood vildi fá hann til Kaliforníu og bauð honum þangað þegar tökur stóðu yfir á
Flags of Our Fathers hér á landi. MyND Úr eiNKASAFNi
Göfugt verkefni Tommi og herinn hans blái hafa hreinsað upp yfir 1.080 tonn af rusli við
strandlengju Íslands og í sjónum sjálfum. MyND Úr eiNKASAFNi