Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Side 17
Vikublað 10.–12. júní 2014 Fréttir Erlent 17
Hafna ekki stofnfrumum
n Ræktun sérstaks svínastofns tímamót í stofnfrumurannsóknum n Gæti flýtt þróuninni
E
in helsta hindrun stofn-
frumurannsókna hing-
að til hefur verið að lífveran
sem frumunni er komið fyr-
ir í hafnar þeim. Stofnfrumu-
rannsóknir hafa helst farið fram á
svínum, músum og rottum en vís-
indamenn segjast nú hafa ræktað
sérstakan stofn svína sem hafni ekki
stofnfrumunum. Þetta geri það að
verkum að greinin og rannsókn-
ir tengdar henni gætu þróast mun
hraðar.
Mikilvægt skref
Stofnfrumur eru frumur sem eru í
raun óskrifað blað. Þær geta fjölg-
að sér og þróast í sérhæfðari hlut-
verk. Komið þannig í stað dauðra
eða veikra frumna. Stofnfrumur
hafa þann einstaka hæfileika að geta
fjölgað sér hratt yfir langt tímabil án
þess að sérhæfa sig og því er auð-
velt að rækta þær í miklu magni á
tilraunastofum. „Þegar viðtakandi
hafnar ígræðslu eða innsetningu
stofnfrumna skapar það gríðarlega
hindrun,“ segir R. Michael Roberts,
prófessor í dýralíffræði og vísindum
við Animal Life Sciences-miðstöð-
ina. Í samtali við Sciense Daily seg-
ir Roberts, sem hefur ásamt sam-
starfsmönnum sínum rannsakað
stofnfrumur um langt skeið, að þessi
nýi stofn gæti haft mikla þýðingu.
„Með því að fá það staðfest að þessi
svín muni ekki hafna stofnfrumum
getum við þróað greinina mun hrað-
ar þar sem mikill tími og fjármunir
geta farið í vaskinn ef viðfangsefnið
tekur ekki við frumunum.“
Hannaði svín
Það var vísindamaðurinn Randall
Prather sem ræktaði svínin en hann
hannaði genamengi þeirra þannig að
ónæmiskerfið geti tekið ígræðslum
án þess að hafna þeim. Þar sem gena-
mengi svína er um 98 prósent það
sama og genamengi manna er um
merkilegan áfanga að ræða. „Margir
vísindamenn kjósa að framkvæma til-
raunir á svínum þar sem líffærakerfi
þeirra er líkara því mennska en hjá
öðrum dýrum. Til dæmis en hjá mús-
um og rottum,“ segir Prather. „Lík-
amlega eru svín mun nærri mönnum
í stærð en önnur dýr sem hafa verið
notuð í slíkum tilraunum. Þá bregð-
ast þau við heilsuógn með svipuð-
um hætti, sem þýðir að rannsóknir
á svínum eru líklegri til þess að bera
árangur. Roberts tekur í sama streng.
„Nú þegar við vitum að mennskar
stofnfrumur munu taka við sér í þess-
um svínum hafa opnast dyr í þessum
málum, nýjar og spennandi rann-
sóknir vísindamanna um allan heim.
Vonandi þýðir þetta að við séum
komin einu skrefi nær raunveruleg-
um lækningum og meðferðum við
alvarlegum sjúkdómum.“
Lækningar handan við hornið
Margar rannsóknir með stofn-
frumum hafa verið framkvæmdar á
undanförnum árum sem lofa góðu.
