Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Qupperneq 14
Vikublað 10.–12. júní 201414 Fréttir Viðskipti Ú tgerðarfélagið Samherji fær tæpan milljarð króna í arð frá Síldarvinnslunni í Neskaup- stað í ár vegna rekstrarársins í fyrra. Heildararðgreiðslan út úr Síldarvinnslunni nemur tveim- ur milljörðum króna í ár vegna ársins í fyrra. Þetta kemur fram í fréttatil- kynningu á heimasíðu Síldarvinnsl- unnar. Aðalfundur útgerðarinnar var á föstudaginn og var arðgreiðslan ákveðin þar. Samherji á tæp 50 prósent í Síldarvinnslunni, tæp 45 prósent sjálft og svo lítinn hlut í gegnum dótturfélagið Snæfugl ehf. Samherji er langstærsti hluthafi útgerðarinn- ar. Arðgreiðslur Síldarvinnslunnar hafa verið háar síðastliðin ár. Í fyrra greiddi fyrirtækið eigendum sín- um 2,1 milljarð króna í arð vegna rekstrarársins 2012, árið þar á und- an var arðurinn milljarður og eins arðgreiðslan árið 2010. Síðastliðin fjögur ár nema arðgreiðslurnar út úr Síldarvinnslunni því rúmum sex milljörðum króna. Hlutdeild Sam- herja í þessari upphæð er tæpir þrír milljarðar króna. 5,6 milljarða hagnaður Arðgreiðslan út úr fyrirtækinu byggir á 5,6 milljarða hagnaði þess síðast- liðin ár. Tekjur fyrirtækisins námu þá rúmum 23 milljörðum króna. Í lok síðasta árs voru eignir Síldarvinnsl- unnar 45,3 milljarðar en á móti voru skuldir fyrir rétt tæplega 21 milljarð- ur. Eigið fé útgerðarinnar nemur því rúmum 24 milljörðum króna. Síldarvinnslan stundar bæði upp- sjávarveiðar og bolfiskveiðar. Afla- verðmæti uppsjávarskipa félagsins nam tæpum 4,7 milljörðum á meðan aflaverðmæti bolfiskskipanna var tæplega 4 milljarðar króna. Þá rekur félagið líka fiskimjölsverksmiðjur og fiskiðjuver og var verðmæti framleiðslu þeirra tveggja nærri 18,5 milljarðar króna. Hækkandi arðgreiðslur Arðgreiðslurnar sem Síldarvinnslan hefur greitt til stærsta hluthafa síns, Samherja, síðastliðin ár hafa átt þátt í því að Samherji hefur getað greitt sínum hluthöfum meiri arð. Þannig setti Samherji met í greiðslu arðs til hluthafa í fyrra þegar 14,7 milljón- ir evra, tæplega 2,5 milljarðar króna, voru greiddar út til hluthafa vegna rekstrarársins 2012. Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson eru stærstu hluthafar Samherja. Árið þar á undan, 2012 vegna rekstrarársins 2011, hafði Samherji greitt rúmlega 1.260 milljónir til hluthafa sinna og tæplega 940 millj- ónir króna árið 2011 vegna rekstrar- ársins 2010. Síðastliðin þrjú ár – arðgreiðslan fyrir árið í ár liggur ekki fyrir – hafa eigendur Samherja því greitt út tæp- lega 4,7 milljarða króna í arð. Arð- greiðslur bæði Samherja og Síldar- vinnslunnar hafa því hækkað umtalsvert síðastliðin ár. Fékk 400 milljónir Líkt og DV hefur greint frá þá held- ur Eignarhaldsfélagið Steinn ehf. utan um hlutabréf Þorsteins Más Baldvinssonar í Samherja. Um er að ræða þriðjungshlut í félaginu. Árið 2012 fékk félagið til dæmis greiddar um 400 milljónir króna vegna hagn- aðar Samherja árið á undan. Stærsta eign félagsins, hlutabréfin í Sam- herja, voru bókfærð á 2,8 milljarða í lok þess árs og voru engar skuld- ir á móti. Hlutabréfin eru hins vegar miklu meira virði en það. Þorsteinn Már hefur ekki tekið arð út úr fé- laginu síðastliðin ár og situr það því á miklum peningum. Hinn stóri hluthafi Samherja, Kristján Vilhelmsson, er ekki með hlutabréf sín í einkahlutafélagi held- ur eru þau skráð á hans eigið nafn. Því er ekki hægt að sjá hversu mikið hann hefur hagnast af þeim. Af framangreindu sést vel hve hagnaður þessara tveggja stóru og burðugu útgerða hefur verið mikill síðastliðin ár og rennur hagnaður þeirra niður til þeirra sem byggt hafa útgerðirnar upp. n Samherji fær tæpan milljarð króna í arð Síldarvinnslan hefur greitt út rúma sex milljarða á fjórum árum „Þannig setti Sam- herji met í greiðslu arðs til hluthafa í fyrra þegar 14,7 milljónir evra, tæplega 2,5 milljarðar króna, voru greiddar út. Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Samherji fær tæpan milljarð Rekstur Síldarvinnslunnar og Samherja hefur gengið ótrúlega vel síðastliðin ár og hafa arðgreiðslurnar farið hækkandi. Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson í Samherja sjást hér. Mynd VIkudagur.IS Svimandi arðgreiðslur Síðastliðin fjögur ár hefur Síldarvinnslan, sem Gunnþór Ingvason stýrir, greitt rúma sex milljarða í arð út til hluthafa. Skoðaði samvinnuna Samkeppniseftirlitið taldi tilefni til að skoða málið S amkeppniseftirlitið taldi vorið 2013 að tilefni væri til að skoða samvinnu Síldar- vinnslunnar, Samherja og Gjögurs. Saman fara Samherji og Gjögur með yfir þrjá fjórðu af hluta- fé Síldarvinnslunnar, sem fyrir helgi ákvað að greiða tveggja millj- arða arð til hluthafa sinna. Ummæli Samkeppniseftirlitsins um að taka þessa samvinnu til skoðunar kom fram í úrskurði um kaup Síldar- vinnslunnar á útgerðinni Bergi- Hugin í apríl í fyrra. Í ársreikningi Gjögurs, og hlut- hafaupplýsingum hjá Lánstrausti, kemur einungis fram hver fari með 44 prósenta hlut í Gjögri, þau Ingi Jóhann Guðmundsson og Anna Guðmundsdóttir, en ekki hver fer með eftirstöðvarnar. DV hafði samband við Inga Jóhann til að spyrja út í eignarhaldið á út- gerðinni en símasambandið virð- ist hafa slitnað. Í úrskurði Samkeppniseftirlits- ins frá því í fyrra, þar sem kaup Síldarvinnslunnar á Bergi- Hugin voru heimiluð, segir að stofnun- in hafi ekki heimild til að hlutast til um að útgerðir fari ekki með bein- um eða óbeinum hætti yfir kvóta- þakið – hámarkshlutdeild útgerða í aflaheimildum – en að hún hafi samt séð tilefni til að skoða sam- starfið. Orðrétt segir: „Jafnframt hefur verið ákveðið að taka fram- angreinda samvinnu Síldarvinnsl- unnar, Samherja og Gjögurs til rannsóknar með hliðsjón af bann- ákvæði 10. gr. samkeppnislaga. Samkeppniseftirlitið hefur hins vegar ekki það hlutverk að lögum að beita 13. gr. laga um stjórn fisk- veiða til þess að koma í veg fyrir að útgerðir komist með beinum eða óbeinum hætti framhjá fyrirmæl- um þeirra laga um kvótaþak.“ DV náði ekki í Pál Gunnar Páls- son, forstjóra Samkeppniseftirlits- ins, á mánudaginn til að spyrja hann um stöðuna á þessari skoðun á samvinnu útgerðanna. n ingi@dv.is Samvinna skoðuð Samvinna Síldarvinnsl- unnar og stærstu hluthafa útgerðarinnar var tekin til skoðunar af Samkeppn- iseftirliti Gunnars Páls Pálssonar í fyrra. Mynd SaMkeppnISeFtIrlItIð Hagnaðist um 4,5 milljarða Eignarhaldsfélag Guðbjargar Matthíasdóttur, útgerðarkonu í Vestmannaeyjum, hagnaðist um ríflega 4,5 milljarða króna árið 2012. Félagið heitir Kristinn ehf. og er einna þekktast fyrir að hafa átt hlutabréf í Trygginga- miðstöðinni sem seld voru til FL Group árið 2007. Síðustu mánuði hefur félagið keypt rót- gróin fyrirtæki eins og prent- smiðjuna Odda og Íslensk-Am- eríska. Í ársreikningi félagsins fyrir árið 2012 kemur fram að félag- ið hafi haft tekjur vegna ótil- greindra fjármálagerninga fyrir nærri 4,9 milljarða króna. Eig- ið fé félagsins nemur nú rúm- lega tíu milljörðum króna og er það vægast sagt vel statt. Eignir nema 18 milljörðum en skuldir eru rétt tæplega átta. Ekki er því skrítið að félagið hafi bolmagn til fjárfestinga í íslensku atvinnulífi. Félagið á til að mynda verð- bréf, meðal annars ríkistryggð markaðsverðbréf, fyrir rúmlega 14 milljarða króna. Þá greiddi þetta félag Guðbjargar meðal annars niður skuldir upp á rúm- lega tvo milljarða króna á árinu 2012. Kaup Guðbjargar á þessum tveimur fyrirtækjum, Odda og Íslensk-Ameríska, á síðasta rúma hálfa árinu benda til þess að hún hafi hug á færa sig í auknum mæli inn á önnur svið rekstrar en útgerðar. Hún er eigandi Ísfé- lagsins í Vestmannaeyjum, auk útgáfufélags Morgunblaðsins, en hefur ekki tekið mikinn þátt í annars konar rekstri á síðustu árum heldur frekar haldið að sér höndum. HP Grandi greiddi mest Fiskistofa birti nýlega lista yfir álagningu veiðigjalda fiskveiði- ársins 2012/2013. Fiskifréttir birta úttekt byggða á listanum á vef- síðu sinni en þar kemur fram að HB Grandi greiddi hæst veiði- gjöld eins og við var að búast, enda fyrirtækið með hæst hlutfall aflaheimilda allra fyrirtækja. 1. HB Grandi - 1.956 milljónir 2. Samherji (ÚA meðtalið) - 1.237 milljónir 3. Síldarvinnslan - 808 milljónir 4. Ísfélag Vestmannaeyja - 807 milljónir 5. Brim - 728 milljónir 6. Vinnslustöðin - 704 milljónir 7. FISK Seafood - 698 milljónir 8. Skinney-Þinganes - 614 milljónir 9. Eskja - 472 milljónir 10. Rammi - 465 milljónir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.