Má nefna rannsókn dr. Darren Yuen
og dr. Richard Gilbert sem sýndu
fram á árið 2010 að með hjálp stofn-
frumna var hægt að bæta virkni hjarta
og nýra hjá rottum með sjúkdóma í
þessum líffærum. Árið 2013 birtu þeir
niðurstöður rannsókna þar sem þeir
höfðu fundið út að nóg var að ein-
angra sérstakt hormón úr frumunum
og sprauta því í tilraunadýrin til að fá
sömu jákvæðu áhrif. Þá hafa rann-
sóknir á stofnfrumum einnig hjálp-
að mikið til við að skilja eðli krabba-
meins, hvernig það þróast og dreifir
sér um líkamann, sem aftur gefur vís-
indamönnum aukið tækifæri til þess
að skilja meinið og þróa lækningu. n
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
V
ísindamenn við Háskólann í
Bresku-Kólumbíu vilja hætta
eða takmarka veiðar verulega
í úthöfunum (e. high seas).
Ástæðuna segja þeir að fiskur hreinsi
svo mikið magn koltvísýrings úr haf-
inu að það sé meira virði en að veiða
hann til manneldis.
Rannsókn á vegum skólans sýndi
að fiskar og sjávarlífverur hreinsi
um 1,5 milljarða tonna af koltvísýr-
ingi úr hafinu á hverju ári en súrnun
sjávar vegna aukinnar mengunar er
ein helsta ógnin sem hafið stend-
ur frammi fyrir. Rashid Sumaila,
yfir maður sjávarútvegsrannsókna
við skólann, segir virði þessarar
„hreinsunarþjónustu“ vera tæplega
17.000 milljarðar á ári í Bandaríkj-
unum. Til samanburðar eru tekjur af
úthafsveiðum í Bandaríkjunum um
1.800 milljarðar árlega.
„Lönd alls staðar í heiminum
berjast nú við að finna sparsamar
leiðir til þess að draga úr losun
koltvísýrings,“ segir Rashid í samtali
við Science Daily. „Við höfum komist
að því að úthöfin eru að sinna þessu
mikilvæga starfi frítt.“ Skilgreining
úthafs er það hafsvæði sem er utan
200.000 mílna lögsögu nokkurs lands
og er því í raun sameiginlegt svæði
allra landa. „Að halda fiskistofnum
í úthöfunum er okkur meira virði en
að veiða þá. Ef við töpum lífmassan-
um í úthöfunum þurfum við að finna
aðra leið til þess að losna við koltví-
sýring og með mun meiri tilkostnaði.
Rannsóknin var studd af Global
Ocean Commision og var fram-
kvæmd af Rashid auk Alex Rodgers
sem starfar við Somerville-háskól-
ann í Oxford. n
asgeir@dv.is
Fiskur mikilvægari
sem hreinsitæki
Vísindamenn vilja stöðva veiðar í úthöfunum
Veiðar í úthöfum Eru
margfalt minna virði en
hreinsunin sem fiskar
og aðrar lífverur standa
fyrir á hverju ári.
Sérstök svín Randall Prather hefur ræktað stofn svína sem hafna ekki stofnfrumum og
því gæti stofnfrumurannsóknum fleygt hraðar fram.
Mikilvægar rannsóknir Stofnfrumurannsóknir gætu opnað mikla möguleika í meðferð
hinna ýmsu sjúkdóma.
RúmGott · Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus) · Kópavogi · Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 · www.rumgott.is
· ÚTSALA · ÚTSALA ·
FAGLEG RÁÐGJÖF OG
FRÍ LEGUGREINING
Komdu í heimsókn, prófaðu legugreininguna, og fáðu
faglega ráðgjöf um val á heilsudýnum, án skuldbindinga!
Svæðaskipt heilsurúm
90 x 200 cm
Verð frá 69.900.-
Svæðaskipt heilsurúm
160x200 cm
Verð frá 139.200.-
Sérsmíðum heilsurúm
í öllum stærðum.
Dýnur og botna.
VIÐ FRAMLEIÐUM ÞITT RÚM EFTIR ÞÍNUM ÞÖRFUM
Framleiðum dýnur og rúm fyrir hótel og gistiheimili
30-50% AFSLÁT
TUR
50% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
ETHANOL ÖRNUM